ENDAJAXL 18. Kleppur (belja í andaheimum). 19. Bóki (geldhani). 20. Gásbjörn (asni, eyrbeskur). 21. Jóli (sæhestur). 22. Knuzi (óborgaður afsláttarhest- ur). Moggastöðum, 30. okt. Anno 1930. Oki Berlimsson. Fiföurleg birting. til Árna Árnasonar frá Höfðahólum. Nú er svo komið, Árni minn, að eg er orðinn ritstjóri eins og Tryggvi vin- ur minn og fleiri. Mér finst því mál til komið að lækka rostann í þér eins og öðrum kjapta- skúmum Danska Mogga. 1 Mogga ger- ir þú einu sinni að umtalsefni, samúð Tímans og Alþýðublaðsins, og nefnir það blíðubrögð. Ekki er nú svo að skilja, að eg haldi að Tryggvi og Hallbjörn geti ekki svai'að fyrir sig, en það er nú svoleiðis, að þegar andinn kemur yfir mig, þá skamma eg það sem ábótavant er í þjóðfélaginu. J>ú talar um það í Mogga, hvað skringileg séu læti katta, er þeir séu breima; þetta get eg vel skilið, enda munu kettir og önnur slík kvikindi haf a verið aðalbústofn þinn, og ef dæma skal eftir afkomu þinni í búskapnum, þá hef- * ir þú víst haft nægan tíma til slíkra athugana. Eg lái þér því ekki þó þú leitaðir þér betri atvinnu en'að ganga 'á mála hjá Fenger og Berleme, það hefði eg seinast gert; þú ert líka sjá- Iegur eða hitt þó heldur, þegar þú veð- jur áfram á gulu skyrtunni og í gömlu gráu fötunum með 20 ára gamla sko á fótunum, og með Engeyjar-Björn á hælunum, þvaðrandi um Viðeyjarfisk og annað því um líkt, sem þú hefir ekk- ert vit á. Hvern fjandann ætli þú hafir vit á þorski, þú sem aldrei hefir m.... í salt vatn, nei, Árni minn, annað mái væri þó eg ritaði um slík málefni, því þar er eg þér vitrari eins og í fleiru. Eg, sem er mesti og glæsilegasti rit- stjóri þessa lands, vil nú miskunna mig yfir þig, og bíð þér hérmeð að vinna á skrifstofu Harðjaxls" við afgreiðslu- störf eða annað þvíumlíkt. Geta vil eg þess, að ekki mega starfsmenn blaðsins fara á fyllirí, ekki liggja í delerium tremec" og vera sem minst á privatinu á Skinnastöðum. Að síðustu vil eg alvarlega vara þig við að reyna að svara grein minni, því þá mun eg ekki rétta þér hjálparhönd framar og þá kveð eg þig alveg í kút» inn ásamt Fjólesen & Moðhaussen. Annars hefir síra Tryggvi vinur minn og collega sagt mér, að Berléme ætli að slagta þeim um áramótin og ætlaði eg því að láta greyin í friði. FRUMVARP til reglugerðar um kattahald í Gríms- staðaholtsborg. 1. gr. 1 Bæjarstjórn hefir yfirumsjón með kattahaldi í bænum og má enginn hafa kött á kaupstaðarlóðinni neroa bæjar- stjórn samþykki með 4/5 hlutum greiddra atkvæða leyfisbeiðni þar að lútandi.