Morgunblaðið - 08.08.2009, Blaðsíða 30
30 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2009
✝ Guðrún Sig-urbjörg Stef-
ánsdóttir fæddist á
Gestsstöðum við Fá-
skrúðsfjörð 26. júlí
1934. Hún andaðist á
Heilbrigðisstofn-
uninni á Blönduósi 2.
ágúst sl. Foreldrar
hennar voru Stefán
Sigfússon, f. 25.11.
1908, d. 15.4. 1941, og
Kristín Einarsdóttir, f.
16.11. 1906, d. 26.11.
1984. Systir Guðrúnar
er Kristjana, f. 8.10.
1936. Guðrún ólst upp á Kappeyri
við Fáskrúðsfjörð frá 1941 með móð-
ur sinni og systur hjá móð-
urbræðrum sínum. Hún var við nám
í Húsmæðraskólanum á Hallorms-
stað veturinn 1950-1951 og útskrif-
aðist þaðan með mjög góðan vitn-
isburð.
Guðrún giftist Jóhannesi Stefáni
Jósefssyni 1953 og bjuggu þau í
Draumalandi á Búðum við Fá-
skrúðsfjörð, þar starfaði hún við
fiskvinnslu og saumaskap, ásamt því
að sjá um stórt heimili. Árið 1970
fluttu þau til Sauðárkróks, þar starf-
aði hún við fiskvinnslu. Guðrún og
arson, f. 1950. Börn hennar eru a)
Kristrún Sif, f. 1979, gift Erik Han-
sen, f. 1976. Synir þeirra Atli Rafn
Logason, f. 1997, og Liam Úlfur, f.
2007. b) Björgvin Huldar, f. 1979. c)
Marteinn Svanur, f. 1985. 5) Krist-
jana Stefanía, f. 22.12. 1961, gift Jóni
Gíslasyni, f. 1959. Börn þeirra Þröst-
ur Gísli, f. 1987, sambýliskona Krist-
björg Ósk Svavarsdóttir, f. 1986,
Valur Stefán, f. 1991, Örn Smári, f.
1999. Fóstursonur þeirra er Ingólfur
E. Skarphéðinsson, f. 1974, dóttir
hans er Snædís Eir, f. 2006. 6) Jósep
Svanur, f. 4.12. 1963, sambýliskona
Bylgja Gunnlaugsdóttir, f. 1966.
Börn þeirra: a) María Guðrún, f.
1988, gift Haraldi M. Traustasyni, f.
1983, dóttir þeirra Birgitta Sól, f.
2008. b) Íris Arna, f. 1987. c) Thelma
Sif, f. 1994. 7) Dagbjört Elva, f. 4.2.
1973. Sonur hennar er Natan Ingi, f.
2006.
Guðrún giftist árið 1980 Stefáni
Leó Holm, f. 22.11. 1930. Börn hans
af fyrra hjónabandi eru Fanney,
Pálmi, Bogi, Linda, Grímur, Eygló
og Anna. Fyrstu árin bjuggu þau á
Sauðárkróki, Stokkseyri og Reykja-
vík, en fluttu á Blönduós 1985, þar
starfaði hún við heimilishjálp, á
prjónastofu og við aðhlynningu á
Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi.
Guðrún var snillingur í höndunum
og léku allar hannyrðir og sauma-
skapur í höndunum á henni.
Útför Guðrúnar verður gerð frá
Sauðárkrókskirkju í dag, 8. ágúst,
kl. 14.
Jóhannes slitu sambúð
1979. Börn þeirra eru:
1) Einar, f. 22.8. 1953.
2) Erlingur, f. 11.8.
1955, sambýliskona
Hafdís B. Sigurð-
ardóttir. Börn hans
eru a) Aðalheiður
Kristín, f. 1977, gift
Myron Bradley. Börn
þeirr eru Anton Már
Þorbjörnsson, f. 1995,
Joshua Alexander, f.
2001, Jerimiah Cristi-
an, f. 2002, og Stefan
Tyrees, f. 2004. b)
Erla Björg, f. 1981. 3) Elín Kristín, f.
