Morgunblaðið - 18.08.2009, Blaðsíða 28
28 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 2009
Konan kom eins
og þjófur að
nóttu og stökk inn í bílinn
í miðri töku... 34
»
HÉR.E er sýning á
sjón- og tónverkum
sem eiga sér stað á
sama tíma á Vestur-
veggnum á Seyðisfirði
og í Wellington á Nýja
Sjálandi. Á sýningunni
eru ljósmyndir, þrí-
víddarverk og hreyfimyndir auk tónverks, inn-
blásins af sjónverkunum. Verkin eru unnin sitt-
hvorum megin kringlu, af systrunum Kristínu
Örnu og Þórunni Grétu Sigurðardætrum. Kristín
Arna útskrifaðist sem iðnhönnuður í maí. Hennar
kall yfir höfin eru sjónverk, ljósmyndir og hreyfi-
myndir. Þórunn Gréta nemur tónsmíðar og píanó-
leik við Listaháskóla Íslands og svarar kalli syst-
ur sinnar með tónverki.
Myndlist – tónlist
Systur kallast á yfir
jarðarkringluna
Verk eftir Kristínu Örnu.
INGA María hefur opn-
að sýningu á dýralífs-
myndum sínum á
Mokka, og stendur sýn-
ingin til 10. september.
Inga María hefur hingað
til unnið sjálfstætt við
myndskreytingar og
hreyfimyndagerð, en fram til þessa hefur hún
fengist við ljósritunarvélar, kol, leir, málningu í
brúsum, tréliti sem og tússliti og ýmislegt lauslegt
sem á vegi hennar hefur orðið. Verkin eru unnin
með innblæstri frá dýralífsmyndum þar sem
ákveðið dýr er tekið fyrir en með teikningunni
öðlast það eigin ásjónu og afskræmingu. Verkin
eru unnin með sérinnfluttum blýöntum sem geta
skapað ódauðlega list.
Myndlist
Inga María sýnir
dýralíf á Mokka
Inga María og dýrin.
OPNUÐ hefur verið sýn-
ing í Gallerí Klaustri á
verkum eftir Piotr Nath-
an. Sýningin kallast
Skýrslubrot af verkstæði
tímavélar og er hluti
stærri sýningar hans fyrr
á árinu í galleríinu Magnus
Mueller í Berlín. Verkin eru unnin út frá mynd-
skreytingum vísindarita 19. aldar og taka áhorf-
endur í tímaferðalag. Piotr Nathan fæddist í
Gdansk 1956 en hefur búið og starfað í Berlín frá
því hann útskrifaðist frá Listakademíunni í Ham-
borg árið 1986. Hann er prófessor við Muthesius-
listaháskólann í Kiel. Piotr hefur haldið fjölda
sýninga víða um lönd en hann dvelur nú í gesta-
íbúðinni á Skriðuklaustri.
Myndlist
Myndskreytingar
gamalla vísindarita
Verk eftir Piotr Nathan.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
TÓNLISTARMENN hafa umfram aðra skapandi listamenn
haft frumkvæði að því að koma list sinni á framfæri í stafrænu
formi á netinu. Tónlistarmenn hafa líka öðrum listamönnum
fremur þurft að takast á við gallana sem því fylgja eins og ólög-
legt niðurhal og stuld á efni í höfundarrétti.
Ýmsir kostir hafa þó verið við stafrænu byltinguna og meðal
þeirra sem tala á ráðstefnunni er Serena Wilson sem er konan á
bak við stafrænu herferðina sem gerð var með Artic Monkeys.
Sú hljómsveit náði að treysta grunninn að velgengni sinni með
nýstárlegri aðferð fyrir um þremur árum.
Fyrir tveimur árum var fyrst haldin hér á landi ráðstefnan
You are in control, þar sem nýjar leiðir í dreifingu á menningar-
og afþreyingarefni voru ræddar, svo og aukin tækifæri í mark-
aðssetningu og hlutverk samfélagsvefja á netinu. Ráðstefnan
verður haldin í þriðja sinn 23. og 24. september, undir vernd-
arvæng Útón, eða Iceland Music Export, en að sögn Kamillu
Ingibergsdóttur ráðstefnustjóra verður sjónarhornið víkkað í ár
og kvikmynda-, myndlistar- og hönnunargeirarnir verða form-
legir þátttakendur í ráðstefnunni.
