Morgunblaðið - 23.07.2009, Blaðsíða 36
36 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 2009
HAFDÍS Pálsdóttir píanóleik-
ari leikur á tónleikunum Sum-
ar í Hömrum á Ísafirði í kvöld
kl. 20. Hafdís, sem er Ísfirð-
ingur, lauk B. Mus.-prófi frá
Listaháskóla Íslands í vor. Áð-
ur stundaði Hafdís nám við
Tónlistarskóla Ísafjarðar og
lærði þá á píanó hjá Beötu Joó
og á selló hjá Janusz Frach.
Haustið 2003 komst hún í úrslit EPTA-píanó-
keppninnar á Íslandi. Í Listaháskólanum var Pet-
er Maté aðalkennari Hafdísar, en skólaárið 2007-
2008 var hún skiptinemi við Tónlistarháskólann í
Kristiansand í Noregi. Á efnisskránni verða verk
eftir Dussek, Pärt, Rachmaninoff og Grieg. Að-
gangur ókeypis.
Tónlist
Dussek, Pärt og
Grieg í Hömrum
Ísafjörður
FJÓRÐU tónleikarnir í röð há-
degistónleika í Dómkirkjunni í
sumar verða í dag. Þá koma
fram þær Guðný Einarsdóttir,
organisti Fella- og Hólakirkju,
og Svafa Þórhallsdóttir söng-
kona. Með þeim leikur einnig
Jón Hafsteinn Guðmundsson
trompetleikari. Guðný spilar
fyrst fjölbreytt og lítríkt verk,
Annum per annum, eftir eist-
neska tónskáldið Arvo Pärt. Þá mun Svafa syngja
nokkur íslensk þjóðlög, rómantískar söngperlur
eftir César Franck, Verdi og Lloyd Webber, og
hið sívinsæla lag „Ave María“ eftir Sigvalda
Kaldalóns. Skemmtileg og aðgengileg tónlist-
arstund sem hefst kl. 12.15.
Tónlist
Hádegistónar
í Dómkirkjunni
Guðný Einarsdóttir
HIPPABALL fyrir
45 ára og eldri verður
haldið á Ketilási í
grennd við Siglufjörð
á laugardaginn. Þar
kemur fram hljóm-
sveitin Stormar og
leikur tónlist frá gull-
aldarárum hippakyn-
slóðarinnar. Gleðin hefst kl. 22 með gjörningi á
túninu við Ketilás. Ballið var fyrst haldið í fyrra.
Einnig verður haldinn sveitamarkaður frá kl. 14 til
17 þar sem seldur verður ýmiss konar varningur,
s.s. hippamussur, harðfiskur og hákarl. Skráning á
markaðinn er í síma 618-9295 eða margret.tr-
@simnet.is. Þá verður einnig málverkauppboð til
styrktar Þuríði Hörpu frá Sauðárkróki.
Tónlist
Hippaball á Ket-
ilási á laugardag
Hjómsveitin Stormar.
Við höfum bara
þurft að vinna enn
meira í því en áður að
kreista hvern einasta eyri
út úr öllum … 38
»
ÞJÓÐARLISTASAFNIÐ breska,
National Gallery í London, und-
irbýr nú sérstaka sýningu sem opn-
uð verður á næsta ári. Þar verða
sýnd fölsuð málverk og verk sem
hafa verið eignuð öðrum en þeim
sem málaði. Með sýningunni er ætl-
unin að varpa ljósi á það hvernig
vísindin hafa verið nýtt til að koma
upp um mistök, svik og pretti.
Fjöldi málverka, sem annaðhvort
hafa verið vísvitandi fölsuð eða
ranglega eignuð þekktum mál-
urum, hefur verið rannsakaður af
vísindamönnum sem hafa getað
ljóstrað upp sannleikanum um upp-
runa þeirra. Aldursgreining þeirra
efna sem notuð eru í málverkinu
skiptir þar höfuðmáli.
En stundum horfa málin öðruvísi
við. Eitt verkanna sem sýnt verður
á sýningunni er Madonnan með
drottningarblómið. Málverkið var
talið fölsun á verki eftir Rem-
brandt, en við nánari skoðun vís-
indamanna kom í ljós að verkið var
eftir hann.
