Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

SunnudagsMogginn

og  
S M Þ M F F L
. . . . 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |

Ašalrit:

Morgunblašiš


Ašlaga breidd


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



SunnudagsMogginn

						16 25. október 2009

Á

kveða á aðgerðir til að stemma

stigu við hlýnun andrúms-

loftsins á loftslagsráðstefn-

unni, sem haldin verður í

Kaupmannahöfn í desember. Vís-

indamenn hafa komist að þeirri nið-

urstöðu að koma verði í veg fyrir að hita-

stigið hækki um meira en tvær gráður á

selsíus. Ef marka má orð ráðamanna er

brýnt að gripið verði til aðgerða, en engu

að síður gengur undirbúningurinn fyrir

fundinn hægt. Markmiðið er að í Kaup-

mannahöfn líti dagsins ljós sáttmáli, sem

á að taka við af Kyoto-sáttmálanum, sem

tók gildi árið 1997 og rennur út 2012. 

Nú er hins vegar gerð krafa um að sett

verði skýrari markmið, sem hægt verði

að fylgjast með og sannreyna að verði

haldin. Málið vandast aftur á móti þegar

kemur að útfærslunni og spurt er hverjir

eigi að axla byrðarnar og færa fórnirnar.

Óttast menn jafnvel að fundurinn í

Kaupmannahöfn renni út í sandinn. 

Ekki auðvelda efasemdir um vísindin

málin. Um miðjan mánuðinn birtist frétt

á fréttavef BBC um að undanfarin 11 ár

hefði engin hækkun orðið á hitastigi í

heiminum og hlýjasta ár frá því mælingar

hófust hefði hvorki verið 2008 né 2007

heldur 1998. Efahyggjumenn segja þetta

renna stoðum undir kenningar þeirra um

að finna megi margar náttúrulegar

ástæður fyrir hlýnun og kólnun og hlutur

mannsins sé hverfandi. Aðrir segja að

búast megi við sveiflum. Meginþróun

hitastigs sé upp á við, en alltaf megi búast

við að hægi á ferlinu og jafnvel kólni

tímabundið.

Hættulega nærri þrátefli

Fyrir hálfum mánuði var haldin ráðstefna

á vegum stofnunarinnar Project Syndi-

cate, sem er með fjölda dálkahöfunda úr

röðum stjórnmála- og fræðimanna á sín-

um snærum, undir yfirskriftinni frá

Kyoto til Kaupmannahafnar. 

Við setningu ráðstefnunnar sagði

Manuel Barroso, forseti framkvæmda-

stjórnar Evrópusambandsins, að þrátt

fyrir fundahöld í New York, Pittsburgh

og Bangkok hefði hann ?verulegar

áhyggjur út af horfunum á þessu stigi

samninganna þar sem við erum hættu-

lega nærri þrátefli? og skoraði um leið á

leiðtoga heims að leggjast á árarnar.

Lars Løkke Rasmussen, forsætisráð-

herra Danmerkur, fjallaði sömuleiðis um

hægaganginn í viðræðunum, en kvaðst

bjartsýnn: ?Ég held að við getum í raun

náð samkomulagi. Metnaðarfullu sam-

komulagi. Mín tilfinning er sú að heil-

brigð skynsemi verði ofan á og við mun-

um finna praktískar lausnir á þeim

vandamálum, sem eftir eru.? 

Kofi Annan, fyrrverandi fram-

kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, dró

upp mynd af þeim afleiðingum, sem spáð

væri að loftslagsbreytingar gætu haft í för

með sér. Á síðasta ári hefðu 20 milljónir

manna lent á vergangi vegna hamfara,

sem tengdust loftslaginu, og ástandið

ætti eftir að versna. ?Það er sorgleg kald-

hæðni að þau lönd, sem hafa gert minnst

til að valda loftslagsbreytingum, líða nú

og munu líða mest fyrir afleiðingar

þeirra,? sagði Annan. Hann sagði að

sanngirni væri lykilorðið í boðskap sín-

um: ?Auk þess að vera algilt og metn-

aðarfullt verður framtíðarsamkomulag

að hvíla á loftslagsréttlæti.? 

