24 VALUR INGIMUNDARSON ekkert rætt um, að erlendir" tæknimenn yrðu hér eftir. Markmið ályktunarinnar var heldur ekki að færa Keflavíkursamninginn frá árinu 1946 í nýjan búning. Gylfi Þ. Gíslason sagði síðar, að forystu- menn Alþýðuflokksins hefðu dregið í efa, að Bandaríkjamenn yrðu við óskum íslenskra stjórnvalda um brortför hersins. Þeir hefðu því verið þeirrar skoðunar að breyta ætti varnarsamningnum á þann veg, að umsvif varnarhðsins yrðu takmörkuð sem mest.62 Bréf Bene- dikts kemur heim og saman við þetta viðhorf, en tillaga hans um framtíðarskipan varnarmálanna hefur áreiðanlega fremur verið bundin við vinstri arm Alþýðuflokksins en forystusveit hans. Banda- ríkjamenn höfðu líka heimildir fyrir því, að þeim Gylfa og Benedikt, sem höfðu farið til Norðurlanda nokkrum vikum eftir srjórnarmynd- unina til skrafs og ráðagerða við norræna jafnaðarmenn, hefði ekki tekist að afla sjónarmiðum sínum í hermálinu fylgis.63 Samt fóru skoðanir margra framsóknarmanna og vinstri arms Alþýðuflokks- ins hér saman, enda var Hermann Jónasson ekki enn reiðubúinn til að hvika frá stefnunni um brottför hersins.64 Muccio fékk einnig þær upplýsingar í byrjun september, að nokkr- ir áhrifamenn í Alþýðuflokknum, þar á meðal Ásgeir Ásgeirsson, væru að reyna að fá þá Hannibal Valdimarsson, Alfreð Gíslason og Lúðvfk Jósepsson til að segja skilið við kommúnistakjamann" í Al- þýðubandalaginu. Forsendan væri sú, að unnt yrði að komast að málamiðlun í samningaviðræðunum við Bandaríkjamenn, sem gerði vinstri jafnaðarmönnum kleift að sætta sig við áframhaldandi dvöl hersins.65 Vilhjálmur Þór tjáði bandarískum embættismönnum í lok september, að fulltrúar Framsóknarflokksins í ríkisstjórninni hefðu einnig unnið að því að kljúfa Alþýðubandalagið, með það fyrir aug- um, að kommúnistar segðu skilið við flokkinn.66 Framsóknarmönn- um og Alþýðuflokki varð ekki kápan úr því klæðinu, en samt má fullyrða, að tilraunir þeirra til að hafa áhrif á stefnu Alþýðubanda- 62 Þorleifur Friðriksson: Undirheimar íslenskra stjómmála, bls. 126. 63 NA, RG 59, Box 3175, 740B.O0/8-2356: Bandaríska sendiráðið (Reykjavík) til utanríkisráðuneytis (Washington), Review of Political Developments, Aug- ust 10-23", 23. ágúst 1956. 64 NA, RG 59, Box 3175, 740B.00/9-2656: Minnisblað, viðræður við Vilhjálm Þór, 26. september 1956. 65 NA, RG 59, Box 3175, 740B.00/9-1956: Muccio til Parsons, 10. september 1956. 66 NA, RG 59, Box 3175, 740B.00/9-2656: Minnisblað, viðræður við Vilhjálm Þór, 26. september 1956.