Nýtt kvennablað - 19.06.1940, Blaðsíða 10

Nýtt kvennablað - 19.06.1940, Blaðsíða 10
6 NÝTT KVENNABLAÐ ar, sem er í því fólgið, að koma unglingunum að vinnu. Fylgist hún síðan með þeim þar til þeir eru fullra 18 ára að aldri. Það ræður að líkum, að skrifstofan stendur einnig í sambandi við lieimili ungmennanna. Þykir þetta fyrirkomulag hafa gefizt mjög vel, enda má telja vafalaust að mörg þessara ung- menna gætu ekki séð sér farborða í lífinu á lieið- arlegan hátt, án þessarar lijálpar í upphafi. Þó telst svo til, að um 2f0 af vangefnu unglingun- um lendi að síðustu í fávitahælum og þaðan eiga þeir sjaldan afturkvæmt. Er því alt reynt, sem hugsanlegt er, til að koma í veg fyrir svo dapurleg málalok. Það er eftirtektarvert, að starfslið þessara skrifstofa er allt konur. Þykja þær gleggri á sál- arlíf unglinga, heldur en karlar. Hér í Reykjavík starfar Barnaverndarnefnd í nokkuð líka átt og framangreindar skrifstofur, en starfssvið hennar virðist þó þrengra og nær því skemmra. Barnaverndarnefnd er ekki skip- uð konum eingöngu. Vafalaust væri það þjóðfélaginu mikill ávinn- ingur, ef t. d. Reykjavíkurbær sæi sér fært að reka svipaða starfsemi og þá, er lýst hefir verið, fyrir þau ungmenni, sem lielzt kynnu að þurfa hjálparinnar við. Engan skyldi furða þótt ár- angurinn yrði sá, að því er stúlkur snerti, að færri sættu þeim ámælum, sem undanfarið hafa dunið á ungmeyjum þessa bæjar. Fáfræði og sakleysi er nefnilega ekki eitt og hið sama. J. Þ. Minningarrit um Bríetu Bjarnhéðinsdóttur ætlar Kvenréttindafélag Islands bráðlega að gefa lit. Verður þar ítarlega minnst æfi þessar- ar stórmerku konu og starfs liennar fyrir ís- lenzkar konur fyrr og síðar. * Ungfrú Sigrún Briem lauk nýlega embættisprófi úr læknadeild Háskóla íslands. * Akuryrkja er ein af eiztu atvinnugreinum mann- kynsins, en hana hafa konur jafnan stundað eigi síður en karlar. Elinborg Lárusdóttir skáldkona Frú Elinborg Lár- usdóttir er Skag- firðingur. Hún skrifar sína fyrstu sögu, „Stjáni“, 1932, en fyrstu bók sína, „Sögur“, gefur hún út 1935. Eg hefi lokið við að lesa siðara hefti „Föru- menn“ Elinhorgar Lárusdóttur. Full þakklætis lolca eg bókinni, og strýk tár af hvarmi. Þetta er ættfólk mitt, alþýðufólk, sem höf. lýsir af svo miklum kærleika, að eg kemst við, og svo mikl- um næmleik að við Iieyrum andardrátt allra þessara ólíku söguhetja. Bókin er öll smá leikþættir, en þó óslitin heild, og við lifum í jafnri eftirvæntingu. Frásögnin er öll eins og töfraþráður, sem leikur í liendi, en baugar renna eftir þræðinum í lófa lesandans. í grænni lautu þar geymdi eg hringinn, sem mér var gefinn og hvar er liann nú? Fögnuður grýpur lesandann oft óvænt, því förumennirnir gera ekld boð á undan sér: „Það er birtan og blíðan og hæirnir alt um kring,“ segir gamla konan, og varpar leiftri sinna eldhvössu augna á Þórgunni. Þórgunnur Iiorfir á móti. Hún hefir aldrei fyrr litið svona forneskjulega, svona eldgamla og hræðilega skorpna og hrukkótta konu; aldrei svona ungleg, fjörleg augu i jafn gömlu andliti: „Hvað heitir konan?“ spyr Þórgunnur. „Katla heiti eg. Eg er gamla kærastan hans Péturs söngs. Pétur sveik mig, óhræsis ræksnið að tarna.“ „Pétur var nú ekki við eina fjöl felldur“. Sagan gerist fyrir norðan. Eg ldakka til næstu bókar. Guðrún Stefánsdóttir. NÝTT KVENNABLAÐ Kemur út mánaðarlega frá október—maí, — 8 sinnum á ári, — fellur niður sumarmánuðina. Gjalddagi í október ár hvert. Verð árg. kr. 3,25 Afgreiðsla: Fjölnisveg 7. Utanáskrift: Nýtt kvennablað, Pósthólf 613, Reykjavík. Guðrún Stefánsdóttir, Ritstjórar Sími 2740. „ María J. Knudsen, " Framnesveg 32. utgefendur Jóhanna Þórðardótlir, Simi 4744.

x

Nýtt kvennablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.