tízka á Norðurlöndum. Það sam'a mátti raunar segja um gólf- teppið. Hugsa sér að gera æfingar á teppi. Það leit vel út og var sjálf- sagt prýðilegt. En æfingarnar. Hamingjan hjálpi mér. Ég kann ekki við þessar æfingar. Hamingjan hjálpi mér, ef ég hef nú lent á vitlausum stað að vera að flækjast hingað suður eftir. O, hvað ég vildi, að ég væri komin norður til Helsingfors til Elli Björksten. Ætti ég að fara? Það er löng leið með lestinni norður, en allt má gera. Hvað heldur þú, að forstöðukonurnar á Snoghöj hefðu sagt um svona æfingar, allar í hlykkjum, þær, sem elskuðu svo mjög hinar þráðbeinu h'nur. Drottinn minn dýri. Ég hugsa, að þær hefðu hel/.t sagt, að þær væru frá þeim vonda. Það eitt hefði angrað þær stórum að vita gamlan nemanda sinn sitja hér í ró og næði. En ég sit nú ekki heldur í ró og næði. Allar heims- ins áhyggjur hvíldu á mínum ungu herðum. Tíminn búinn, biti framreiddur í borðsalnum. Hvað það er óþægilegt að heyra stelpurnar masa og hlæja allt í kringum sig, ' en vera sjálfur utanveltu. Þær halda víst, að það þýði ekkert að tala við mig. Þetta lagast bráðum, þegar ég æfist í þýzkunni. Þú horfir svo undrandi á mig. Hvernig gaztu vitað, að það mundi aldrei lagast, og hvernig gat staðið á því, að þýzku stelpurnar ætluðu sér auðsjáanlega að frysta okkur í hel eða flæma frá skólanum með þögn og afskipta- leysi. Oft hefur mér dottið þetta kynlega fyrirbrigði í hug, því að kynlegt var það. Já manstu nú í Danmörku. Þar voru allar stelp- urnar undantekningarlaust svo elskulegar, að á betra varð ekki kosið. Eða þá norsku, finnsku og sænsku stúlkurnar í Sigtúna. Finnskan var óskiljanleg, en ef ekki var hægt að tala, þá var alltaf hægt að brosa á Norðurlöndum. Nú, og kannske sunnar líka. En handa útlending norðan úr höfum áttu þýzku stúlkurnar hvorki bros né tal. Nú þykist ég að lokum skilja, livernig í því lá. Hér var erfiður tveggja ára skóli, og nú hafði kvísazt, að útlendingur ætti að fá að taka hann á 12 mánuðum. Óvíst, að þeim hafi verið skýrt frá því, að þessi óvelkomni gestur hafi stundað nám og kennslu samtals tvö ár áður en hann kom til þeirra. Líklega liafa þær komið sér saman um einhvers konar streiku", því að nýi 68 KMHI.A