Réttlæti í loftslagsmálum

Réttlæti er einmitt leiðtogum þróunar-

ríkja efst í huga í loftslagsmálunum.

Graciela Chichilnisky, prófessor í stærð-

fræði og hagfræði við Columbia-háskóla í

New York, skrifar á vef BBC að þróun-

arríki þurfi orku til að draga úr fátækt og

staðreyndin sé einfaldlega sú að 89% af

orkunotkun heimsins séu bundin við

jarðefnaeldsneyti. ?Rúmlega 50% íbúa

heimsins lifa á undir tveimur dollurum á

dag og meira en 1,3 milljarðar manna eru

á mörkum þess að komast af og hafa að-

eins einn dollara á dag,? skrifar hún.

?80% mannkyns búa í þróunarríkjum,

en bera aðeins ábyrgð á 40% losunar-

innar á meðan 60% losunar í heiminum

eiga sér stað hjá ríku þjóðunum, sem eru

20% af íbúum jarðar.?

Auðugustu þjóðir heims bera því mesta

ábyrgð á menguninni. Þegar þær lögðu

grunninn að velferð sinni og velmegun

gilti einu um umhverfismál og gróður-

húsalofttegundir. Þróunarríkin vilja eðli-

lega ekki að aðgerðir vegna synda auðugu

ríkjanna verði dragbítur á þróun þeirra

og ætla mörg þeirra ekki að skrifa undir

nýjan samning nema þau fái fjárframlög

til að aðstoða þau við að laga sig að nýjum

aðstæðum. Því er spáð að 75% af aukinni

orkuþörf í heiminum til 2030 verði í þró-

unarríkjunum.

Sérfræðinga greinir á um hvað það

muni kosta, en ljóst er að upphæðirnar

eru háar. Sumir segja að kostnaðurinn

verði 100 milljarðar dollara á ári árið

2020, en því er jafnvel haldið fram að

upphæðin verði þúsund milljarðar doll-

ara.

Iðnríkin hafa í raun samþykkt að þau

þurfi að opna budduna og styrkja þróun-

arríkin, en hvernig það verði gert og hver

eigi að borga hvað er annað mál og

hremmingar í fjármálalífi heimsins hafa

ekki greitt fyrir lausnum.

Mestrar aukningar á útblæstri gróður-

húsalofttegunda er að vænta á Indlandi

og í Kína. Kínverjar hafa látið að því

liggja að þeir séu tilbúnir til að setja út-

blæstri skorður án þess að skilgreina það

nánar. Þótt mikið vanti upp á að Kínverj-

ar hafi náð lífskjörum Vesturlanda eiga

kínversk stjórnvöld digra sjóði og því

hefur sú spurning vaknað hvort þeir eigi

líka að borga. 

Pan Jiahua, framkvæmdastjóri Kín-

versku félagsvísindaakademíunnar, sem

situr í sérfræðinganefnd Kína um lofts-

lagsbreytingar, sagði á blaðamannafundi

á ráðstefnunni í Kaupmannahöfn að Kín-

verjar þyrftu að koma stöðugleika á losun

áður en hafist yrði handa við að draga úr

henni. Hann vísaði í valdatíð Maós for-

manns þegar stökkið mikla framávið

leiddi til hungursneyðar. ?Við þurfum að

reisa húsnæði og skapa ný störf,? sagði

hann. ?Við þurfum ekki að endurtaka

stökkið mikla framávið. Við þurfum að

taka eitt skref í einu.? 

Fátækt er aftur á móti mun meiri á

Indlandi og Indverjar eru því mjög tregir

til að samþykkja takmörk við útblæstri.

Þeir líta á slík takmörk sem spennitreyju

í þróunarmálum nema þeim berist drjúg

aðstoð til að taka upp nýja tækni.

Þrýstingurinn er ekki síst á Banda-

ríkjamenn. Barack Obama Bandaríkja-

forseti hefur talað fjálglega um umhverf-

ismál, en hann hefur þó ekki tekið þá

forustu í loftslagsmálum, sem margir

vonuðust til að arftaki George Bush

myndi gera. Þetta helgast meðal annars

af því að Obama er tregur til að gefa fyr-

irheit, sem kæmust ekki í gegnum þing-

ið.

