V erdlaunasagan Drengurinn minn Gleðileg jól. Gleðileg jól, ómar utan af götunni og í göngum og stigum stóra hússins. Gleðileg jól. Allir flýta sér. Énn er margt ógert. Dagurinn er svo stuttur. Dyr opnast og lokast. Hérna er hálfskreytt jólatré, og þarna vantar kerti í stjaka. Það þarf að festa upp þessi marglitu silkibönd, og mislitar ljós- hlííar má ekki vanta. Matarlykt blandast ilmi af þurrum grenígreinum. Lítil telpa rogast með iullt fangið af jólabögglum. Hún dettur og grætur. Nú verður hún of sein að raða þeim í kringum jólatréð. Flýttu þér, flýttu þér. Stundin nálgast óðum. Kirkjuklukkurnar hringja, gling, gling, gló, gling, gling, gló. Heims um ból, lielg eru jól. Hver er að syngja jólasálma? Gamla konan opnar augun og l'álmar út í myrkrið með titrandi höndum. Höfðu jólin komið og farið fram hjá, meðan hún svaf? Hún kveikir á kerti. Ljósið blaktir dapurlega og lýsir skammt. Þarna stendur mjólkurflaskan og dálítili brauðsnúður. KMBLA 7