„Við getum lært hvert af öðru og nýtt sérþekkingu hverrar
greinar fyrir sig í þágu hinna,“ segir Kamilla. „Með þessu erum
við að reyna að koma á formlegum vettvangi fyrir umræðu um
stafræna þróun skapandi greina. Samlegðaráhrif greinanna eru
mikil og margt bendir til þess að viðskiptamódelin verði ekki
eins aðgreind í framtíðinni eins og þau hafa áður verið.“ Fyrri
daginn verður pallborð þar sem sérfræðingar ræða það nýjasta
í þróun stafrænnar miðlunar, en seinni daginn verður farið
dýpra í saumana með vinnusmiðjum í samvinnu þátttakenda.
Vekur athygli fyrir framsæknar hugmyndir
„Það er mikilvægt að halda alþjóðlega ráðstefnu af þessu tagi
á Íslandi, til þess að efla alþjóðlegt tengslanet okkar í stafræna
umhverfinu. Margt spennandi fólk sem er framsækið í hugsun
um þessi mál kemur á ráðstefnuna, en hún hefur fengið mjög já-
kvæða og góða athygli erlendis, vegna þess einmitt að hér er
verið að ræða framsæknustu hugmyndir um stafræn viðskipta-
módel og markaðssetningu í framtíðinni.“
Kamilla segir að mikilvægur þáttur í ráðstefnuhaldinu sé að
skapa tengsl milli fólks bæði innan ráðstefnunnar og utan. Fyr-
irtæki eins og Gogoyoko nýttu sér þetta í fyrra og eins hefur
fjöldi listamanna komist í góð tengsl við fulltrúa erlendra fyr-
irtækja sem hafa komið á ráðstefnuna.“
Þú ert við stjórnvölinn
Ráðstefnan er vettvangur alþjóðlegrar umræðu um stafræn málefni skapandi
atvinnugreina Myndlist, hönnun og kvikmyndir slást í lið með tónlistinni
Stafræn Örvar Þóreyjarson í Múm og Julie Veir frá Visible Noise á ráðstefnunni í fyrra.
icelandmusic.is
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„ÞAÐ er ótrúlega göfugt og fallegt af fólki að
halda uppi minningarsjóði sem styrkir ungt
listafólk,“ segir Helga Þóra Björgvinsdóttir
fiðluleikari, en hún er styrkþegi Minningar-
sjóðs Jean-Pierre Jaquillat í ár.
Jaquillat var sem kunnugt er aðalhljóm-
sveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands um
árabil. Hann lést árið 1986 og var minning-
arsjóðurinn stofnaður í kjölfarið.
Helga Þóra segir það mikinn heiður og við-
urkenningu að hljóta styrkinn. „Þetta kemur
sér rosalega vel og gefur mér tækifæri til að
halda fiðlunáminu í París áfram og sækja tíma
hjá ótrúlega flottum fiðlukennurum.“
Helga Þóra lauk BA-prófi frá Listaháskóla
Íslands vorið 2004. Um haustið lá leiðin í
Listaháskólann í Berlín og þar lauk hún dip-
lóma-prófi sumarið 2007 með hæstu einkunn.
Þá togaði París í hana, og þar verður hún
áfram í vetur við nám.
„Það var draumurinn að flytja til Parísar,
upplifa franska menningu og sækja sér áhrif
frá umhverfinu og spilastílnum þar. Ég held að
það nýtist mér mjög vel að hafa kynnst bæði
þýskum og frönskum spilastíl.“
Styrkurinn nemur 600 þúsund krónum.
„Þetta hjálpar mér mjög mikið, því í dag eru
allt aðrar aðstæður en þegar ég fór út. Það er
ekki auðvelt að búa í útlöndum núna og ekki
ódýrt, og þess vegna er ég mjög þakklát.“
Helga Þóra lék í vor einleik með Sinfón-
íuhljómsveit Íslands og hefur verið félagi í
Kammersveitinni Ísafold frá upphafi.
Göfugt og fallegt
Helga Þóra Björgvinsdóttir fær Jaquillat-styrkinn
Þakklát Helga Þóra Björgvinsdóttir tekur við Jaquillat-styrknum í Sigurjónssafni í gær. Örn
Jóhannsson, formaður minningarsjóðsins, afhenti styrkinn.
