mér peninga fyrir vinnu mína um sumarið. Ekki þorði ég að segja mömmu frá fyrirætlun minni. Daginn áður en ferðinni var heitið, labbaði ég suður að Óseyri. Eg mætti Einari við Ósinn og bar strax upp erindið. Einar leit á mig steinhissa. Peninga? Hvað segirðu, barn?" varð Einari að orði. Ég sagði honura sem var um væntanlega Reykjavíkurferð, og þar með, að ég ætlaði að kaupa mér skó, fallega slaufuskó. Einar var barngóður og skildi metnað minn. Allt í einu fór hann ofan í vasa sinn, tók budduna, tók tvo peninga upp og spurði mig, hvorn ég vildi fá í kaup. Ég þekkti, að annar var fimmeyringur, og hélt nú, að Einar væri að gabba mig. Eg vil ekki svarta peninginn," sagði ég, og var nú farið að þykkna í mér. Maður kaupir ekkert fyrir 5 aura." Þá liló Einar, tók 2 krónupeningajog fekk mér. Ekki fekk ég hrós fyrir þetta tiltæki, þegar heim kom, en afi hló og gaf mér 50 aura. Næsta morgun var ég snemma á fótum. Klukkan rúmlega 6 löbbuðum við mamma af stað. Eg hafði ekki sofið mikið um nóttina. Það var svo mikill ferðahugur í mér. Ég var alltaf að spyrja mömmu, hvort við værum ekki bráðum komn- ar. Þarna er Skólavarðan", sagði mamma. Þar höfum við skó- skipti." Við settumst á tröppurnar og skiptum um skó, Mamma átti kunningjakonu í Skuggahverfinu, ekkju, sem bjó með syni sínum, sem var á aldur við mig. Hún hafði ofan af fyrir sér með saumum. Þegar við komum til hennar, var liún að enda við að sjóða morgunmatinn, saltaðar kinnar og kartöflur. Ég var orðin matlystug. Þegar ég var búin að borða, sagði hún drengnum að fara með mér og sýna mér bæinn. Við fórum upp í Bakarabrekku. Þar var hópur af fólki kringum vatnspóstinn, allir vildu komast sem fyrst að. Flest var þetta gamalt fólk, og mér fannst það ósköp fátæklegt. Þetta eru bara vatnskarlar og kerlingar," sagði dreng- urinn. í þessu kom drengur á móti okkur. Hann fór að stríða fylgdarmanni mínum með því, að hann væri með stelpu. Þetta þoldi hann ekki og hljóp frá mér. Ég var nú orðin ein, en hé'lt mér væri óhætt og hélt því óhikað áfram. En allt í einu var ég orðin ramvillt. Ég sá menn vera að vinna við að grafa fyrir húsi, lítil telpa var að færa pabba sínum. Ég gekk til þeirra og bað um að vísa mér til vegar í Skuggahverfið. Telpan var fús til þess. Við 4 (] EMBLA