GuÖlaug Narfadóttir FRA ÆSKUARUNUM Við, sem vorum að alast upp í Hafnarfirði um eða upp úr aldamótunum, munum tvenna tíma, eins og raunar allir lands- menn. Hafnarfjörður var enginn stórbær þá. Árið 1901 eru 115 íbúðarhús í Hafnarfirði með 138 fjölskyldum, samtals 640 manns. Byggðin með ströndinni var mest verzlanir eða hús, sem tilheyrðu kaupmannastéttinni, en upp um hraunið voru smábæir eða hús. Þar bjó allur almúginn, sjómennirnir og Ijölskyldur þeirra. Við hraunbrúnina á litlum grasbala stóð bær foreldra minna, og-var bærinn nefndur Bali. Faðir minn var sjómaður. Við vorum átta systkinin. Ég var fjórða í röðinni. 42 EMBLA i