s N EMBLA FLYTUR RITVERK KVENNA í BUNDNU OG ÓBUNDNU MÁLI Kemur út einu sinni á ári Ritstjórar og dbyrgðarmenn: VALBORG BENTSDÓTTIR, Barónsstíg 25, Reykjavík KARÓLÍNA EINARSDÓTTIR, VíHlsgötu 10, Reykjavík VALDÍS HALLDÓRSDÓTTIR, Vin, Hveragerði Utandskrift: Ársritið Embla, Rcykjavik . Ritstfórnarsimar: 50S9 og 5211 Verð kr. 15.00 til dskrifenda og kr. 20.00 i lausasölu V ) ÚRSLIT VERÐLAUNASAMKEPPNINNAR í fyrsta árgangi Emblu var boðað til verðlaunasamkeppni um smásögu, sem frumsamin væri af íslenzkri konu, og var heitið 1000 krónum fyrir beztu verðlaunahæfu söguna. Alls bárust 9 sögur. Það var einróma álit dómnefndar, að sagan Drengurinn minn" skyldi liljóta umrædd verðlaun. Bar hún höfundarmerkið D" og reyndist vera eftir frú Ragnheiði Jónsdóttur í Hafnarfirði. Næstbezta taldi dómnefnd söguna Samt sem áður", og lagði til, að liún yrði einnig fengin til birtingar í Emblu. Var hún merkt K", og kom í ljós, að hún var eftir sama höfund og verðlauna- sagan. Aðrar sögur voru ekki taldar koma til álita um verðlaunin. Dómnefnd skipuðu auk ritstjórnar Emblu, Guðni Jórtsson mag. art. og dr. Steingrímur J. Þorsteinsson docent. EMBLA 111