A. J. CRONIN: Lyklar himnaríkis Það er óhætt að mla með þessari skáldsögu við alla þá, sem góð- um bókmenntum unna. Þeir munu ekki verða fyrir vonbrigðum af henni, heldur njóta hennar í sívaxandi mli, eftir því sem þeir sökkva sér meira niður í hana. En slíkt er aðaleinkenni allra hinna beztu bóka. Nýlokið er að kvikmynda þessa viðburðaríku skáldsögu. Lesið bókina áður en kvikmyndin kemur. Bækur fyrir konur f þessum mánuði koma út tvær mjög skemmtilegar skáldsög- ur, sem allar íslenzkar konur ættu að lesa: MóSir Island eftir Guðmund G. Hagalín er skáldsaga frá Reykjavík á hernáms- árunum. í skáldsögu þessari tekur höfundurinn á djarfan og hreinskilinn hátt ýms hinna svonefndu ástandsmála" til með- ferðar. Bók þessi er, eins og aðrar sögur Hagalíns, mjög vel rituð og írásögnin lifandi. Victoria, ástarsaga eftir K. Ham- sun í þýðingu Jóns Sigurðssonar frá Kaldaðarnesi. Bók þessi kom fyrst út hér á landi árið 1912 og hlaut þá mjög góða dóma. Nú hefur Jón Sigurðsson yfirfarið þýðingu sína og Atli Már prýtt bókina myndum. Þetta er hrífandi fögur ástar- saga, sem allir lesa sér til ánægju. ,- Bókfellsútgáfan 109