Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Elding

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Elding

						Hagsmunamál

sendisveina.

Eins og þið vitið, þá er stétt

hér í bæ og öðrum bæjum, er

nefnist sendisveinastétt. Þessi

stétt hefir lægsta kaup af öllum

stéttum landsins. Sendisveinar eru

látnir vinna langt fram á nætur

og sagt að koma með fyrstu

mönnum í búðirnar á morgnana.

Sendisveinar hafa lágt kaup, þeir

hafa 50—75 kr. á mánuði. Ef

sendisveinar hefðu ekki foreldra

sína á bak við sig, þá gætu þeir

ekki lifað á kaupi sínu. Sumir

sendisveinar hafa varla nóg til

að borða, þeir eru í slitnum

klæðnaði og er alltaf kalt. Og

kaupmenn þeir, sem þeir vinna

hjá, banna sendisveinum að ganga

í nokkurt sendisveinafélag. Það

gera þeir vegna þess, að þeir vita,

að- sendisveinafélög starfa að því

að reyna að koma á kauphækkun

meðal sendisveina. Þessir maura-

púkar fylla heldur pyngjuna, en

að borga sendisveinum 1Q0 krón-

ur á mánuði.

Ég get gefið eitt dæmi, það er

ein fjölskylda hér í bæ, faðirinn

er atvinnulaus, konan liggur fyrir

dauðanum ög sonurinn þrælkar

hjá einum mesta maurapúka bæj-

arins. Þessi drengur hefir ekki

nema 40—50 kr. á mánuði, og

vinnur frá kl. 8 á morgnana til

kl. 8V2 á kvöldin, verður að skúra

gólfin og sendast með allar pant-

anirnar á slæmu hjóli. Svona

hafa kaupmenn það. Þeir kúga

þessa stétt undir sig. En vonandi

verður þessi stétt ofan á.

Eflið samtökin og gangið í

Sendisveinadeild Merkúrs, sem

berst fyrir hagsmunamálum ykk-

ar.               Gunnar Gunnarsson.

Pugflafræ

Nýkomið fyrir canarifugla, sel-

skapspáagauka og páagauka.

Laugavegs Apotek.

Verzlui&in. Visix*

Matvöruverzlun

Vaxandi viðskifti sanna, að þeir, sem   kaupa   nauðsynjar   sínar í

\ erzhminni „Vísir", fá beztar vörur  fyrir lægst  verð.

Gerið innkaup þar.

Sendisveinar Vísis eins og Elding  um  a 11 a  borgina.

FJÖLNISVEG  2.                       LAUGAVEG  1.

Sími  2555.                       ,              Sími  3555.

Hjálparsjóður

sendísveína.

Nýlega var á fundi í S. D. M.

stofnaður hjálparsjóður sendi-

sveina að tilhlutun Jóns Ólafs-

sonar. Enn hefir ekki verið sam-

in reglugerð fyrir sjóðinn, en það

mun bráðlega gert. Tilgangur

sjóðsins á að vera sá, að útvega

fátækum sendisveinum skjól og

hlífðarfatnað í hinu erfiða og vos-

búðasama starfi þeirra, og skal

þeirh annaðhvort lánað úr sjóðn-

um til slíkra kaupa til einhvers

ákveðins tíma eða þá veittur

styrkur úr honum. Sjóðurinn

hyggst að fá starfsfé sitt með

frjálsum samskotum sendisv'eina

sjálfra og þeim velviljuðum bæj-

arbúum. Gjaldkeri S. D. M., Ein-

ar Bjarnason, er jafnframt gjald-

keri sjóðsins og veitir móttöku

gjöfum í hann. Styrkið sjóðinn

og eflið samtökin.                K. Þ.

Skráning

atvinnulausra sendisveina.

Atvinnulausir sendisveinar!

S. D. M. hefir opna skrifstofu,

sém oft getur útvegað ykkur

pláss og þess er vænst, að þið

notfærið ykkur skrifstofuna, sem

opin er allan daginn á Lækjar-

torgi 1 og hefir síma 4292.

Sendisveinum daglega útveguð

atvinna.

Ábyrgðarmaður:

Friðrik  Sigurbjörnsson.

Prentsmiðjan Acta.   -

Kaupið  og notið Álafoss-föt.

-Á-l a. f o s s

Þingholtsstræti 2.

esmmmmammmmmmammmmmmmmmmm

Krisfján Guðmundsson

er einn þeirra manna, sem stétt

sína hefir svikið, og gengið á mála

hjá olíuauðvaldi bæjarins. Það

mun sannast hið fornkveðna, „að \

sér grefur gröf þó grafi", um

þenna ungling, sem gekk úr

Sendisveinadeild Merkúr og vóg

þar með af tan að samtökum stétt-

ar sinnar á svívirðilegan hátt.

Annars mega þessir ungu

menn, sem undir fölsku flaggi

sigla nú og þykjast vinna að

samtökum stéttar sinnar í S. F.

R:; en eru sem afturgengnir

dráugár með rýting í hendi, að

læðast að baki Sendisveinadeildar

Merkúr, eina stéttarfélags sendi-

sveina í Reykjavík, vita það, að

S. D. M. lifir og eflist, en S. F.

R'; er andvana fætt.                A.

wfmmmmm.....—— wmmmmmmmÉmmm

Maðiirinn með 19 atkvæðin

er Sigurður Jóhannsson fra

Brautarholti almennt kallaður síð-

an hann var „kosinn" formaður

í Heimdalli á fjölmennum aðal-

fundi í félaginu, þar sem! mættir

voru 22 „meðlimir" af þeim 800,

sem skráðir eru í bækur félags-

ins.- Mun eiga að taka þessa ráð-

stöfun þannig, að Heimdallur eigi

að deyja, eins og öll önnur félög,

sem Sigurður hefir komið nálægt,

samanber „Mjöll" í Borgarnesi og

„Merkúr".                 Blástakkur.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4