Morgunblaðið - 12.10.2009, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 12.10.2009, Blaðsíða 3
Íþróttir 3 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2009 Eftir Kristján Jónsson kris@mbl.is BIKARMEISTARAR Stjörnunnar í körfuknattleik karla komu nokkuð á óvart í gær er þeir tryggðu sér nafn- bótina meistarar meistaranna. Sigr- uðu þeir Íslandsmeistara KR á þeirra eigin heimavelli, DHL- höllinni 89:80. Garðbæingar höfðu frumkvæðið lengst af í fyrri hálfleik en leikurinn var kaflaskiptari í þeim síðari þegar liðin skiptust á að hafa forystuna. Stjarnan byrjaði mun betur og hafði yfir 23:13 eftir 1. leikhluta og 48:41 í hálfleik. KR-ingar sneru tafl- inu sér í hag í þriðja leikhluta og náðu þriggja stiga forskoti fyrir síð- asta leikhlutann. Garðbæingar unnu hins vegar fjórða leikhlutann með miklum mun, 28:16. Jovan Zdra- vevski var stigahæstur með 33 stig en hann tók jafnframt 8 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Fannar Freyr Helgason frá Ósi var með 22 stig og tók 12 fráköst. Justin Shouse var einnig drjúgur eins og svo oft áður. Hann skilaði 15 stigum og gaf 13 stoðsendingar. Brynjar Björnsson fór fyrir liði KR-inga í stigaskorun og skoraði 29 stig þar af skoraði hann 27 í fyrstu þremur leikhlutunum. Tommy John- son einn hinna nýju leikmanna KR var næststigahæstur með 13 stig og tók 6 fráköst. Bikurum fjölgar í Garðabæ Morgunblaðið/Ómar Góðir Kjartan Atli Kjartansson og félagar hans úr Stjörnunni lögðu KR í Meistarakeppni KKÍ í gær. Sævar Haralds-son hefur skipt úr úrvals- deildarliði Stjörn- unnar í körfu- knattleik í sitt gamla félag Hauka. Sævar varð bikarmeistari með Stjörnunni á síðustu leiktíð en hann er leikstjórn- andi og kemur til með að styrkja Haukaliðið mikið í baráttunni í næst- efstu deild.    Íslendingaliðið Rhein-Neckar Lö-wen sigraði Melsungen á útivelli, 26:28, í þýsku 1. deildinni í hand- knattleik í fyrrakvöld. Ólafur Stef- ánsson skoraði 5 mörk fyrir Rhein- Neckar Löwen og þeir Snorri Steinn Guðjónsson og Guðjón Valur Sig- urðsson gerðu 2 mörk hvor.    Róbert Gunnarsson skoraði 4mörk fyrir Gummersbach sem hafði betur á móti Balingen, 21:26.    Sverre Jakobsson og félagar hans íGrosswallstadt lögðu Dorma- gen, 28:26, á heimavelli. Sverre náði ekki að skora fyrir sína menn en Ein- ar Hólmgeirsson lék ekki með liðinu vegna meiðsla.    Kári KristjánKrist- jánsson skoraði 4 mörk fyrir sviss- neska liðið Ami- citia Zürich þeg- ar liðið tapaði fyrir danska lið- inu Kolding, 35:27, í riðla- keppni Meistaradeildar Evrópu en liðin áttust við í Danmörku.    Strákarnir hans Guðmundar Þórð-ar Guðmundssonar í danska handboltaliðinu GOG fögnuðu sigri gegn Ringsted, 32:24, í dönsku úr- valsdeildinni í handknattleik. Ásgeir Örn Hallgrímsson lék ekki með GOG en landsliðsmaðurinn er frá keppni vegna meiðsla.    