Æðrastu ekki, maður minn. Mundu að bíða og vona. Um læstar dyr kom lausnarinn og lét hann ekki svona. Á SPÍTALANUM Víst er heljar vegur beinn, verða ei sárin talin, þar, sem hnígur einn og einn orðalaust í valinn. ÞÁ VAR ÉG UNG Þegar ég Drottinn bónar bað í barnatrausti mínu, ekkert gat hann átt við það í almættinu sínu. Kveðið til vinkonu, sem hafði orð á því, að skáldkonan væri of mögur. Kinnin mín er þynnri en þín; þætti mér það gaman, að sjá þig fara í fötin mín og fitna af öllu saman. l'.MHLA -5 G5