Kafli úr TENGDAMÖMMU eftir Kristinu Sigfúsdóttur Ary. (opnar hurðina) Mamma mín. Björg: (kemur í dyrnar) Hvað viltu, Ari minn? Ari: Viltu ekki koma fram í stofuna til okkar? Prestarnir eru báð- ir komnir, og síra Guðmundur var að spyrja eftir þér. Björg: Nei, ég fer ekki fram. Ég býst við, að mér yrði lítil ánægja að viðræðum ykkar ungu mannanna. En mér væri ánægja að því, ef síra Guðmundur vildi koma inn til mín og tala við mig dálitla stund. Ari: (alúðlegur) Ég skal biðja hann þess, mamma mín. (Til Sveins) Svo ætla ég að biðja þig, Sveinn minn, að taka hestana °S 'e?SJa a Þa> áður en langt líður. Þeir vilja endilega komast heim í kvöld. Sveinn: Já (þeir fara). Björg (kemur með stól innan úr húsinu, setur hann við hinn dyrastafinn). Prestur og Ari (koma inn). Prestur (réttir höndina) Komið þér sælar, Björg mín. Björg: Komið þér sælir, síra Guðmundur (vísar honum á annan stólinn, sezt á hinn). Ari (fer út). Prestur: Mér fannst ég ekki geta farið svo héðan að finna yður ekki. Á mínum aldri er ekki hægt að gizka á, hvenær menn kveðja í síðasta sinn. Ég hef alltaf talið yður með m'ínum gömlu og tryggu vinum. EMBLA 35