Morgunblaðið - 13.10.2009, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.10.2009, Blaðsíða 4
Arnþór Fr. Guðmundsson 18 ára bakvörður Árni Þór Jónsson 22 ára bakvörður Björn I. T. Björnsson 17 ára framherji/miðherji Christopher Smith 27 ára framherji/miðherji Daníel Geirsson 17 ára bakvörður Einar Þórmundsson 18 ára bakvörður Elvar Sigurðsson 17 ára bakvörður Friðrik Karlsson 18 ára framherji/miðherji Garðar Sveinbjörnsson 22 ára bakvörður Grétar Björnsson 28 ára miðherji Hjalti Vilhjálmsson 23 ára bakvörður/miðherji Ingvaldur M. Hafsteinss. 28 ára framherji Leifur Arason 16 ára bakvörður Magnús Pálsson 24 ára bakvörður Níels Dungal 26 ára bakvörður Sindri Kárason 20 ára miðherji Sverrir Kári Karlsson 29 ára framherji Tómas Heiðar Tómasson 18 ára bakvörður Ægir Þór Steinarsson 18 ára bakvörður Leikmannahópur Fjölnis 2009-2010 4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 2009 Eftir Ívar Benediktsson iben@mbl.is FJÖLNISMENN stöldruðu ekki lengi við í 1. deild karla í körfuknattleik. Þeir létu aðeins eitt ár duga og þótt fjórða sætið væri þeirra hlutskipti að deildarkeppninni lokinni þá tóku þeir úrslitakeppnina með trukki og dýfu. Þar léku leikmenn Fjölnis, undir stjórn Bárðar Eyþórssonar, við hvern sinn fingur og létu ekki staðar numið fyrr en sæti í úrvalsdeild var tryggt og eftir sátu Haukar, Valsmenn og Ísfirðingar með sárt ennið. Fjölnir kom fyrst upp í úrvalsdeild fyrir leiktíðina 2002 til 2003 og þá undir stjórn Benedikts Guðmundssonar. Leikmenn liðsins komu sem ferskur blær inn í deildina enda allt- af gaman að sjá ný lið í keppni þeirra bestu. Strax á fyrsta ári hafnaði liðið í fjórða sæti deildarinnar. Þá var toppnum náð, alltént í bili, því ofar hefur lið Fjölnis ekki náð í úrvalsdeild- inni síðan. Flest reyndist Fjölnismönnum mótdrægt í úrvalsdeildinni leiktíðina 2007 til 2008 og fór svo að um vorið kvaddi liðið deildarkeppni þeirra bestu. En eins og rakið er að ofan var viðveran ekki löng í 1. deild. Mikil endurnýjun hefur átt sér stað í liði Fjölnis á þeim tveimur árum sem liðin eru síð- an það lék síðast í Iceland Express deildinni. Margir ungir menn stíga sín fyrstu spor í deildinni þegar flautað verður til leiks undir vikulokin. Þeir eru flestir uppaldir í metn- aðarfullu unglinga- og barnastarfi körfuknatt- leiksdeildar Fjolnis. Þjálfari liðsins frá 2006 er reynsluboltinn Bárður Eyþórsson. Hann hefur undanfarið ár búið nýtt lið undir keppnina í úrvalsdeildinni. Hann hefur fengið til liðsins einn af sínum gömlu lærisveinum frá Snæfellsárunum, Ing- vald Magna Hafsteinsson, sem kemur með kærkomna reynslu með sér inn í hópinn. Hætt er þó við að leiktíðin framundan geti reynst Fjölnismönnum erfið og vafalaust gera leikmenn og þjálfari sér skýra grein fyrir því. Morgunblaðið/ÞÖK Þjálfarinn Bárður Eyþórsson stýrir Fjölni á ný í úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Þungur róður framundan hjá Fjölni Eftir Ívar Benediktsson iben@mbl.is „ÉG vil sjá að stígandi verði jafnt og þétt í leik okkar í vetur,“ segir Bárð- ur sem stýrt hefur Fjölnisliðinu frá síðla árs 2006. Bárður vill að öðru leyti lítið tjá sig um stefnu nýliðanna sem tryggðu sér sæti í deildinni á nýjan leik í vor eftir að hafa unnið úrslitakeppni 1. deildar þótt liðið hafi áður hafnað í fjórða sæti deild- arkeppninnar. Bárður segir undirbúninginn hafa gengið allvel en talsverðar breyt- ingar hafa orðið á liðinu frá síðustu leiktíð auk þess sem meiðsli hafi sett nokkurt strik í reikninginn. „Ing- valdur Magni Hafsteinsson er til dæmis einn þeirra. Hann meiddist fljótlega eftir að hann kom okkar í sumar og er nýbyrjaður að æfa með okkur á nýjan leik. Fleiri sterkir póstar hafa glímt við meiðsli á und- irbúningstímanum og á ýmsu hefur gengið við að halda sterkum póstum liðsins gangandi,“ segir Bárður. Meiðsli hafa sett strik í reikn- inginn á undirbúningstímanum „Undirbúningur hófst af fullum þunga í ágúst en menn höfðu verið við æfingar í sumar, t.d. við lyftingar og aðrar styrktaræfingar,“ segir Bárður ennfremur sem telur að mið- að við aðstæður sé nokkuð gott ástand á leikmönnum Fjölnis. Fjölnismenn hefur leikið nokkuð af æfingaleikjum og tekið þátt í und- irbúningsmótum síðustu vikurnar. „Það hefur gengið svona upp og ofan hjá okkur. Margt hefur verið já- kvætt en aðalmálið er að liðið vaxi jafnt og þétt í vetur enda framundan langt og strangt keppnistímabil.