30.7., 1956, gift Hirti B. Ingasyni, f.
1952. Börn þeirra: a) Jóhannes Ingi,
f. 1975, kvæntur Þorbjörgu Ó. Jón-
asdóttur, f. 1979. Börn þeirra eru
Sævar Ingi, f. 1995, Halla Margrét, f.
2002, Hulda Guðrún, f. 2004, og Guð-
mundur Hlífar, f. 2006. b) Rúnar, f.
1970, sambýliskona Lilja Sigurð-
ardóttir, f. 1981. Dætur þeirra Jó-
hanna Vordís, f. 1999, og Eva María,
f. 2003. c) Inga Rut, f. 1981, sam-
býlismaður Kristján A. Guðjónsson,
f. 1981. Dóttir þeirra Elín Ylva, f.
2008. 4) Soffía Amanda, f. 15.6. 1959,
sambýlismaður Ólafur Ingimund-
Ekki er auðvelt í fáum orðum að
meta móður mína en hún var Fá-
skrúðsfirðingur í húð og hár.
Hún treysti mér og Ellu alveg
fyrir systkinum okkar þegar það
átti við, þótt við værum börn líka
þá, um 1965, en nokkru eldri, níu
til tíu ára. Ekki vildi ég bera þessa
ábyrgð í dag á þessum aldri. Öll
síldarárin, 1963-1968, vann hún á
plönunum og hjálpuðum við Ella til
við það, – fengum að raða niður í
tunnur eftir að mamma hafði raðað
fjórum til fimm neðstu lögunum og
vorum við með tröppu er pabbi
hafði smíðað fyrir okkur. Enginn
amaðist við því þótt við sofnuðum
stundum í kaffistofunni eða í síld-
artunnuskúrnum hjá pabba. Þetta
átti við um alla aðra á okkar aldri.
Pabbi vann 12-15 tíma á sólarhring
og mamma var alltaf upptekin við
heimilið og börnin, samhliða því að
sauma föt fyrir aðra, dragtir og
hvað sem var, og aflaði aukafjár
með því. Bara vinna en léleg laun.
Amma var líka alltaf til staðar er
þurfti. En alltaf var nóg að borða
og byrjuðu þau að safna mat fyrir
veturinn snemma; slátur og allur
pakkinn og síðan kjöt og fiskur frá
Kappeyri, ömmubræður reru og
söltuðu.
Jafnhliða heimili og vinnu hjálp-
aði hún öðrum sem áttu í vandræð-
um þótt hennar væru ærin. Þeir er
minna máttu sín í samfélaginu áttu
alltaf samastað á Draumalandi og
komu þar oft. Mamma fór á Hús-
mæðraskólann á Hallormsstað
1950-1951 og lauk prófi þaðan með
ágætiseinkunnum, sem sýndu að
hún var skörp og vissi sínu viti.
Hún giftist pabba, Jóhannesi
Stefáni Jósefssyni, á gamlársdag
1953. Var alltaf til staðar fyrir okk-
ur og aðra, en minna sjálfa sig, átti
ekki alltaf það besta að ganga í
sjálf, þótt hún sæi til þess að aðrir
hefðu það betra og við börnin, þó
að fjárhagurinn væri erfiður, enda
börnin mörg. Hún verðlagði vinnu
sína frekar í vinskap en launum.
Oft var ég notaður sem módel fyrir
samanpinnað snið með títuprjónum
og alltaf passaði það þegar það var
mátað á viðkomandi. Hún hugsaði
aldrei um sjálfa sig, tók bara smá-
ræði fyrir það sem hún hjálpaði
öðrum með saumaskap. Allir
kunnu vel við hana, enda mat hún
fólk ekki eftir útliti, heldur innri
manni.
Þegar ég hóf búskap í kjallaran-
um í Suðurgötunni á Sauðárkróki
og við unnum bæði úti, ég og kær-
astan, var aldrei hægt að koma í
veg fyrir að hún væri búin að koma
fyrir mat niðri er maður kom í há-
degisverð, enda Dagga nýfædd og
þá vann hún ekki úti. Svoleiðis var
það meðan hún var heima í Suður-
götunni, sama hvað maður sagði.
