Ég þarf ekki að læra meira, mamma. Ég kann að lesa og skrifa. Það er alveg nóg, fyrst ég ætla að verða sjómaður. Þú verður ekki sjómaður, vinur minn. Mamma getur ekki séð af drengnum sínum á sjóinn. Það er alltaf leiðinlegt í skólanuin, niannna. Það er allt bannað, sem gaman er að. Ég ætlaði ekki að brjóta rúðuna, mamma, en kaiiinn var að skamma mig saklausan, og þá fóru strákarnir að mana mig. Ég er svona rifinn og tættur, mamma, af því að ég var að hjálpa litium strák, sem allir níddust á. Eg þarf engan miðdegismat á morgun, ef þú verður að þvo. Ég vil ekki koma til þín að borða. Strákarnir segja, að ég sé að sníkja. Ég kem með nóg kol í ofninn, mamma. Nú verður þér ekki kalt í marga daga. Hvar fékkstu þessi kol, vinur minn? Það gaf mér þau maður, sem ég.hjálpaði. Hann á svo mikið, stóran, stóran bing. Hann ætlar að gefa mér meira seinna, en ég má ekki sækja það nema í myrkri. Það var þó undarlegt. Hérna er sykur og brauð. Ég á líka nóga aura fyrir mjólk. Nú þarftu ekki að fara út í vont veður til þess að þvo. Ég vil ekki láta þig þvo lijá öðrum. Það getur þvegið þvottinn' sinn sjálft. Hvar færðu alla þessa peninga, góði minn? Það gaf mér þá maður. Ég fékk þá fyrir að sendast. Ég seldi blöð. Þú ert orðinn svo dúglegur, elsku drengurinn minn. Nú hafa strákarnir ekkert við mér, mamma, síðan ég fékk nýju skautana. Ég þarf líka að saina mér f'yrir skíðum. Þú liefðir áttað sjá, hvað é» stóð brattar brekkur í dag, mamma. Hinir strákarnir ultu og veltust um hvað eltir annað. 10 EMBLA