Madonna Verkið er eftir Rem-
brandt, en var lengi talið falsað.
Vísindin
afhjúpa
Sýna falsanir og
rangfeðruð verk Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„FYRIRTÆKIÐ sem á núna lóð-
irnar við Laugaveg og Frakkastíg,
Vatn og land, vill halda samvinnunni
áfram sem lagt var af stað með, og
byggja Listaháskólann þar,“ segir
Hjálmar H. Ragnarsson, rektor
Listaháskóla Íslands.
Allt frá því að hrunið varð í haust,
hafa málefni húsbyggingar Listahá-
skólans verið í biðstöðu, en Hjálmar
er vongóður um að nú fari að rofa til
og það takist að fjármagna verkið.
„Vatn og land hefur verið að
kynna verkefnið fyrir lífeyrissjóð-
unum, sem hafa sýnt áhuga á því að
fjármagna það. Þetta er góð fjár-
mögnun, ef ríkið stendur við sitt.“
Niðurstöðu skipulagsráðs beðið
Listaháskólinn samdi við mennta-
málaráðuneytið á sínum tíma um ár-
leg framlög til hússins, og segir
Hjálmar það næstu skref að fá það
staðfest að samningurinn við ríkið
haldi, þar sem nú sé nýtt fólk við
völd. Þá eigi eftir að afgreiða málið
frá skipulagsráði Reykjavíkur. „Við
höfum fengið fyrirheit frá borgar-
stjóra og forystumönnum í skipu-
lagsráði um að breytingar sem gerð-
ar voru á teikningum hússins verði
til þess að styðja verkið.“
Hjálmar segir að í breytingunum
felist að nú verði tveimur húsum af
þremur við Laugaveg hlíft og að
Frakkastígsmegin verði húsið
minna en til stóð.
Listaháskólinn gerði á sínum tíma
samning við Samson Properties um
skipti á lóðum, SP fengi lóð sem
skólinn hafði vilyrði fyrir í Vatns-
mýrinni, en Listaháskólinn lóðirnar
á horni Laugavegar og Frakkastígs.
SP hugðist byggja húsið, eiga, og
leigja Listaháskólanum, en samn-
ingurinn við ríkið átti að duga fyrir
húsaleigunni. „Vatn og land á nú
þennan samning og tengslin við
Björgólfsfeðga hafa verið rofin.
Sveinn Björnsson, forstjóri Novator
Properties, sem á Vatn og land, hef-
ur rætt við borgarstjóra og gert
honum grein fyrir nýju eignarhaldi
fyrirtækisins,“ segir Hjálmar.
„Listaháskólinn hélt sig til baka
meðan ekki var ljóst hvað um samn-
inginn yrði, og auðvitað hafa hug-
myndir um aðra staðsetningu verið
ræddar. Skólinn lét á sínum tíma
kanna möguleikann á byggingu við
tónlistarhúsið við Austurhöfn, og sú
rannsókn leiddi í ljós að bygging þar
myndi ekki henta skólanum. Upp-
haflegu áformin um byggingu skól-
ans við Laugaveg standa.“
Áform um byggingu Listaháskóla Íslands við Laugaveg og Frakkastíg ganga eftir
Morgunblaðið/Sverrir
Listaháskólinn Starfar á þremur stöðum, meðal annars við Sölvhólsgötu.
Í HNOTSKURN
» Þrotabú Samson eign-arhaldsfélags á hlut í
Novator Properties. Unnið
er að endurskipulagningu
NP. Félagið Samson Proper-
ties, í eigu NP, samdi við
Listaháskólann um lóða-
skiptin og bygginguna. Með
endurskipulagningu NP heit-
ir Samson Properties Vatn
og land.
Lífeyrissjóðir sýna
fjármögnun áhuga
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„GUNNAR var brautryðjandi í því
að koma gítarleik á legg á Íslandi og
starf hans hefur verið ómetanlegt,“
segir Arnaldur Arnarson gítarleik-
ari, en hann og Kristinn H. Árnason
gítarleikari halda tónleika í Kaup-
angskirkju í Eyjafjarðarsveit á laug-
ardag kl. 17 til að heiðra Gunnar H.