TuS N-Lübbecke vann góðan sigurá Flensburg, 31:28, í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Þórir Ólafs- son skoraði 5 mörk fyrir Lübbecke og Heiðmar Felixson 4. Alexander Pet- ersson náði ekki að skora fyrir Flens- burg    Fimmfaldir heimsmeistarar Bras-ilíumanna biðu í gærkvöld lægri hlut fyrir Bólivíumönnum, 2:1, í S- Ameríkuriðli undankeppni HM í knattspyrnu. Nilmar skoraði mark Brassanna og minnkaði muninn 20 mínútum fyrir leikslok en þetta var annar tapleikur Brasilíumanna í und- ankeppninni.    Brasilíumenn hafa fyrir löngu síð-an tryggt sér sæti í lokakeppn- inni sem haldin verður í Suður-Afríku næsta sumar. Brasilía hefur 33 stig í efsta sæti ásamt Paragvæ og Chile hefur 30. Þessar þrjár þjóðir eru öruggar í úrslit en Argentínumenn sem hafa 25 stig og Úrúgvæar sem hafa 24 stig berjast um fjórða sætið en fjórar efstu þjóðirnar komast í úr- slitakeppnina. Argentína og Úrúgvæ mætast í lokaumferðinni í Montevi- deo í Úrúgvæ á miðvikudaginn.    Norskir fjölmiðlar greindu frá þvíí gær að sænska knattspyrnu- sambandið hefði áhuga á að fá Norð- manninn Åge Hareide sem næsta landsliðsþjálfara karlandsliðs Svía. Lars Lagerbäck mun hætta sem þjálfari sænska liðsins. Hareide er þjálfari sænska liðsins Örgryte og hann var áður þjálfari Noregs. Fólk sport@mbl.is Eftir Kristján Jónsson kris@mbl.is BÆÐI lið tefla fram nýjum erlendum leikmönnum sem urðu stigahæstir í leiknum í gær. Jenny Pfeiffer Finora gerði 15 stig fyrir KR en Heather Ezell var með 24 fyrir Hauka. Hafn- firðingar léku án tveggja lykilmanna, þeirra Thelmu B. Fjalarsdóttur og Rögnu Margrétar Brynjarsdóttur, sem skýrir að einhverju leyti þennan mikla mun sem var á liðunum. KR hefur byrjað leiktíðina með lát- um en þær sigruðu einnig í Powe- rade-bikarkeppninni á dögunum. Sig- ur liðsins var mjög öruggur í gær en KR hafði yfir í hálfleik 41:28. Jóhann- es Árnason lét af störfum sem þjálf- ari liðsins í vor og við starfi hans tók Benedikt Guðmundsson, fráfarandi þjálfari karlaliðs KR. Hann hreinsaði nokkuð til í leikmannahópnum og fékk landsliðsmiðherjann Signýju Hermannsdóttur frá Val til liðsins. Systurnar Guðrún og Sigrún Ámundadætur reru hins vegar á önn- ur mið. Signý og Hildur Sigurð- ardóttir gerðu 11 stig hvor í gær. Talsverðar breytingar urðu á Haukaliðinu sem leikur nú undir stjórn Hennings Henningssonar landsliðsþjálfara en Yngvi Gunn- laugsson þjálfaði liðið í fyrra. Krist- rún Sigurjónsdóttir, Guðbjörg Sverr- isdóttir og Slavica Dimovska gengu til liðs við Hamar en Guðrún Ámundadóttir, Ragnheiður Theo- dórsdóttir og Heather Ezell eru komnar í þeirra stað. Margrét Rósa Hálfdánardóttir var næststigahæst með 7 stig í tapinu í Frostaskjólinu í gær. Morgunblaðið/Ómar Átök María Lind Sigurðardóttir Haukum og Heiðrún Kristmundsdóttir KR takast á af fullri hörku. Benedikt byrjar með látum í kvennaboltanum Bikarmeistarar KR urðu í gær meist- arar meistaranna í körfuknattleik kvenna þegar þær unnu stórsigur á Íslandsmeisturum Hauka 78:45 í DHL-höllinni. Þessi lið háðu eft- irminnilega fimm leikja rimmu um Ís- landsmeistaratitilinn síðastliðið vor en síðan þá hafa miklar breytingar orðið á leikmannahópum liðanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.