126 ÞORSTEINN HELGASON skríða gegn þeim sem eftir voru (í spænskum heimildum oft nefndir Moriscos en í öðrum Andalúsíumenn), hvort sem þeir höfðu tekið kristni eða ekki. Þessir menn höfðu harma að hefna og sumir þeirra leituðu hælis í Algeirsborg eða Salé í Marokkó eins og síðar verður vikiðað. Sjóræningjar í Alsír eru sumir Tyrkir eða márar að uppruna, segir Haedo og miðar einkum við árið 1581, en meirihluti þeirra kemur úr röðum trúskiptinga af alls konar þjóðerni og þeir eru slyngir í strandsiglingu með löndum kristinna manna."39 Trúskiptingarnir voru Evrópumenn að uppruna og þeir fyrsru voru einkum ættaðir frá Miðjarðarhafslöndum. Astæður þess að þeir köstuðu trú sinni voru margvíslegar. Ymist var þar um val að ræða eða þvingun. Um 1600 fór Norður-Evrópurnönnum að fjölga í þess- um hópi, ekki síst Englendingum og Hollendingum. Ein ástæðan var sú að hlé varð á stríði þessara þjóða við höfuðóvininn, Spánverja; hjá Hollendingum 1609-21 og Englendingum 1603-25. Þá voru sjó- ránaleyfi innkölluð og hraustir sjómenn gerðust daufir í dálkinn. Þeir tóku þá allmargir til bragðs að ganga til liðs við sjóránamiðstöðv- arnar í Barbaríinu þar sem sjaldan skorti verkefni. Þetta varð mjög til að efla siglingalist og sjórán á þessum stöðum.40 Sjóræningjarnir höfðu að jafnaði kristna þræla í þjónustu sinni og sóttust eftir kunnáttumönnum við skipasmíðar.41 Þrælarnir voru hafðir við árar, segir Haedo, en þeir sem ekki áttu þræla gátu leigt þá hjá kaupmönnum eða borgað frjálsum márum sama gjald.42 Tyrkja- ránsárið 1627 var orðíð minna um ræðara, einkum í langferðum, þar sem Norður-Afríkumenn höfðu tileinkað sér nýja siglingatækni og skip. Sumir telja að kristnir menn hafi sloppið við að vera sendir á galeiðuna ef þeir köstuðu trúnni.43 Auk þessara skipsmanna, sem hér eru nefndir og komu úr Al- geirsborg þó að uppruninn væri margs konar, barst stundum beinn liðsauki frá Evrópu. Sjóræningjar, sem störfuðu sjálfstætt eða veif- 39 Sama rit. Kafli XXI, 618. 40 de Groot, Alexander H., Ottoman North Africa and the Dutch Republic in the Seventeenth and Eighteenth Centuries." Revue de l'Occident Musulman et de la Méditerranée. 1985-1, 131-47. - Lloyd, Christopher, English Corsairs on the Barbary Coast. 41 Haedo, Revue Africaine, 15. árg. 1871, kafli XXI, 42. 42 Sama rit, 42-3. 43 Dan,343.