Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

SunnudagsMogginn

og  
S M Þ M F F L
. . . . 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |

Ašalrit:

Morgunblašiš


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



SunnudagsMogginn

						32 25. október 2009

H

ún er aðeins 29 ára og er samt komin í hóp

nánustu ráðgjafa Davids Cameron, leið-

toga breska Íhaldsflokksins sem flest

bendir til að muni sigra í þingkosning-

unum á næsta ári. Anna-Maren Ashford á að bæta

ímynd íhaldsmanna, tryggja að flokkurinn birtist al-

menningi eins og leiðtoginn kýs að hann geri, að Bretar

sjái framsækinn, kraftmikinn flokk sem vilji tryggja

velferðina en um leið sýna ábyrgðarkennd í fjármálum

og heiðra hefðirnar. Anna-Maren snertir taug í Íslend-

ingum, móðir hennar, Erla Kiernan, er íslensk og sjálf

er Anna-Maren með bæði breskt og íslenskt vegabréf.

?Hvað segir þú gott?? segir Anna-Maren á kórréttri

íslensku og án hreims þegar blaðamaður hringir í hana.

Hún segist samt ekki tala málið nógu vel en hafi lært

heilmikið á þrem mánuðum í Háskólanum hér eftir að

hún lauk stúdentsprófi en auk þess komið oft hingað

til lands í skemmri heimsóknir. En hver er hún?

?Mamma átti íslenska móður en pabbi hennar var

enskur, Stanley Kiernan,? segir Anna-Maren. ?Hann

bjó á Íslandi mestalla ævina, var sendur þangað í seinni

heimsstyrjöld og kynntist þá ömmu minni, Maren

Níelsdóttur, sem ég heiti eftir. Afi, sem talaði alla tíð

íslensku með sterkum hreim, átti súkkulaðiverksmiðju

og var þekktur á Íslandi, hann kynnti Íslendingum

súkkulaðipáskaegg!

Mamma er úr sex barna hópi og alin upp í Reykjavík,

hún er arkitekt. Hún er núna sextug, fór 19 ára held ég

til Skotlands, alveg peningalaus en fékk strax styrk til

náms í arkitektúr við Edinborgarháskóla, grein sem

ekki var hægt að læra á Íslandi. Mamma er mjög metn-

aðarfull og ákveðin kona!

Hún fékk síðan vinnu í London og kynntist þar föður

mínum, Philip Ashford sem er skipulagsfræðingur.

Þau verja reyndar miklum tíma í Reykjavík vegna þess

að þau hafa keypt sér þar íbúð, fara þangað nokkrum

sinnum ári.

?Dálítil

togstreita

í mér?

Anna-Maren Ashford er

bresk-íslensk og er meðal

helstu ráðgjafa Davids

Cameron

Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is.

Anna-Maren Ashford:

?Rétt, við beitum ný-

stárlegum aðferðum og

hönnun en gildin eru

skýr. Þetta eru gildi

Íhaldsflokksins, þau

eru innihaldið í öllu

sem við gerum, hverjar

sem umbúðirnar eru

hverju sinni.?

Plaköt sem Anna-Maren hefur látið hanna. Hér er bent á að Verka-

mannaflokkurinn hafi hlaðið upp ríkisskuldum sem lendi síðar á börn-

unum. ?Nef pabbans, augu mömmunnar, skuldir Gordons Browns.?

David Cameron hafði gegnt embætti leiðtoga breska

Íhaldsflokksins í hálft ár þegar hann árið 2006 réð

ungan ráðgjafa hjá markaðsfyrirtækinu Rainey Kelly

Campbell Roalfe/Y&R, Önnu-Maren Ashford, í nýja

stöðu ráðgjafa til að hressa upp á staðnaða ímynd

flokksins. Kannanir höfðu sýnt að kjósendur væru

ágætlega sáttir við stefnuna en litist illa á sjálfan

flokkinn.

Ekki var nóg að nýi leiðtoginn væri ungur, fleira

þurfti til. Anna-Maren hófst þegar handa, hún lét í

samráði við umdæmisfélög flokksins hanna nýtt

merki fyrir hann, mynd af eikartré. Gamla merkið var

frá tíma Thatcher á níunda áratugnum, kyndill sem

tákna átti frelsið. En eikin á að minna á umhverf-

isvernd, rætur og hefðir. 

Anna-Maren hefur unnið mikið að skipulagningu

flokksþinga. Fullyrt er í breskum blöðum að hún hafi

jafnvel fengið suma staðnaða og rykfallna jakkafata-

kalla á þingunum til að hressa upp á útlitið, ganga um

með opið í hálsinn. Plakötin hennar þykja beinskeytt

og snjöll og hugtök eins og ?félagsleg ábyrgð? og ?vel-

ferð? eru ekki lengur einkaeign Verkamannaflokksins.

Og Cameron hlýddi ráðum ímyndarsérfræðinganna

og sýndi á sér mjúku hliðarnar. Hann hjólar í vinnuna

og leggur áherslu á einlægan áhuga sinn á umhverf-

ismálum og siðbót í stjórnmálum.

Valið á Önnu-Maren vakti verulega athygli fjölmiðla,

ekki síst að hún skyldi viðurkenna að hafa áður stutt

Verkamannaflokkinn. Ekki hinn dæmigerði, ungi

íhaldsmaður. ?Það er einhver vægðarlaus kraftur í

henni,? sagði gamall vinnufélagi, James Murphy, og

taldi að þessi eiginleiki gæti verið að hluta frá ís-

lenskri móður hennar. 

Brown getur reynt að pakka tillögum sínum í fallegan gjafapappír en

í þeim er samt skattasprengja, segir á þessu plakati. Neðst er al-

menningur hvattur til að láta Brown ekki komast upp með þetta.

Rykið dustað af

Íhaldsflokknum

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60