176 ÁRMANN JAKOBSSON arsyni sem segir frá því að Órækja Snorrason fór utan og fékk grið fyrir að fara út í óleyfi, eins og Snorri hafði gert, en þó sagði kon- ungr hann betr til fallinn at deyja fyrir þá sök en föður hans, - ok eigi mundi hann dáit hafa, ef hann hefði á minn fund komit.""26 Þetta er niðurstaða Hákonarsögu í málinu. Konungur er ekki sekur um dauða Snorra. Vígið var framið gegn vilja hans. Það er fyrst þegar kemur fram yfir 1240 að Hákon fer að koma að ráði við sögu íslands. Fyrst í stað virðist það vera að frumkvæði ís- lenskra höfðingja. Gissur býður Órækju að konungur geri um mál þeirra árið 1242,27 árið 1245 verður sú lausn á deilum Þórðar kakala og Kolbeins unga að þeir myndi fara útan báðir, Kolbeinn ok Þórðr, ok skyldi Hákon konungr gera um öll mál þeira".28 Árið eftir sættast Þórður og Gissur á að Hákon konungr skyldi gera með þeim við þá menn, sem hann vildi við hafa."29 Árið 1249 sigla Sæ- mundarsynir til Noregs og gefa Noregskonungi goðorð sín.30 Hvergi verður séð að Hákon konungur eigi frumkvæði að þessu31 og þaðan af síður bendir neitt til þess að hann reyni að magna innanlandsátök á íslandi. Hann virðist fremur vera dreginn inn í þau af íslenskum höfðingjum sem hver um sig vill fá stuðning hans í eigin deilum- Jafnvel Eyjólfur ofsi býðst til að leggja mál sín í dóm hans árið 125532 og bændur í Eyjafirði vilja engu svara Þorvarði Þórarinssyni nema að hafa ráð Hákonar konungs og Þórðar kakala.33 Það er ekki fyrr en eftir krýningu sína árið 1247 að konungur fer beinlínis að gera tilkall til íslands og samkvæmt Hákonarsögu er það að bendingu Vilhjálms kardínála: Vilhjálmr cardinalis sagði þat ósannligt, at ísland þjónaði eigi undir einn konung sem öll önnur lönd í veröldu."34 Nýlega hefur verið sýnt fram á að þar sem kardín- álinn var ættaður frá eina svæði Evrópu þar sem enginn konungur 26 Hákonarsaga, 317. 27 Sturlunga saga 1,462. 28 Sturlunga saga II, 68. 29 Samarit,81. 30 Sturlunga saga 1,474. 31 í Þorgilssögu skarða (Sturlunga saga II, 111) er því haldið fram að Hákon han hug á að fá skatt á fslandi þegar árið 1245 en þetta er raunar fullyrt í fremur ævintýrakenndri frásögn af æskuárum Þorgils. 32 Sama rit, 495. 33 Sturlunga saga II, 192. 34 Hákonar saga, 335.