Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

SunnudagsMogginn

og  
S M Þ M F F L
. . . . 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |

Ašalrit:

Morgunblašiš


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



SunnudagsMogginn

						22 25. október 2009

fengið ákveðin skilaboð um það hvernig ætti að

stilla upp á lista og þar væri nafn mitt ekki að

finna. Þá fór framkvæmdastjóri Starfsgreina-

sambandsins um landið og heimsótti formenn að-

ildarfélaga til að safna liði gegn mér. Það líkaði mér

illa.?

Hvaða skoðanir þínar telurðu að séu óvinsæl-

ar hjá þessum ákveðna hópi manna?

?Mér hefur fundist að verkalýðsforystan leggi

ekki næga áherslu á að leiðrétta kjör þeirra sem

minnst mega sín í þjóðfélaginu. Laun þess hóps eru

smánarblettur og skandall og lægri en atvinnu-

leysisbætur. Í búsáhaldabyltingunni hefði ég viljað

sjá verkalýðshreyfinguna stíga fram en hún fór í

felur um leið og almenningur mætti á Austurvöll

til að mótmæla ástandinu og krefjast úrbóta. Í

þessum mótmælum var verið að gera upp ákveðið

skeið í Íslandssögunni sem hafði einkennst af

sukki og svínaríi og stórfelldri misskiptingu. Í

þeim mótmælum átti verkalýðshreyfingin að vera

leiðandi í stað þess að láta sig hverfa.

Ég hef líka gert athugasemd varðandi þann gríð-

arlega heilaþvott sem á sér stað innan verkalýðs-

hreyfingarinnar varðandi Evrópusambandið. Ég

hef verið fylgjandi því að menn skoðuðu málin og

reyndu að meta og kosti og galla við Evrópusam-

bandsaðild. En forvígismenn innan hreyfing-

arinnar hafa viljað keyra á því máli án umræðu um

gallana og vilja Ísland nánast skilyrðislaust inn í

sambandið. Þetta er lýsandi dæmi um þau vinnu-

brögð sem viðhöfð eru í verkalýðshreyfingunni. 

Launahækkanir áttu að verða í febrúar en þeim

var frestað eftir samkomulag milli Samtaka at-

vinnulífsins og Alþýðusambandsins. Ég var einn af

þeim sem gagnrýndu það. Ég taldi og tel enn að

fyrirtæki sem geta borgað hærri laun, og þau eru

allnokkur, ættu að gera það. Þetta fór í taugarnar á

forystu Alþýðusambandsins. 

Ákveðnir valdamiklir aðilar innan hreyfing-

arinnar gerðu athugasemdir við að fjölmiðlar töl-

uðu við okkur sem ekki voru á sömu skoðun og

þeir. Reynt var að hafa áhrif á lýðræðislega um-

ræðu um frestun eða ekki frestun kjarasamninga.

Furðulegt en satt. Forseti Alþýðusambands Íslands

notaði hvítasunnudag til að skrifa tölvupóst til

allra aðildarfélaga og miðstjórnar Alþýðu-

sambandsins þar sem hann gerði lítið úr störfum

mínum. Hann gagnrýndi auk þess sýn mína á end-

urskoðun kjarasamninga þar sem ég taldi að at-

vinnurekendur, sem það gætu, ættu að standa við

samningsbundnar hækkanir. Þarna hófst sú árás

F

yrr í þessum mánuði lét Aðalsteinn Árni

Baldursson, formaður Framsýnar stétt-

arfélags á Húsavík, af starfi sem sviðstjóri

matvælasviðs Starfsgreinasambands Ís-

lands eftir að uppstillinganefnd sambandsins

ákvað að gera ekki tillögu um að hann yrði áfram

sviðstjóri. Aðalsteinn segist ekki hafa haft geð í sér

til að beita sér gegn tillögunni en er afar ósáttur við

það hvernig staðið var að málum á þingi Starfs-

greinasambandsins. 

?Ég hafði gegnt þessu starfi frá árinu 2000, lagði

hart að mér og hafði gaman af vinnunni. Ég tel mig

hafa notið virðingar fyrir störf mín enda kom á

þinginu fram hörð gagnrýni á uppstillingar-

nefndina og hópur manna gekk út af þinginu í

mótmælaskyni,? segir Aðalsteinn. ?Tölvupósti og

skilaboðum hefur rignt yfir mig og ég hef fengið

hringingar frá ráðherrum sem lýsa yfir undrun

sinni á þessu. Menn segjast ekki skilja hvað upp-

stillingarnefnd gekk til en ég skil það. Ég hef haft

aðra sýn á verkalýðsmál og kjarabaráttu en ýmsir

innan Starfsgreinasambandsins. Ég hef viljað sjá

verkalýðshreyfinguna miklu róttækari og virkari

en hún hefur verið. Ég efast ekki um að mín sýn á

þau mál hafi hitt í mark því samkvæmt könnun

sem Capacent Gallup gerði fyrir Starfsgreina-

samband Íslands nýtur það félag sem ég stýri,

Framsýn, 96% stuðnings félagsmanna eða mest

allra félaga. Á sama tíma er verkalýðshreyfingin í

mikilli tilvistarkreppu og samkvæmt nýlegri

könnun treysta einungis 25% landsmanna verka-

lýðshreyfingunni.?

