Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Oddur

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Oddur

						O D D U R

að afli né visku né líkamsstærð, en eftir því

sem aldur færist nær ráðherrastóli (það er

æðsta takmark allra sósukrathriflista) vex

honum viska og líkamsstærð — hvorutveggja

á þverveginn.

Oddur   Sigurgeirsson,

Candidatus Bolsevicc.

»Aldrei skal eg gefast upp,

neí, nei«.

Eg þykist vita að flestir hafi álitið að eg

hefði fyrir fult og alt dregið mig út úr stjórn-

málum og blaðaskömmum. Ekki neita eg því

heldur, að mér hafi dottið slíkt í hug; því

löngum flökrar mér við svo örgu skarnverki

og þar sem mér bauðst í vetur sæmilega

launuð staða suður á Madagascar, þá lá við

að eg freistaðist til að bregða mér suður

fyrir miðjarðarlínuna, herti það líka heldur á

mér, að Jón Þorláksson sagði mér að hún

ætti nú heima á Reunion sú litla svarta 15

ára sem Sveinbjörn Egilsson hitti á hótelinu

í Calcutta. En ættjarðarástin vann að lokum

sigur á allri útþrá, enda dró það líka úr mér,

að eg frétti að eg ætti að verða Trylle-

kúnstner sem er sama sem Sisyfusar atvinna.

Er svo ekki að orðlengja þetta meir, eg hefi

aftur snúið mér að ritmenskunni, nafni minn

að koma útmánaðarlega sem landsblað Harð-

jaxlflokksins, verður stefna hans mörkuð sam-

kyæmt þeirri gomlu stefnuskrá sem áður var

prentuð, en sem á þessu nýja ári þarf að

endurprentast og breytast í anda þeirrar af-

sláttar politicur sem vér höfum ákveðið að

drífa framvegis hér á landi. Svo þarf eg að

koma nokkrum nýjum lagagreinum í bálk-

inn, t d. um útrýming alls fiðurfénaðar, útrým-

ing þessi verður að skoðast nauðsynleg, ekki

sökum þess að flokk mínum sé persónulega

illa við þetta fé, nei, heldur er það vegna

smrthættu sem kom svo greinilega fram við

síðasta   landskjör.   Eg   þykist   vita   að   mót-

stöðumenn flokks míns telji þessa afstöðu

vora til áðurgetins fénaðar, benda til þess að

seppaeðli sé með oss þar sem vér leggjumst

á garðinn þar\sem hann er lægstur. En auð-

vitað fer blað þetta sínu .fram hvað svo sem

aðrir segja. Nafn blaðsins skiftir engu máli,

en rett er að geta þess, að nokkur ágreining-

ur varð um það meðal framkvæmdastjóra

flokksins. Sumir vildu að það héti Gamli

Skjóni, en eg sem oddamaður, forseti og rit-

stjóri neytti réttar míns og ákvað að það

skyldi heita í höfuðið á sjálfum mér og féll-

ust flestir á það að lokum. Einn mótorbátur

hefir verið látinn heita í mitt rauða höfuð.

Það þótti mér of lítið og fékk Jón Ól. til þess

þess að lofa mér því, að láta næsta trollara

heita í höfuðið á mér.

Sumir samborgarar mínir og aðrir, munu

álíta ofdirfsku af mér á gamals aldri, að ráð-

ast í útgáfu þessa nýja blaðs, og þessi mín

viðleytni muni enda með skelfingu og skulda-

súpu. — Slíkur spádómur er mjög eðlilegur;

reynslan hefir svo oft sýnt þvílík endalok.

Eg hefi góða trú á þessu mínu fyrirtæki. Og

þar sem eg er gamall og reyndur blaðamað-

ur rithöfundur og búinn að hlaupa af mér

hornin, sem aldrei voru nein, þá er mér ekki

eins hætt við háskalegu gönuhlaupi, sem

»þeim ungu« er ætla sig skáld eða eitthvað

annað mikið, af »Guðs náð«. Þótt aldrei

nema fjárhagur minn sé bágur og eg hafi

nærri verið farinn að »klæða jólaköttinn«, þá

er ekki aðaltilgangur minn að raka saman

auði. Það sem rak mest á eftir mér, var sú

þörf sem eg lengi hefi séð að er hér á landi

fyrir hlutlaust búnaðarblað fyrir alþýðu þessa

lands og sem ræðir málefni bæði Bolsa og

Burgeisa á réttum grundvelli með glöggum

skilningi á réttlátum kröfum og sjálfsagðri

tilhliðrunarsemi.                                    (Framh.)

Oddur   Si g urgeirsson

af Skaganum.

Áb y r g ð ar m a ð ur:   S.   Sigurþórsson.

Prentsmiðjan  Acta  -   1927

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4