Morgunblaðið - 24.10.2009, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.10.2009, Blaðsíða 4
4 Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2009 „ÞÚ þolir ekki pressu, þú þolir ekki pressu“ er eitt af gullkornum Miðjunnar, stuðnings- mannahóps KR í körfuboltanum. Þessi ágæti „frasi“ eru mikið notaður þegar leikmenn úr öðrum liðum standa á vítalínunni í DHL-höll þeirra KR-inga. Það er mitt mat að KR-liðið þarf að glíma við mikla pressu í vetur og stóra spurningin er hvort liðið þolir þá pressu? „Draumalið“ KR frá því í fyrra er nánast horf- ið á braut. Alls eru 10 leikmenn farnir og þar á meðal fjórir byrjunarliðsmenn Jón Arnór Stef- ánsson, Jason Dourisseu, Jakob Örn Sigurð- arson og Helgi Már Magnússon. Páll Kolbeins- son, þjálfari KR, hefur ekki haft langan tíma með leikmannahópnum sem var fámennur langt fram eftir sumri. Og verkefni keppn- istímabilsins eru því vandasöm og erfið. Þaulreyndur „refur“ KR er og verður það lið sem öll lið vilja vinna. KR hefur á undanförnum árum verið í fremstu röð inni á vellinum en ekki má gleyma því að hrósa félaginu fyrir frábæra umgjörð á leikdögum. Fá félög hafa lagt eins mikla vinnu í að koma skilaboðum til fjölmiðla á framfæri í aðdraganda heimaleikja KR. Upplýs- ingaflæðið á heimasíðu félagsins er með því betra sem þekkist og stuðningsmenn KR standa þétt saman og styðja sitt lið. Páll Kolbeinsson er þaulreyndur „refur“ í faginu og hann sagði við Morgunblaðið að áskorunin hefði verið mikil að taka við gjör- breyttu liði KR. Leikstíll KR verður ekki sá sami enda aðrir leikmenn sem eiga að draga vagninn. Ég efast um að íslenskt körfuboltalið hafi verið skipað jafn hávöxnum leikmönnum og KR-liðið í ár. Fjölmargir leikmenn eru um og yfir 2 metrar og bakverðirnir eru flestir um 190 cm. Heppni spilar stórt hlutverk þegar kemur að því vinna titla í hópíþrótt. KR hafði heppnina með sér á síðasta tímabili og keppn- istímabilið hefði vel getað endað með „mar- tröð“ ef Grindvíkingar hefðu hitt úr síðasta skotinu í oddaleiknum – skoti sem þeir tóku reyndar ekki. seth@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Í slaginn Páll Kolbeinsson fær það krefjandi hlutverk að þjálfa meistaralið KR. „Þú þolir ekki pressu, þú þolir ekki …“ Páll Kolbeinsson tók við þjálfun Ís-landsmeistaraliðs KR sl. sumar en hann þjálfaði lið KR veturinn 1990-1991. Páll þjálfaði lið Tindastóls á Sauðárkróki 1994-1996 og aftur 1997-1998. Benedikt Guðmundsson var þjálfari KR á síðustu leiktíð en hann hafði þjálfað liðið frá árinu 2006.    Gríðarlegar breytingar eru á leik-mannahópi KR frá því í fyrra þegar liðið landaði Íslandsmeist- aratitlinum og lék til úrslita um bikarmeistaratitilinn gegn Stjörn- unni. Fimm leikmenn eru komnir til félagsins en 10 leikmenn yfirgáfu það.    Þrír landsliðs-menn í fremstu röð fóru frá KR í atvinnu- mennsku. Jón Arnór Stef- ánsson samdi við spænska úrvals- deildarliðið Gran- ada.    Jakob Örn Sigurðarson leikur meðSundsvall í Svíþjóð og Helgi Már Magnússon fór einnig til Svíþjóðar en hann leikur með Solna í Stokkhólmi.    Miðherjinn hávaxni Baldur Ólafs-son og framherjinn Guð- mundur Magnússon eru hættir. Ell- ert Arnarson fór til Danmerkur. Snorri Páll Sigurðsson, Páll Fannar Helgason og Pálmi Freyr Sig- urgeirsson eru allir í liði Snæfells í Stykkishólmi.    Ingi Þór Steinþórsson, aðstoðar-þjálfari KR á síðustu leiktíð, er nú aðalþjálfari Snæfells.    Bandaríkja-maðurinn Tommy Johnson er í liði KR en hann hafði áður leikið með Kefla- vík. Tommy er með bandarískt og breskt rík- isfang. KR getur því einnig teflt fram Semaj Inge frá Bandaríkjunum. Jas- on Dourisseau, Bandaríkjamaðurinn sem lék með KR-ingum, er hinsvegar farinn frá félaginu.    Miðherjinn Jón Orri Kristjánssonkom frá Þór frá Akureyri en Skagamaðurinn hefur sýnt miklar framfarir á undanförnum árum. Steinar Kaldal er á ný í KR- keppnisbúningnum en Steinar tók sér frí frá „alvöru“ körfubolta og var um tíma í liði Ármanns. Þá hefur hinn 207 cm hái miðherji Finnur Atli Magnússon snúið aftur til KR eftir langa fjarveru í Bandaríkjunum. Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is PÁLL hefur á undanförnum þrem- ur árum verið í meistaraflokksráði KR og hann situr að auki í stjórn Körfuknattleikssambands Íslands. „Það er sett pressa á stjórn KR að ná árangri og stjórnin setur pressu á leikmenn og þjálfara að ná árangri. Ég er því í ágætri stöðu að meta þetta, enda sit ég allt í kring- um borðið,“ sagði Páll í léttum tón en það er tilhlökkun hjá þjálf- aranum að takast á við þau verkefni sem eru framundan. „Ég er búinn að vera í mikilli ná- lægð við liðið á undanförnum árum. Mér finnst skemmtilegt að vera núna í því hlutverki að geta haft bein áhrif á leikinn sem þjálfari. Það var ljóst að það yrðu miklar breytingar á liðinu og mér fannst það spennandi verkefni að fá að móta nýtt lið. Ég er með tvo góða aðstoðarmenn með mér, Guðmund Magnússon og Victor Finora.“ Fáir á sumaræfingum „Sumarið var frekar óvenjulegt þar sem að það voru mjög fáir leik- menn á æfingum til að byrja með. Brynjar Þór Björnsson, Darri Hilmarsson, Finnur Atli Magn- ússon og Jón Orri Kristjánsson voru með frá upphafi. Þeir voru undir stjórn þrekþjálfara frá því um mánaðamótin maí-júní. Fannar Ólafsson var með landsliðinu í sum- ar og kom sterkur inn þegar við byrjuðum á æfingum, en annað var nánast óráðið. Það voru ekki nema 6-7 á æfingum í byrjun ágúst en frá því í september hefur fjölgað veru- lega en það á eftir að taka tíma að slípa saman liðsheild.“ Breyttur leikstíll Helsti styrkleiki KR liðsins er að í liðinu eru margir hávaxnir leik- menn en liðið hefur oft verið með fleiri afburða bakverði. Páll segir að leikaðferð liðsins verði gjörólík þeirri sem notuð var í fyrra. „Við höfum hægt verulega á sóknarleik okkar og boltinn fer mikið inn á miðherjana undir körf- unni. Við erum ekki með eins marga skotmenn og á síðustu leik- tíð. Liðið er að bæta leik sinn smátt og smátt og þá sérstaklega eftir að leikstjórnandinn Semaj Inge kom til okkar. Hann hefur komið ágæt- lega inn í þetta. Ungur strákur sem kemur beint úr hinum virta Temple-háskóla. Evrópskur körfu- bolti er ekki eins og sá sem hann lék í Bandaríkjunum. Hérna er meiri hraði og eflaust minni agi í sóknarleiknum. Menn eru skotglað- ari á Íslandi.“ Stórir strákar Finnur Atli Magnússon er 2,07 metra miðherji sem er uppalinn KR-ingur og bróðir aðstoðarþjálf- arans Guðmundar Magnússonar. Finnur meiddist sl. vor og er að ná sér á strik eftir þau meiðsli og telur Páll að KR-liðið eigi eftir að vaxa og dafna þegar lengra líður á tíma- bilið. „Jón Orri Kristjánsson er 2 metra miðherji sem kom til okkar frá Akureyri. Fannar Ólafsson er rúmir 2 metrar og flestir af leik- mönnum liðsins eru um 1,9 m á hæð. Liðið er því frekar óhefð- bundið á íslenskan mælikvarða. Við munum nýta okkur hæðina og ég held að það sé ekkert íslenskt lið sem hefur farið alla leið með slíkum áherslum,“ sagði Páll Kolbeinsson. „Að sjálfsögðu er mikil pressa á okkur“  Páll Kolbeinsson mótar nýtt lið hjá KR  Hávaxnir leikmenn og færri skyttur Morgunblaðið/Kristinn Nýr KR-ingur Tommy Johnson lék vel með Keflavík fyrir tveimur árum en hann er KR-ingur í dag. „Að sjálfsögðu er mikil pressa á okk- ur að ná árangri. Við víkjum okkur ekki undan því en markmiðið er að vera með samkeppnishæft lið sem getur náð einu af fjórum efstu sæt- unum, dregið að sér áhorfendur, og síðan sjáum við til með framhaldið í úrslitakeppninni,“ sagði Páll Kol- beinsson, þjálfari KR, þegar hann var inntur eftir markmiðum meistaraliðs KR í vetur. Björn Kristjánsson 17 ára Bakvörður Brynjar Þór Björnsson 21 árs Bakvörður Darri Hilmarsson 22 ára Framherji Egill Vignisson 17 ára Framherji Fannar Ólafsson 31 árs Miðherji Finnur Atli Magnússon 24 ára Miðherji Jón Orri Kristjánsson 26 ára Miðherji Kristófer Acox 16 ára Framherji Ólafur Már Ægisson 28 ára Bakvörður Semaj Inge 23 ára Bakvörður Skarphéðinn Freyr Ingason 32 ára Framherji Steinar Kaldal 30 ára Bakvörður Tommy Johnson 28 ára Framherji Leikmannahópur KR 2009-2010

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.