Guðrún GuÖlaugsdóttir: ÆSKUMINNING Það var árið 1903, að foreldrar mínir fluttust frá Hvalgröfum á Skarðsströnd að Dagverðarnesi í Klofningshrepp. Þetta ár geisaði kíghóstinn og varð mörgu ungbarni að bana. Systir mín, sem Kristín hét, var þá rúmlega hálfs árs. Hún dó úr kíghóstanum 13. maíþað vor. Það var fyrsta barnið, sem foreldrar mínir misstu, og minnist ég þess, að þau tóku sér þetta mjög nærri. En þrátt fyrir sorg og veikindi okkar liinna, varð móðir mín að sjá um flutninginn, því að faðir minn var kominn til Reykjavíkur til að sækja elzta barn sitt, Jónas, sem þá var kominn í Menntaskólann í Reykjavík, en átti nú að koma heim og dveljast með okkur um sumarið. 100 KMBLA