Ef við hefðum 1000 jarðir ?

Breski fræðimaðurinn Nicholas Stern var

á ráðstefnu Project Syndicate og sagði að

rynni loftslagsfundurinn í Kaupmanna-

höfn í desember út í sandinn væri það

ekki eins og að fresta því að leggja veg eða

reisa skóla: ?Ef þetta tefst er hættan mun

meiri, en við höfum grunninn til að ná

samkomulagi.? Stern sagði í skýrslu árið

2006 að 2°C hækkun á hitastigi myndi

kosta 1% af þjóðaframleiðslu heimsins. Í

nýlegri skýrslu frá Alþjóðabankanum

kemur fram að kostnaðurinn vegna lofts-

lagshlýnunar yrði mun meiri í hinum fá-

tæku ríkjum heimsins. Kostnaðurinn

yrði um 4% af þjóðarframleiðslu í Afríku

og 5% á Indlandi. Það kemur því ekki á

óvart að áhyggjur af hægagangi umræðna

í aðdragandanum að fundinum í Kaup-

mannahöfn skuli valda áhyggjum í þró-

unarlöndunum. 

Hagfræðingurinn Joseph Stiglitz var

meðal þátttakenda í ráðstefnu Project

Syndicate. Hann var spurður um áreið-

anleika vísindanna að baki fullyrðing-

unum um hlýnun loftslags af manna-

völdum og svaraði því til að hefði

mannkynið yfir að ráða þúsund plán-

etum á borð við jörðina væri einfalt að

vera með tilraunastarfsemi. Þá væri hægt

að halda uppteknum hætti og færi svo að

ein pláneta yrði óbyggileg væri hægt að

færa sig yfir á þá næstu. ?En við höfum

bara eina jörð, ekki þúsund, og eigum því

ekki annars kost en að fara eftir viðvör-

ununum,? sagði Stiglitz. 

Loftslags-

klúður í Kaup-

mannahöfn?

Í desember koma leiðtogar ríkja heims saman í

Kaupmannahöfn til að gera nýjan loftslagssátt-

mála, sem taka á við af Kyoto-sáttmálanum.

Hægt hefur gengið að fá ríki heims til að leggja

fram raunverulegar skuldbindingar, þótt ráða-

menn tali fjálglega um þessi mál í ræðum.

Karl Blöndal kbl@mbl.is

Bandaríkin:Losaumsjömilljarðatonnaaf

kolefniááriíandrúmsloftiðeða20tonná

mann.TakmarkBandaríkjamannaeraðárið

2020verðilosunkominniðuráþaðstig,sem

húnvarárið1990.Þaðer3-4%samdráttur.

Evrópa:Ídesembersamþykktu

aðildarríkin27íEvrópusambandinu

aðdragaúrlosungróðurhúsaloft-

tegundaum20%fyrirárið2020

miðaðviðútblástur1990ogkoma

hlutfalliendurnýjanlegraorkugjafa

afheildarnotkuní20%.

Suður-Ameríka:Brasilíaskiptirmálií

samningunum.Brasilíumennsegjaað

ríkulöndinberiábyrgðinaáástandinu

ogþurfiaðaxlaþyngstubyrðarnar.

Viljaaðríkulöndindragiúrlosunum

40%árið2020.Eruandvígirþvíað

komiðverðiákolefnisviðskiptumtil

aðdragaúreyðinguskóga,enflest

ríkiheimsvirðastveraþvífylgjandi.

40%

Þáttur Kínverja og Bandaríkja-

manna í heildarlosun kolefna í

heiminum.

2°C

Sú hækkun á hitastigi, sem vís-

indamenn telja óhætt að eigi sér

stað umfram meðalhita fyrir iðn-

væðingu. Líkön vísindamanna

benda til þess að hækki hitinn

meira hefði það geigvænlegar af-

leiðingar.

50%

Samdrátturinn í losun koldíoxíðs

sem sagt er að þurfi að eiga sér

stað fyrir 2050 miðað við stöðuna

sem var 1990 til að koma í veg fyr-

ir að hitastigið hækki um 2°C. 

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60