Sigrún Gisladóttir FERÐASAGA Þegar ég var telpa austur á Eyrarbakka, heyrði ég oft sjómenn tala um, að þeir ætluðu áð skreppa út í Vog, það er Selvog, rétt eins og við börnin skruppum milli liúsa. Hafði ég því á tilfinn- ingunni, að þetta væri afar auðvelt. Svo fluttist ég til Reykjavíkur, og árin liðu, en aldrei komst ég í Selvoginn. Áætlun var gerð þangað á ári hverju, því að í Voginn vildi ég komast, þar sem hann var nú líka eina sveitin á Suður- landi, sem ég hafði ekki komið í. Mig langaði líka að sjá Strandar- kirkju, þetta Htla, einfalda guðshús, sem á orðið fúlgur fjár fyrir EMBLA 83