ÍSLENZKARSKALDKONUR ii. BIRGITTA TÓMASDÓTTIR Birgitta Kalrín Tómasdóttir fæcklist 12. júní 1851. Foreldrar hennar voru síra Tómas Þorsteinsson á Brúarlandi í Skagafirði og kona hans, Margrét Þorsteins- dóttir prests Hjálmarssonar. Birgitta giftist nng að aldri Skúla Magnússen fiá Skarði í Dölum, en missti hann eftir nokkurra ára sambúð. Eftir dauða manns síns, bjó frú Birgitta á Akureyri ásamt sonum sínum, Tómasi og Kristjáni. Siðar fluttist hún til Reykjavikur. En þegar synirnir voru farnir að heiman, dvaldist hún á Seyðisfirði hjá bróður sínum, Larusi Tómassyni, föður Inga tónskálds. Þar andaðist hún 13. júlí 1913. Frú Birgitta var merk og mikilhæf kona, hljómelsk og söngvin og sk;íldmælt vel. Einna kunnast af ljóðum hennar mun vera Kvölds i bliða blevnum undir hinu gullfagra lagi Sigfúsar Einarssonar. Ingi, bróðursonur Birgittu, samdi og lög við kvæði eftir hana, og sjálf mun hún hafa samið nokkur lög. Hefur Embla í hyggju að afla sér nanari upplýsinga um þessa merku lista- konu. Kvæði þau, sem hér fara á eftir, sendi frú Birgitta vinkonu sinni, Ólínu Andresdóttur skáldkonu. liMBLA 73