SÝNING Á BÓKMENNTUM KVENNA Kvenfélag Alþýðuf lokksins efndi til sýnihgar á bókum, skrifuð- um af konum, dagana 3.-6. desember s.l., undir stjórn frú Soffíu Ingvarsdóttur bæjarfulltrúa. Voru jafnframt fluttir fyrirlestrar um bókmenntir öll kvöldin meðan sýningin stóð yfir. Sýning þessi var með miklum myndarbrag og forstöðukonum hennar til hins mesta sóma. Eiga þær þakkir skilið fyrir frum- kvæðið. í NÆSTA ÁRGANGI EMBLU hefst annáll um bækur, skrifaðar af íslenzkum konum. Verður reynt að vanda hann eftir föngum og afla upplýsinga um höfunda, eftir því sem tök verða ;i. Ætlunin er að annállinn liefjist á fyrstu bók, sem prentuð Iiefur verið eftir íslenzka konu, og verði síðan í réttri tímaröð eftir því hvenær bækur birtast fyrst frá hendi hvers höfundar. Finnur Sigmundsson landsbókavörður Jiefur góðfúslega lofað aðstoð sinni og leiðbeiningum við annálinn. Sömuleiðis hefur frú Soffía Ingvarsdóttir bæjarfulltrúi Ieyft Emblu afnot af spjaldskrá, er hún samdi við undirbúning sýning- ar þeirrar, sem getið er um hér að ofan. 100