Árás vegna skoðana

Telurðu að á þinginu hafi verið gerð aðför að þér?

?Já, þetta er persónuleg árás sem tengist skoð-

unum mínum. Í lok ágúst kom framkvæmdastjóri

Starfsgreinasambands Íslands, Skúli Thoroddsen,

norður til Húsavíkur til að heimsækja mig og bað

mig að stíga til hliðar sem sviðsstjóri matvæla-

sviðs. Þannig get ég, sagði hann, bjargað sam-

bandinu. Ég spurði hvort menn hefðu eitthvað út á

vinnu mína að setja. Hann sagði svo ekki vera, ég

hefði staðið mig vel sem sviðsstjóri en það væri

ágreiningur um sýn mína og skoðanir á verkalýðs-

baráttu. Hann bar fyrir sig að formaður Eflingar í

Reykjavík, Sigurður Bessason, vildi að ég viki.

Þegar ég fór að grennslast nánar fyrir um málið var

það eina sem ég fékk uppgefið að menn hefðu sitt-

hvað út á skoðanir mínar að setja. Ég talaði við for-

mann kjörnefndar og hann sagði að nefndin hefði

Ýtt til hliðar

vegna öfundar

Mér finnst skelfilegt að horfa upp á að vera ýtt

til hliðar, ekki vegna þess að ég sé ekki að vinna

vinnuna mína, heldur vegna öfundar ákveð-

inna manna sem líkar ekki við áherslur mínar.

Manna sem sjá ofsjónum yfir þeirri velgengni

sem ég nýt, ekki síst meðal verkafólks.

sem endaði með því að mér var ýtt til hliðar. Það er

fámenn valdaklíka innan verkalýðshreyfing-

arinnar sem vann að því.?

Ætlaði að leiðrétta kjör á viku

Þú ert ekki gamall maður, hvernig hófust afskipti

þín af verkalýðsbaráttu?

?Ég var átján ára þegar ég hóf störf á vinnu-

markaði rétt fyrir 1980 og fljótlega upp úr því var

ég kosinn trúnaðarmaður á stórum vinnustað,

Fiskiðjusamlagi Húsavíkur. Ég fann að mikil

óánægja var á vinnustaðnum vegna lágra launa. Ég

ætlaði að gera áhlaup í þeim efnum og sagðist

skyldu bjarga málum á viku. Ég hélt þá að það væri

ekkert mál. Það væri svo ósanngjarnt að menn

hefðu ekki hærri laun að þetta yrði leiðrétt eins og

skot. Það fór nú ekki þannig. Þarna var ég í fimm-

tán ár og þegar ég hætti fannst mér ég vera búinn

að skila því verki að jafna laun innan fyrirtækisins

og var þokkalega sáttur. Ég var hvattur af mínu

fólki til að beita mér af meira afli í verkalýðs-

málum. Þá fór ég af gólfinu inn í stjórn Verkalýðs-

félags Húsavíkur og var kominn þangað 1986, 26

ára gamall, og var í stjórn þangað til ég tók við fé-

laginu 1994 og hef verið formaður fyrir norðan

síðan þá.?

Ertu gamaldags byltingarsinnaður verkalýðs-

leiðtogi?

?Já, ég er af þeim skóla. Á sínum tíma kynntist

ég Gvendi jaka sem var mikill og merkur verka-

lýðsleiðtogi. Hann lét engan nokkru sinni finna

fyrir því að hann væri merkilegri en aðrir og þótt-

ist aldrei vera annar en hann sjálfur. Þetta eru eig-

inleikar sem ég tel eftirsóknarverða og ber virð-

ingu fyrir. Það sem vantar í verkalýðshreyfinguna

í dag er að verkalýðsleiðtogar tali tungu fólksins og

ég tek heilshugar undir með Ögmundi Jónassyni,

sem sagði í setningarræðu sinni á þingi BSRB fyrir

helgina, að verkalýðshreyfingin væri að fjarlægast

uppruna sinn. Á hvaða stalli er verkalýðsleiðtogi

Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar

Viðtalið

Kolbrún Bergþórsdóttir

kolbrun@mbl.is

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60