HÁKON HÁKONARSON 175 af Islendingasögu að tilraun sé gerð til að skipa Snorra að fara utan eða að þvinga hann til þess. Pað er ekki konungur sem tekur ákvörðun um að drepa Snorra. í Hákonarsögu segir: Þetta haust tók Gizurr Þorvaldsson af lífi Snorra Srurluson í Reykjaholti á íslandi."20 Vígínu er lýst algjörlega a hendur Gissuri. í íslendingasögu kemur aftur á móti hvergi fram að Gissur hafi gefið skipun um að drepa Snorra. Þar er sagt frá kost- um konungs og því að Gissur reyni ekkert til að fá Snorra til að fara utan með góðu, en hvergi er minnst á að ætlunin sé að drepa hann vW en Símon knútur, skósveinn Gissurar, biður Árna beisk að "öggva Snorra.21 Enginn vafi leikur á að víg Snorra hefur þótt fólskuverk og þar sem mikils kulda gætir í garð Gissurar í Hákon- arsögu þarf ekki að koma á óvart að vígið sé þar eignað honum.22 Hákonarsaga er skrifuð skömmu eftir lát konungs og meint svik Gissurar jarls (eins og hann var þá) við Sturlu Þórðarson honum í fersku minni. íslendingasaga er á hinn bóginn varla skrifuð fyrr en Urn 1280.23 Þá er Gissur látinn, Sturla sjálfur orðinn helsti valdamað- Ur á Islandi og reiðin gufuð upp. Hann tekur því þá afstöðu að taka enga afstöðu: Ekki er úr því skorið hvort það var konungur eða Giss- Ur sem ber ábyrgðina en allri sök skellt á smáættaðan mann, Símon ^út, sem hefur hvort sem er verið veginn til hefnda.24 Margir sagnfræðingar á þessari öld hafa talið Hákon konung bera abvrgð á vígi Snorra.25 En þá afstöðu hafa þeir ekki frá Sturlu Þórð- 20 Hákonar saga, 316. 21 Sturlunga saga 1,454. aturla taldi Gissur hafa svikið sig um lén, eins og fram kemur í íslendinga- sogu: Þá var Hrafni Oddssyni skipaðr Borgarfjörðr, en tekinn af Gizuri jarli, en jarl hafði skipat áðr Sturlu Þórðarsyni. Þótti Sturlu þá eigi efnd við sik af Gizuri jarli þau in fögru heit, er fram váru mælt við hann." (Sturlunga saga I, a'8). Kala í garð Gissurar má greinilega sjá í lýsingum Hákonarsögu, 361,403, 406 og 421-22. Jón Jóhannesson. Um Sturlungu", xxxix. össi vingulsháttur sagnaritarans Sturlu kemur vel heim við vingulshátt lög- mannsins Sturlu eins og honum er lýst í Árna sögu biskups (Þorleifur Hauks- son bjó til prentunar. Rit Stofnunar Árna Magnússonar á fslandi 2, Rvík 1972, _ ' 57): lögsögumaður var ógreiður og skaut flestum málum undir byskups om og annarra manna, þeirra er sýndist" og síðar: af Sturlu stóð minna gagn -» n P01^ stóð til". Samraeming er á ábyrgð undirritaðs. Jon Helgason. Kristnisaga íslands, 134. Einar Ól. Sveinsson. Sturlungaöld, 14. Jón Jóhannesson. íslendinga saga 1,301 og víðar.