innar hafi verið milljónamæringur, en misst alla peningana, og hún svo gert húsið að leikfimiskóla. Hvað um það, hér hlýtur að vera unun að búa. Þú brosir að hrifningu minni og framtíðarvonum. Já, það var satt. Þær áttu sér ekki langan aldur. Manstu suðurvegginn í æfingasalnum. Hann var mikið til út gleri, þar mátti opna vængjahurð út í garðinn, en fyrir innan vegginn man ég sérstaklega vel eftir einum djúpum leðursófa. Það er ef til vill af því, að þar sátum við fyrsta skólamorguninn í þungum þönkum og horfðum á þjálfunarleikfimi hjá frú Delitzsch. Þeir fóru vel búningarnir á þessu græna gólfteppi, óneitanlega fóru þeir mjög vel brúnir ullarsundbolir með mjóu leðurbelti í sama lit. Og allar stúlkurnar berfættar. Slíkt var ekki KMBLA 67