Þetta lýsir hennar afstöðu til
lífsins, barnanna og annarra sem
höfðu ekki annars staðar höfði að
að halla. Eins og skátarnir: Ávallt
reiðubúin.
Fátækleg orð um konu sem aldr-
ei var neitt að nema smápest er liði
hjá eftir helgi, jafnvel á banabeðn-
um, enda felldi hún aldrei tár þar
er henni voru sagðar fréttirnar og
málið útskýrt fyrir henni og hún
spurð hvort hún skildi málið, bara
einfalt já og lagði aftur augun og
fór að sofa. Ekki var talað um það
meira.
Í minningu móður minnar.
Erlingur.
Tengdamóðir mín Guðrún Sig-
urbjörg Stefánsdóttir er látin.
Kynni mín af henni hafa nú stað-
ið í rúm 30 ár. Um það bil sem
kynni okkar hófust voru hún og Jó-
hannes tengdafaðir minn að slíta
samvistum, og fljótlega hóf hún
síðan sambúð með Stefáni Holm.
Voru þetta því miklir breytinga-
tímar í lífi Guðrúnar. Næstu árin
bjó hún á Sauðárkróki, Stokkseyri
og Reykjavík en 1985 flutti hún til
Blönduóss í nágrenni við okkur
Stellu, og má því segja að þá hafi
ég farið að kynnast henni fyrir al-
vöru.
Segja má að við fjölskyldan höf-
um verið heimagangar á heimili
hennar alla tíð síðan og þegið veit-
ingar og hlýjar móttökur í hvert
einasta skipti og ekki gleymdist að
eiga eitthvað sérstaklega handa
strákunum okkar og vil ég minnast
þess hversu umhugað henni var um
að gleðja þá og vita hag þeirra sem
bestan.
Guðrún átti stóra fjölskyldu sem
henni var mjög annt um og mikið
af hennar tíma fór í að fylgjast
með og hlúa að. Guðrún hefur skil-
að miklu ævistarfi. Ásamt því að
ala upp sjö mannvænleg börn skil-
aði hún mikilli vinnu, hvort sem
var við saumaskap, fiskverkun eða
aðhlynningarstörf, ávallt vinsæl og
vel liðin af sínum vinnuveitendum.
Það sem mér er sérstaklega minn-
isstætt úr fari Guðrúnar er hversu
mikla reglu hún hafði á öllu í
kringum sig og var vel tilhöfð við
allar aðstæður og í tali minnist ég
þess ekki að hún hafi lagt illt orð
til nokkurs manns. Hún var mikill
gefandi en vildi síður þiggja, það
trúi ég að allt hennar samferðafólk
geti vitnað um.
Ég minnist Guðrúnar tengda-
móður minnar með virðingu og
þakklæti. Blessuð sé minning
hennar.
Eiginmanni, börnum og öllum
hennar nánustu votta ég innilega
samúð á kveðjustund.
Jón Gíslason.
Guðrún Sigurbjörg, kær frænka
mín, er farin yfir móðuna miklu.
Það er margt sem kemur upp í
hugann, þegar hugsað er til baka.
Frænka mín var jákvæð mann-
eskja og átti gott með að sjá
spaugilegar hliðar á flestum mál-
um. Hún var sannur vinur vina
sinna og það var alltaf gott að
koma í heimsókn til hennar. Þaðan
fór maður alltaf léttur í bragði.
Ekki var síðra að fá hana í heim-
sókn og oftast kom hún færandi
hendi. Frænka mín var mikil
saumakona. Hún saumaði mikið af
fötum á sína fjölskyldu og einnig
fyrir annað fólk. Það var ekki lengi
gert að sauma kjól fyrir ball á ár-
um áður. Mér er minnisstætt eitt
kvöld er ég var stödd hjá frænku
minni, þá sem unglingur. Fjöl-
skyldan ætlaði í ferðalag daginn
eftir. Það var búið að ganga frá
flestu fyrir ferðina, nema yngsta
drenginn vantaði buxur og skyrtu.