Jónsson gítarkennara sinn, sem varð
áttræður fyrr á árinu.
„Gunnar lærði á fiðlu á sínum tíma
og seinna líka á gítar og heillaðist af
honum. Hann kynnti sér klassíska
gítarinn vel sem var óþekktur á Ís-
landi í þá daga. Gítarleikarinn frægi
Andrés Segovia kom til Íslands á
vegum Tónlistarfélagsins 1958 og
það var Gunnari mikil hvatning að
geta sagt: „Sjáiði bara!“
Byggði upp sterka gítardeild
Gunnar varð einn af stofnkenn-
urum Tónskóla Sigursveins 1964 og
byggði þar upp sterka gítardeild og
mikinn áhuga á gítarleik. Þegar
hann sá áhuga hjá nemendum sínum
ræktaði hann áhugann af mikilli
natni. Gítardeildin hans fékk á sig
þann stimpil að vera aðalgítardeildin
í Reykjavík, því það var ekki kennt á
gítar annars staðar þar til Eyþór
Þorláksson kom heim og fór að
kenna. Það skapaðist mikil stemning
kringum Gunnar og gítardeildina.
Hann fylgdist vel með því sem gerð-
ist úti í heimi og varð sér úti um upp-
tökur sem hann sýndi okkur.“
Gunnar fluttist síðar til Akureyrar
og hélt áfram kennslu við Tónlistar-
skólann á Akureyri til starfsloka.
Arnaldur og Kristinn ætla að spila
dúetta frá Englandi, Kúbu og Spáni,
en flestum verkunum kynntust þeir
einmitt í tímum hjá Gunnari.
Arnaldur Arnarson og Kristinn H. Árnason spila gítardúetta
Heiðra kennara sinn
Gunnar H. Jónsson
Ljósmynd/Hallgrímur Arnarson
Gítarleikarar Arnaldur Arnarson og Kristinn H. Árnason lærðu báðir hjá
Gunnari og heiðra hann með tónleikunum í Kaupangskirkju á laugardag.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
TÓNLISTARHELGIN í Skálholti
hefst í kvöld kl. 20, með tónleikum
þýsk-íslenska hópsins Adapter.
Hópinn skipa nú Kristjana Helga-
dóttir flautuleikari, Gunnhildur Ein-
arsdóttir hörpuleikari og Matthias
Engler slagverksleikari, en með
þeim í föruneyti verður U3 bar-
rokktríóið frá Berlín.
Efnisskrá tónleikanna er sérstök,
því þótt verkin séu öll ný, þá tengj-
ast þau öll tónskáldinu ítalska Giro-
lamo Frescobaldi, sem uppi var á
fyrri hluta 17. aldar, og tónleikana
kalla þau Al fresco. Gunnhildur Ein-
arsdóttir er talsmaður hópsins.
Gömul hljóðfæri með nýjum
„Adapter vinnur náið með félagi
ungra tónskálda í Berlín og við höld-
um með þeim ferna tónleika á ári
þar. Við höfum oft haft þema, og þar
sem við vildum fá barrokktríóið U3
til liðs við okkur og blanda saman
nýjum hljóðfærum og barrokkhljóð-
færum, þá datt okkur í hug að nota
tónlist Frescobaldis. Hún er ómstríð
og krassandi og tónskáldunum
fannst gaman að glíma við hana.“
Tónskáldin fjögur fengu al-
gjörlega frjálsar hendur um það
hvernig þau nýttu tónlist Fresco-
baldis í eigin verkum. „Nýju verkin
fjögur eru skemmtileg, mjög ólík, og
mér finnst þau öll skapa skemmti-
legan hljóðheim. Þessi óvenjulega
hljóðfærasamsetning býður líka upp
á mikla liti og fjölbreytileika.“
Tónleikarnir verða endurteknir
kl. 15 á laugardag, en kl. 17 á laug-
ardag leikur U3 tríóið eitt. Á sunnu-
dag kl. 15 leikur Long Island Youth
Orchestra í Skálholti.
Góð blanda af
gömlu og nýju
Flytja ný verk sem öll tengjast ítalska
endurreisnartónskáldinu Frescobaldi
Adapter Al fresco í Þýskalandi.