Morgunblaðið - 26.10.2009, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 26.10.2009, Blaðsíða 8
8 Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 2009 VORIÐ 1996 fagnaði Grindavík Íslandsmeist- aratitlinum í körfubolta karla eftir úr- slitaeinvígi við grannaliðið úr Keflavík. Grindavík rauf þar einokun Keflavíkur og Njarðvíkur sem höfðu skipst á um að landa þessum titli frá árinu 1991. Grindavík hefur ekki náð að endurtaka leikinn frá vorinu 1996 þrátt fyrir að liðið hafi verið vel skipað og kom- ið sér í færi til að ná alla leið. S.l. vor fékk Grindavík gullið tækifæri til þess að landa Ís- landsmeistaratitlinum í oddaleik gegn KR í DHL-höllinni. KR sigraði 84:83 í þeim leik en Grindvíkingar voru með boltann í síðustu sókn leiksins og höfðu tækifæri til þess að skora. En sóknin rann út í sandinn án þess að liðið næði að skjóta á körfuna. Eflaust hafa leikmenn, þjálfarinn og stjórnarmenn verið að ergja sig á þeirri staðreynd eitthvað fram eftir sumri. Grindvíkingar verða án efa í baráttunni um alla þá titla sem eru í boði í íslenskum körfu- bolta í vetur. Liðið hefur nú þegar landað ein- um titli, í Fyrirtækjabikarkeppni KKÍ, Powe- rade-bikarkeppninni. Heppni spilar oft stórt hlutverk í meistarabaráttunni og Grindvík- ingar höfðu ekki heppnina með sér þegar helsti stigaskorari liðsins, Páll Axel Vilbergs- son, meiddist á hné í miðri úrslitakeppni. Friðrik Ragnarsson þjálfari Grindavíkur hefur reynt að þróa leikstíl liðsins í þá átt að liðið verði „heilsteyptara“. Það hefur reynst Grindvíkingum erfitt að leita ekki í það gamla far að reyna að „skjóta“ sig inn í leikina með langskotum þegar illa gengur. Þegar skyttur Grindvíkinga eru í „stuði“ er liðið nánast ósigr- andi en þegar skytturnar eru ekki „heitar“ er liðið oft brothætt. Friðrik hefur fengið til liðs við sig tvo fína varnarmenn og frákastara fyrir átökin í vetur. Ómar Sævarsson úr ÍR, sem gefur aldrei þumlung eftir í vörn eða fráköstunum, og Bandaríkjamaðurinn Amani Bin Daanish er fínn varnarmaður sem getur varið skot og tek- ið fráköst. Grindavík hefur hikstað aðeins í upphafi Íslandsmótsins en liðið mun eflaust styrkjast þegar á líður. seth@mbl.is Morgunblaðið/Golli Nýr maður Ómar Sævarsson, fyrrum ÍR- ingur, er nýr leikmaður í röðum Grindavíkur. Er tími Grindvíkinga runninn upp? Friðrik Ragnarsson er þjálfariGrindavíkur líkt og í fyrra en undir hans stjórn komst liðið í úr- slitarimmuna á Íslandsmótinu. Liðið tapaði í oddaleik gegn KR sem fagn- aði Íslandsmeistaratitlinum. Friðrik er þaulreyndur þjálfari og gerði hann Njarðvíkinga að Íslandsmeist- urum tvívegis, 2001 og 2002.    Töluverðarbreytingar eru á leik- mannahóp Grindavíkur og tveir byrj- unarliðsmenn eru farnir. Hinn þaul- reyndi miðherji Páll Kristinsson sneri á ný í sitt gamla félag Njarðvík en Páll hafði leikið með Grindavík á undanförnum árum. Bandaríkja- maðurinn Nick Bradford samdi við enska liðið Everton og er án efa að tala við mótherja, dómara og stuðn- ingsmenn í öllum leikjum liðsins.    Helgi JónasGuðfinns- son lék með Grindavík í fyrra en hann er ekki í leikmannahópn- um í ár. Helgi er samkvæmt heim- ildum Morg- unblaðsins að huga að búferlaflutningum til Bandaríkjana þar sem hann ætlar sér að vinna sem líkamsræktarþjálf- ari.    Davíð Hermannsson er í liðiHauka í vetur en Davíð fékk ekki mörg tækifæri í miðherjastöð- unni á síðustu leiktíð.    Ómar Sævarsson kom til Grind-víkinga úr ÍR. Ómar er einn öflugasti frákastari deildarinnar og þá sérstaklega í sóknarfráköstum. Ómar ætti að nýtast vel í liði Grinda- víkur. Ólafur Ólafsson er kominn frá Þýskalandi og Ármann Vilbergs- son úr 1. deildarliði Ármanns. Ár- mann er yngri bróðir Páls Axels Vil- bergssonar. Ólafur er gríðarlegt efni og hinum þykir ekkert leiðinlegt að troða boltanum í körfuna en hann sigraði troðslukeppni KKÍ fyrir ári síðan.    Bandaríski miðherjinn Amani BinDaanish hefur vakið athygli með Grindavík það sem af er. Hann er góður varnarmaður og frákastari en getur komið boltanum ofan í körf- una úr opnum færum. Daanish er rétt rúmlega 2 metrar á hæð og 26 ára. Hann hefur komið víða við á ferlinum og leikið m.a. í Malasíu og Finnlandi. Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is GRINDAVÍK rétt marði nýliða Fjölnis í 2. umferð eftir að hafa unnið Tindastól nokkuð örugglega í 1. umferð. Grindavík tapaði gegn grannaliðinu Njarðvík á heimavelli í 3. umferð og segir Friðrik að nokkur atriði þurfi að laga í sókn- arleik Grindavíkur fyrir næstu leikjatörn. „Við höfum ekki leikið af fullum styrk í síðustu tveimur leikjum. Það er sóknarleikurinn sem er vandamálið, aldrei þessu vant. Ég man varla eftir því að Grindavík ætti í vandræðum með sóknina en það er víst raunin hjá okkur. Við erum ekki að gera hlutina eins og við viljum hafa þá. Boltinn fær ekki að flæða nógu mikið og menn drippla of mikið. Og stóru menn- irnir fá ekki boltann undir körf- unni. Þetta erum við að laga og ég hef svo sem ekki miklar áhyggjur af sókninni, það mun lagast.“ „Sjáum ekki landsliðsmennina yfir sumartímann“ Þjálfarinn var ekki lengi að jafna sig eftir oddaleikinn s.l. vor gegn KR þar sem Grindavík var hárs- breidd frá því að landa Íslands- meistaratitlinum. Undirbúnings- tímabilið hófst strax að loknu Íslandsmótinu í maí þar sem áherslan var lögð á að byggja upp yngri leikmenn liðsins. „Við áttum þrjá leikmenn í A-landsliðinu og maður sér þá varla yfir sumartím- ann. Þá eru þeir undir stjórn Sig- urðar Ingimundarsonar landsliðs- þjálfara. Ég fékk hópinn um miðjan júlí og við æfðum vel með hefð- bundnum hætti fram að fyrsta leik. Mér finnst við vera með sterkan hóp sem ætti að geta gert atlögu að þeim titlum sem eru í boði.“ Fráköstin eru mikilvæg Töluverðar breytingar eru á leik- mannahóp Grindavíkur og tveir af þekktustu körfuboltamönnum Ís- lands eru farnir frá félaginu. Helgi Jónas Guðfinnsson er hættur og Páll Kristinsson fór til Njarðvíkur þar sem hann hóf ferilinn. Friðrik segir að hann hafi leitað að leik- manni til þess að fylla skarð Páls og Ólafur Ólafsson, ungur Grind- víkingur, fær að spreyta sig í vetur í stöðunni hans Helga. „Við eigum að vera betri í því að taka fráköst eftir að við fengum Ómar Sæv- arsson frá ÍR. Ég var ánægður með að fá hann og Ómar mun styrkja okkur í fráköstunum. Am- ani Bin Daanish kom einnig til okk- ar en hann er bandarískur mið- eða framherji. Öflugur frákastari og góður varnarmaður. Við töpuðum einum 7-8 leikjum á síðustu leiktíð og í þeim leikjum vorum við alltaf undir í baráttunni um fráköstin. Það munaði yfirleitt 10 fráköstum eða fleirum. Við ættum að vera betri á þessu sviði í vetur.“ Ekki verið að leita að fleiri leikmönnum Þjálfarinn ætlar ekki að leita að frekari liðsstyrk í Evrópu. „Nei, það er ekki á dagskrá að fá leik- mann frá Evrópu til okkar. Ég er með unga leikmenn sem fá tæki- færi til þess að sýna sig og sanna. Kjarninn frá því í fyrra er til staðar og við eigum alveg að spjara okkur eins og liðið er skipað. Upphafið á keppnistímabilinu gefur vísbend- ingar um að Iceland Express deild karla verði tvískipt í vetur. Að mínu mati eru fleiri sterkari lið en í fyrra, jafnvel 6-7 lið sem geta unnið hvaða lið sem er. Í fyrra fannst mér það vera KR, Grindavík og Snæfell sem skáru sig út. Það eru fleiri góð lið í deildinni núna. Þau lið sem verða í neðri hlutanum gætu lent í vandræðum en eins og þetta lítur út núna þá er FSu með veikasta liðið,“ sagði Friðrik Ragn- arsson. Grindavík glímir við óvenjulegt vandamál Morgunblaðið/Golli Varnarmaður Amari Bin Daanish er góður varnarmaður sem styrkir Grindavíkurliðið mikið undir körfunni. „Ég tel að Grindavík geti blandað sér í baráttuna um þá titla sem eru í boði í vetur. Hópurinn er þéttur og góður og við erum betri í því að taka fráköst en oft áður. Sóknarleikurinn hefur „hikstað“ í síðustu tveimur leikjum en við verðum ekki lengi að laga það fyrir stórleikinn gegn KR á föstudag- inn,“ segir Friðrik Ragnarsson þjálfari karlaliðs Grindavíkur.  Sóknarleikurinn er veikleiki Grindavíkurliðsins þessa dagana  Friðrik Ragnarsson þjálfari liðsins telur liðið til alls líklegt í vetur Leikmannahópur Grindavíkur 2009-2010 Amani Bin Daanish 26 ára Framherji/miðherji Arnar Freyr Jónsson 26 ára Bakvörður Ármann Örn Vilbergsson 24 ára Bakvörður Björn Steinar Brynjólfsson 27 ára Bakvörður Brenton Birmingham 37 ára Bakvörður/framherji Egill Birgisson 18 ára Miðherji Guðlaugur Eyjólfsson 29 ára Bakvörður Marteinn Guðbjartsson 17 ára Bakvörður Nökkvi Már Jónsson 37 ára Framherji Ólafur Ólafsson 19 ára Bakvörður/framherji Ómar Sævarsson 27 ára Framherji Páll Axel Vilbergsson 31 árs Bakvörður/framherji Þorleifur Ólafsson 25 ára Bakvörður/framherji Þorsteinn Finnbogason 19 ára Bakvörður/framherji

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.