Þó langt væri liðið á kvöldið settist
frænka mín niður og sneið buxur
og skyrtu án sniðblaða og saumaði
fötin í hvelli. Morguninn eftir var
sá yngsti í spánýjum fötum og
sallafínn.
Ég og fjölskylda mín nutum góðs
af handbragði þeirra systra, Guð-
rúnar og Kristjönu, þegar kom að
því að halda fermingaveislur.
Brauðterturnar urðu að listaverki í
þeirra höndum.
Frænka mín vann utan heimilis
af og til. Framan af við fiskvinnslu
en seinni ár við umönnun á sjúkra-
húsi. Þegar hún lét af störfum sök-
um aldurs, fór hún að sinna sauma-
skap og alls kyns handavinnu í
auknum mæli. Hún sótti ýmis nám-
skeið tengd handverki. (Þá mátti
stundum spyrja hver kenndi hverj-
um?) Á mörgum heimilum eru til
fallegir hlutir sem hún gerði, þ.m.t.
mitt heimili.
Á seinni árum kom maður varla
svo í heimsókn að húsmóðirin væri
ekki að vinna við sitt handverk.
Húsbóndinn var þá oft uppi á vatni
á sínum bát að veiða silung sem
hann reykti svo sjálfur. Betri sil-
ung hef ég ekki smakkað. Á tveim-
ur síðustu árum hrakaði heilsu
Guðrúnar mikið. Þá saknaði maður
gamanyrðanna sem höfðu fylgt
henni gegn um tíðina.
Um leið og ég þakka fyrir allar
góðu samverustundirnar með Guð-
rúnu, sendi ég Kristjönu systur
hennar, Stefáni eiginmanni hennar,
börnum hennar og öðrum aðstand-
endum innilegar samúðarkveðjur.
Guð blessi ykkur öll.
Björg.
Guðrún Sigurbjörg
Stefánsdóttir
✝
Hjartans þakkir til allra þeirra er auðsýndu samúð
og hlýhug við andlát og útför okkar elskulegu og
ástkæru móður, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
MARÍU DANÍELSDÓTTUR,
Furugerði 1,
Reykjavík,
áður til heimilis á Eskifirði,
sem lést föstudaginn 17. júlí og var jarðsungin
föstudaginn 24. júlí.
Daníel Jónasson, Ásdís Ólöf Jakobsdóttir,
Árni Jónasson, Anna Britta Vilhjálmsdóttir Warén,
Örn Jónasson, Helga Jóhannesdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir minn, unnusti og bróðir,
HALLDÓR KARLSSON,
Suðurvör 6,
Grindavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mánudaginn
3. ágúst.
Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju þriðjudaginn
11. ágúst kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast
hans er bent á styrktarreikning dóttur hans 1193-05-1337,
kt. 190892-4339.
Viktoría Alexandra Halldórsdóttir,
Anna María Valgeirsdóttir og systkini hins látna.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
KRISTÍN ÞÓRSDÓTTIR
frá Bakka í Svarfaðardal,
Mímisvegi 10,
Dalvík,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri laugar-
daginn 1. ágúst.
Jarðsungið verður frá Dalvíkurkirkju föstudaginn
14. ágúst kl. 13.30. Jarðsett verður að Tjörn.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
HILDIMUNDAR SÆMUNDSSONAR,
Túngötu 4,
Álftanesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks þjónustumiðstöðvar
og þriðju hæðar Sjálfsbjargarheimilisins.
Aðalheiður Sigurdís Steingrímsdóttir,
Steingrímur Hildimundarson,
Steinhildur Hildimundardóttir, Leifur Eysteinsson,
Kristín Hildimundardóttir, Jón Unnar Gunnsteinsson,
Sæmundur Hildimundarson, Nancy Rut Helgadóttir
og barnabörn.
✝
Móðir okkar,
ANNA ÞORSTEINSDÓTTIR
fyrrv. prófastsfrú Heydölum,
Ofanleiti 17,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi miðvikudaginn
29. júlí.
Útförin hefur farið fram.
Hallbjörn Kristinsson,
Guðríður Kristinsdóttir.