að hann væri með mér. Hann fór inn í búð og keypti gráfikjur fyrir 25 aura og gaf mér þær í nesti. Það fannst mér mikill höfð- ingsskapur. Þegar við mamma lögðum af stað heim, var ég orðin lúin og kveið fyrir að ganga. í Fossvogi kom ríðandi maður á eftir okkur. Mér fannst ég verða allt í einu sárþreytt. O, ef ég fengi að koma á bak. Maðurinn heilsaði og reið framhjá okkur, en varla meir en svo sem tvær hestlengdir, þá stanzaði hann og spurði, hvert við ætluðum. Til Hafnarfjarðar," svaraði mamma. Hann leit snöggv- ast á mig. Á ég ekki að reiða þig dálítinn spotta?" sagði hann. Ég flýtti mér til hans. Hann lét mig stíga á fótinn á sér og lyfti mér söðulvega á bak. Ég varð feimin, en það var ekki lengi. Maðurinn fór að spjalla við mig og spyrja mig um allt mögulegt og þar á meðal, hvort ég væri farin að lesa. Ég játti því. Hvað lestu?" Þjóðviljann, pabbi kaupir liann," svaraði ég. Maðurinn hló, en þessu reiddist ég. Það er ekkert til að hlæja að," sagði ég stór- móðguð. Það er góður karl, sem skrifar Þjóðviljann, og það er gaman að sögunum." Nú hætti maðurinn að ldæja. Á ég að segja þér dálítið? Ég er karlinn, sem skrifar Þjóðviljann." Heitirðu Skúli Thoroddsen?" spurði ég. Já, og á heima þarna," og hann benti mér á Bessastaði. Nú vaknaði forvitni mín, og mig langaði að vita meira. Ég vildi vita, hvernig liann færi að því að búa til stafina í blaðið. Það er gert í vélum." Og nú fór hann að segja mér frá prentvélinni. En livað er að vera á undan samtíð sinni?" spurði ég. Pabbi segir, að þú sért það." Skúli horfði svolitla stund fram fyrir sig, svo brosti hann, að mér fannst hálfrauna- lega. Jæja, nú förum við að skilja," sagði hann og stöðvaði hest- inn. Sá, sem er á undan samtíð sinni, fer ríðandi eða hlaupandi, þegar aðrir ganga. Vertu sæl, og heilsaðu pabba þínum frá mér." Hann klappaði mér á kinnina, um leið og hann renndi mér af baki. Við vorum við liraunbrúnina. Nú fór ég áð líta eftir mömmu. Þarna kom hún á Hraunholts- liálsi og fór hratt yfir. í hendinni bar hún klút, og í honum var aleiga mín, og mér fannst ég vera ákaflega rík. Þú mátt ekki segja krökkunum, að ég hafi verið reidd," sagði ég við mömmu, þau stríða mér þ;í." 48 EMBLA