Morgunblaðið/Heiddi
ELSIE nokkur Poncher, ekkja í Los
Angeles, býður þessa dagana til sölu
grafreit sem er staðsettur beint fyrir
ofan grafreit Hollywood-stjörnunnar
Marilyn Monroe í grafhýsi nokkru í
Borg englanna. Í auglýsingu frá
Poncher, sem finna má á uppboðs-
vefnum eBay, segir meðal annars að
hér sé komið gullið tækifæri til þess
að „verja eilífðinni beint fyrir ofan
Marilyn Monroe“.
Opnað var fyrir boð í grafreitinn í
síðustu viku, og var lágmarksboðið
500.000 dollarar, eða 64 milljónir ís-
lenskra króna. Hæsta boð í gær nam
hins vegar 4,5 milljónum dollara, eða
578 milljónum íslenskra króna, og er
þó hægt að bjóða í grafreitinn í um
það bil viku í viðbót.
„Ég mun ásækja ykkur“
Á vefsíðu breska dagblaðsins
Guardian kemur fram að grafhýsið sé
í hinum „afar fína“ Westwood Vil-
lage-kirkjugarði í Los Angeles. Þar
hvílir nú eiginmaður Poncher, Rich-
ard Poncher, sem lést árið 1986.
Hans hinsta ósk mun hafa verið að
vera lagður á magann í kistuna, svo
hann sneri að Monroe.
„Ef þið setjið mig ekki á hvolf yfir
Marilyn mun ég ásækja ykkur,“ segir
Poncher að eiginmaðurinn hafi sagt
skömmu fyrir andlátið.
Poncher þessi mun hafa verið „at-
hafnamaður“ og að sögn ekkju hans
var hann „afskaplega elskulegur“
þrátt fyrir að hafa þekkt alla glæpa-
mennina í L.A. Í samtali við banda-
ríska dagblaðið L.A. Times segir
ekkjan að hún hafi ákveðið að færa
jarðneskar leifar eiginmanns síns og
selja grafreitinn til þess að geta borg-
að af húsnæði sínu í Beverly Hills.
Sá sem hreppir hnossið mun verða
í félagsskap fleiri frægra einstaklinga
því Roy Orbison, Truman Capote og
Dean Martin voru allir lagðir til
hinstu hvílu skammt frá.
Í eilífðinni
með Mari-
lyn Monroe
Grafreitur fyrir ofan
leikkonuna til sölu
Marilyn Monroe Hver vill ekki
leggjast til hinstu hvílu hjá henni?
Það verður skrafað um margt á ráðstefnunni
You are in control. Meðal annars verður rætt
um það hvort bloggarar og þeir sem láta til
sín taka á samfélagsvefjum hvers konar hafi
leyst tímarit og blöð af hólmi. Spurt verður
hvernig viðskiptamódel framtíðarinnar
verða í stafrænni dreifingu og borgunarleið-
irnar og rætt um það hvernig best megi
tryggja vernd höfundarréttar. Seinni daginn
verður kafað dýpra í praktísku málin og
meðal annars rætt um það hvernig skapandi
listamenn geta komið sér á framfæri við
fjárfesta. Þá verður einnig rætt hvernig
hönnuðir og tískuiðnaðurinn geta nýtt sér
stafræna miðlun.
Meðal fjölmargra gesta á ráðstefnunni
verða íslenskir og erlendir sérfræðingar eins
og Gerfried Stocker, hjá Ars Electronica, en
hann hefur gert fjölda innsetninga og gjörn-
inga þar sem samskipti, vélfærafræði og
fjarskiptatækni mætast; Guðrún Lilja Gunn-
laugsdóttir, hönnuður hjá Studio Bility, og
Cory McAbee kvikmyndagerðarmaður sem
Sundance-kvikmyndahátíðin valdi til að búa
til stuttmynd til dreifingar í farsíma (sjá við-
tal til hægri). Myndin heitir Stingray Sam og
hefur náð miklum vinsældum um allan heim
hjá farsímanotendum og verður sýnd á RIFF,
en ráðstefnan er einmitt haldin meðan RIFF
og Nordisk Panorama standa yfir.
Ótæmandi umræðuefni