EMBLA FLYTUR RITVERK K.VENNA í BUNDNU OG ÓBUNDNU MÁLI Kemur út einu sinni á ári Ritstjórar og ábyrgðarmcnn: VALBORG BENTSDÓTTIR, Barónsstíg 25, Rcykjavík KARÓLÍNA EINARSDÓTTIR, Vífilsgötu 10, Reykjavík VALDÍS HALLDÓRSDÓTTIR, Vin, Hveragerði Utanáskrift: Ársrititt Embla, Reykjavik Ritstjórnarsimar: 5089 og 5211 VerÖ kr. 15.00 til áskrifenda og kr. 20.00 i lausasólu V. VERÐLAUNASAMKEPPNI EMBLA efnir til verðlaunasamkeppni um beztu smásöguna, sem henni berst fyrir 1. jan. n.k. Sagan má ekki vera lengri en 8 síður í Emblú og verður að vera frumsamin af íslenzkri konu. Handritin séu vélrituð eða vel læsilega skrifuð og merkt dul- nefni. Nafn og heimilisfang höfundar fylgi í lokuðu umslagi, merktu sama dulnefni. Fyrir beztu verðlaunahæfa sögu verða greiddar 1000.00 eitt þúsund krónur í verðlaun, en engin sérstök ritlaun. EMBLA áskilur sér rétt til að birta aðrar þær sögur, sem berast, og verða þá fyrir þær greidd venjuleg ritlaun. í dómnefndinni verða ásamt ritstjórn Emblu Guðni Jónsson magister og dr. Steingrímur J. Þorsteinsson docent. 102