Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Oddur

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Oddur

						ODDUR

Jónas segir. En hvaðsegjaverkakarlarnir«. Þá

segi eg bara og reiði stafinn: Jónas gleypti

hvalinn og hann gleypir okkur líka ef við

látum hann ekki ráða með, en verkallana;

við látum Gvönd smala fara út með ösku-

fötu frá Maríu mey & Co. og sá ösku í aug-

un á lýðnum og sjá þeir loka nokk áugum

og hlýða. Annars skal eg segja ykkur það,

góðir • flokksmenn, að hann Flix er eg mest

í vandræðum með af öllu, hann rétt teimist

með eins og taumþungur húðarjálkur frá

Kristófer Grímssyni. Eg verð altaf að hafa

eitthvað framundan nefinu á honum sem

hann langar í og eg lofa ekki að hann fái,

en neita heldur ekki. Svo þegar eg læt ann-

an fá það, þá barf eg að hafa eitthvað nýtt

á takteinum handa honum að lykta af. Þetta

tekur á taugarnar. Jæja, góðir hálsar. Það

skai verða fyrirmyndar /þetta jaxlaþing. 0,

hvað eg hlakka til að kvelja minni hlutann,

beita hann rangindum. Húrra! húrra! í nafni

réttlætis, jafnréttis, friðar og kærleika. Húrra!

Oddur Sigurgeirsson

af Skaga,

ritstjóri margra blaða, höf. margra bóka.

Oddur Sigurgeirsson,

bæjarmálapólitíkus.

Palladómar

um  hina  útvöldu fulltrúa hins

íslenska  verkalýðs.   Amen.

Mússulini er forseti verkamannanna á ítalíu,

Stauning í Danmörku, en á íslandi eru tveir,

eg sjálfur, Oddur Sigurgeirsson formanns-

sonur af Skaganum, yfir Harðjaxlflokknum,

og Jón Baldvinsson yfir Alþýðuflokknum. I

mínum flokk eru góðir og harðvítugir karlar,

en Jón segir að í sínum flokk séu slúbbertar

og bullur. Hjalti Jónsson framkvæmdarstjóri

bauð mér á þingið, sagðist hann eiga þar

svo marga fulltrúa, að ekki mundi verða þar

mikið við mér amast. Eg var því á þinginu

sem gestur Hjalta vinar míns, en ekki í boði

Jóns Baldvinssonar kollega míns. Eg nötaði

vel tímann, þar sem eg hvorki hafði mál-

frelsi né tillögurétt og skrifaði upp þessa

palladóma sem hér fara á efrir.

Eg   er   maður   skygn  með afbrigðum,   eg

sé bæði  anda  dauðra og lifandi manna sem

áhrif hafa á  þá menn, er eg horfi á, og um

leið   sé   eg  inn í hugskot þeirra og les eins

og  á  bók fyrirætlanir þeirra sem fyrir áhrif-

unum   verða.   Þetta mun heita á vísindamáli

Spírisósahriflismus. Eg geri ekki ráð fyrir að

mér vinnist  tími   til að lýsa öllum fulltrúum

nákvæmlega.   Þeir   voru   svo  margir.   Háttv.

kollega   minn,   Jón   Bald.,   sagði   í  þingsetn-

ingarræðu sinni að þeir væru of margir, þeir

væru   að   vaxa   sér   yfir   höfuð,   en  við mig

sagði  hanh.   í   þingveislunni,   að   sig vantaði

múla   (múlbeysli)   á   alla   þessa   hausa,   hann

meinti þöngulhausa, því hann hló þeg"ir hann

nefndi hausa;  það er líka óþarfi að lýsa öll-

um þingmönnum á þinginu. Það er nóg að taka

það f kippum og þá verð eg að hafa það eins

og við höfðum það í gamla dagana sjómenn-

irnir, eg Oddur Sigurgeirsson, Stjáni blái og

Sæmundur sífulli, að þegar við vórum búnir

að   draga   allan   aflann   upp   á   seiluólar,   þá

gerðum   við   það   stundum  til að sýna hvað

við værum  fengsælir að.benda á helstu gol-

þorskana og stórýsurnar og þá urruðum vér

um leið og vér prófuðum.

' Þá   byrja   eg.   Eg tek silfurbýantinn minn

upp úr vasanum — eg keypti hann hjá Pétri

Halldórssyni daginn sem hann til að styrkja

vora   göfugu   reglu greiddi atkvæði með því

að   menn   mættu   drekka áfengi við hátíðleg

tækifæri.   Vasabókin mín er í skinnbandi og

keypti   eg   hana   í   fyrra   norður  á Akureyri

hjá   Þorsteini   Metúsalem,   sem  Jón   kollega

minn   Baldvinsson  ætlar að bjóða fram fyrir

alþýðuflokksþingmann þar norðurfrá á næsta

hausti.

Svo byrja eg — sný mér að fyrsta gol-

þorskinum, kollega mínum Jóni Baldvinsson.

Poliska skoðun hans er sósastaunhriflismi.

Hann mun vera ættaður úr Þórnesþing, dvaldi

lengi á ísafirði, eins og Haraldur hinn munn-

ræpi. Hann var ekki bráðgjör í æsku, hvorki

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4