“ Bárður segir lið Fjölnis hafa tekið miklum breytingum frá því að það var síðast í úrvalsdeildinni fyrir tveimur árum. Mikil endurnýjun hefur átt sér stað og stór hópur ungra leikmanna komið inn í liðið. „Við erum með mjög marga unga leikmenn. Við nýttum 1. deildina í fyrra til þess að byggja upp reynslu hjá þessum strákum. Þeir hafa klár- lega vaxið að reynslu á þeim tíma sem kemur okkur vonandi til góða á komandi keppnistímabili. Við höfum okkar markmið fyrir leiktíðina en viljum halda því innan hópsins,“ segir Bárður. „En hvort sem við byrjum vel eða illa þá verður að vera stígandi í liðinu á leiktíðinni.“ Sækja bikarmeistarana heim í fyrstu umferð Fyrsti leikur Fjölnis í deildinni verður á föstudagskvöld í Ásgarði í Garðabæ hvar Fjölnismenn sækja bikarmeistara Stjörnunnar heim. Stjarnan lagði KR í meistarakeppni KKÍ á sunnudaginn og nokkuð ljóst að bikarmeistararnir mæta til leiks fullir sjálfstrausts. „Stjörnuliðið verður mjög sterkt en við reynum allt sem við getum til þess að verða klárir í þann leik. Skemmtileg keppni framundan Það er spenna og tilhlökkun í leik- mönnum að hefja keppnina. Stór hluti hópsins er að stíga sín fyrstu skref í úrvalsdeild og þeir vilja því standa sig,“ segir Bárður en helm- ingur leikmanna er 20 ára og yngri. Spurður um toppbaráttuna segir Báður að hann eigi von á mjög skemmtilegu keppnistímabili í Ice- land Express-deildinni. „Það er erfitt að slá einhverju föstu um hverjir munu berjast á topnnum en ég tel samt nokkuð ljóst að öll suðurnesjaliðin eru mjög sterk, einnig KR-ingar og Snæfell- ingar. Mér sýnist Stjarnan einnig vera með sprækt lið og síðan má heldur ekki gleyma Tindastóls- mönnum sem ég reikna með að verði sterkir,“ segir hinn þrautreyndi þjálfari Fjölnismanna, Bárður Ey- þórsson. Tilhlökkun og spenna að hefja loks keppni Flestir leikmenn eru að stíga sín fyrstu skref í úrvalsdeild, segir Bárður Eyþórsson Morgunblaðið/Kristinn Flinkir Fjölnismennirnir Christopher Smith, Níels Dungal, Ægir Þór Steinarsson og Ingvaldur Magni Hafsteinsson leika listir sínar með boltana. „Við höfum sett okkur ákveðin mark- mið fyrir keppnistímabilið en kjósum að halda þeim fyrir okkur,“ segir Bárður Eyþórsson, þjálfari nýliða Fjölnis í úrvalsdeild karla, Iceland Ex- press-deildinni, spurður um markmið Fjölnis nú þegar liðið hefur end- urheimt sæti sitt í deildinni eftir eins árs veru í 1. deild. Körfuknattleikur: Morgunblaðið kynnir liðin í úrvalsdeild karla, Iceland-Express deildinni IngvaldurMagni Haf- steinsson gekk til liðs við nýliða Fjölnis fyrir komandi keppn- istímabil. Magni hefur leikið árum saman með Snæ- felli og þá m.a. undir stjórn Bárðar Eyþórssonar núverandi þjálfara Fjölnis en Bárð- ur stýrði Snæfelli um nokkurra ára skeið með afar góðum árangri.    Eins og fleiri leikmenn Fjölnishefur Magni glímt við meiðsli. Hann verður væntanlega klár í slag- inn þegar Fjölnir sækir bikarmeist- ara Stjörnunnar heim á föstudaginn í fyrstu umferð Iceland Express- deildarinnar.    Á sunnudaginn kom Bandaríkja-maðurinn Christopher Smith til liðs við Fjölni. Hann er 27 ára gamall framherji. Zachary Johnson, landi hans, sem var kominn til fé- lagsins var sendur heim í staðinn.    Sverrir Kári Karlsson hefurkomið á ný í herbúðir Fjöln- ismanna hvar hann er öllum hnút- um kunnugur. Sverrir Kári var í Noregi á síðasta vetri.    Þá hefur Níels Dungal snúiðheim í Grafarvoginn á nýjan leik eftir að hafa leikið með Ár- manni á síðasta keppnistímabili.    Einnig hefurHjalti Vil- hjálmsson snúið aftur í raðir Fjölnismanna. Hann er meiddur um þessar mund- ir og ekki ljóst hvenær hann verður klár í slaginn.    Bjarni Karlsson, þjálfari ung-lingaflokks Fjölnis, verður að- stoðarmaður Bárðar þjálfara í vet- ur. Páll Briem verður Bárði einnig til halds og trausts.    Fáir leikmenn hafa yfirgefið liðFjölnis frá síðasta keppn- istímabili. Meðal þeirra eru bræð- urnir Tryggvi og Haukur Helgi Pálssynir.    Tryggvi hefur ákveðið að leggjaskóna á hilluna. Haukur Helgi er hins vegar fluttur til Bandaríkj- anna til náms. Þá ákvað Jón Sverr- isson að ganga til liðs við Breiða- blik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.