SPURNINGIN Eftir Guðrúnu Halldórsdóttur Þið kannizt við söguna um karlinn í Hringaríki og kerlinguna hans. Eitt sinn stóð hún í óþekktu kvikindis-líki fyrir augum þess dánumanns. Ferðlúin var hún og í henni öldrykkjuvíma, anzi var hugsunin treg, þó var hún alltaf við gátuna sömu að glíma, gótuna: Hver er ég? Sagan lifir frá löngu umliðnum tíma, líkast til ódauðleg. Ungu skáldin við gátuna ennþó glíma, gátuna: Hver er ég? 85