sinnum sér til dægrastyttingar. Ég býst reyndar við, að búverkin bjargi mér frá að verða mér nokkuð að ráði til minnkunar.... Frá Austtjörðum er skrif'að: .... Ég er spennt fyrir þessari framtakssemi ykkar og óska henni góðs gengis. Sannarlega er kominn tími til þess, að konur þessa lands f'inrii, að þær eru þess börn og blessun alveg eins og karlmennirnir. Öil þjóðin fyrir landiðog landið fyrir alla þjóðina. Kona að vestan skrifar: .... Ég legg ekki í vana minn að fást við ljóðagerð, en þegar ég hafði lesið nýjustu tímarit höfuðborgarinnar, varð mér á að hnoða þessu saman. Þið megið birta það ef þið viljið: Sólin gekk á gulum skóm, og steinar uitu úr stað. Allir steinar eiga hfjóm, þó enginn viti það. Svo kom líka Sing-Sing-Hó 7005. En nú á sólin nýja skó, og nótt er orðin dimm. Enginn tekur orð mín gilcl, sem óðarperlur neinar. En þetta myndi þykja snilld ef það væri eftir Steinar. 95