Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

SunnudagsMogginn

og  
S M Þ M F F L
. . . . 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |

Ašalrit:

Morgunblašiš


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



SunnudagsMogginn

						25.október 2009 35

Stundum eru mótmælin víðtækari og gjarnan eiga þá

opinberar framkvæmdir í hlut. Hljómskálanum í sam-

nefndum garði var mótmælt og sagt er að Kjarval hafi

verið framarlega í flokki og nefnt sem rök að byggingin

skyggði á útsýni til Keilis. Kjarval var aftur á móti fylgj-

andi því að byggður yrði ofan á tankana á Öskjuhlíð her-

legur veitingastaður eins og fram kom í athyglisverðri

grein hans. Það var gert löngu eftir hans dag og var

margur á móti því. Hugmyndir voru um miklar torg-

framkvæmdir á Skólavörðuholti í ætt við það sem sést í

miðborg Helsinki og síðar var Hallgrímskirkju Péturs-

sonar ætlað þar pláss. Þá hófust mikil mómæli. Ómar

Ragnarsson (sem sjálfur hefur verið liðtækur mótmæl-

andi) söng í þessa veru um það: ?Um Hallgrímskirkju

byggingu er býsna lítill friður. Biskup segir upp með hana

en Pétur (Ben) sagði niður.? Dóttir sama Péturs hamaðist

myndarlega gegn Ráðhúsinu, sem nú er við Tjörnina, en

hafði sama árangur og faðirinn í slag hans við kirkjuna.

En löngu áður en núverandi ráðhús reis hafði staðið lengi

yfir teiknivinna fjölmargra arkitekta og verkfræðinga að

öðru ráðhúsi, með borgarleikhúsi inni í sér, sem standa

skyldi þvert fyrir norðurenda Tjarnarinnar. Þá risu mót-

mæli einnig hátt með menn á borð við Sigurð Líndal í

forystu. Það hús og öll sú mikla framkvæmd koðnaði

niður undan þeim mótmælum. Magnús Óskarsson og

Sundasamtök hans stöðvuðu fyrirhugað stórhýsi SÍS inni

við Sund. Seðlabankinn ætlaði að byggja þar sem hús

Thors Jensens stóð á Fríkirkjuvegi 11 og hraktist þaðan

upp á Arnarhól. Þar ætlaði bankinn að byggja einhvers

konar pýramída á hvolfi en mótmælendur undir forystu

Þorsteins Ö. Stephensens leikara stöðvuðu það. Tónlist-

arhús var teiknað og átti að rísa í Laugardal. Það var

stöðvað. Og svona mætti lengi telja. 

Mikið fé í óbyggð hús

Ef saman væri lagt er ljóst að gríðarlegum fjármunum,

ekki síst almennings, hefur verið varið í hugmyndir og

hönnun húsa, sem aldrei risu. Gaman væri ef fræðimenn

treystu sér til að leggja mat á það dæmi. En sem sagt, þá

er niðurstaðan hugsanlega sú að við getum sagt í stuttri

tölu, upphátt eða í hljóði, við leiði Jóns og Ingibjargar í

gamla kirkjugarðinum, til dæmis hinn 17. júní 2011: ?Þær

framfarir hafa orðið í landinu síðan þú varst og hést ,Jón,

að vér mótmælum ekki bara allir, heldur mótmælum vér

og þó nú orðið við næstum öllu sem nöfnum tjáir að

nefna.? Ef eitthvað getur glatt þau góðu hjón þá gæti það

verið þetta.

Þ

að eru takmörk fyrir því hvað fólk getur innbyrt af svartnætti. Og fjöl-

miðlar mættu gera meira af því að senda ljósglætu inn um bréfalúguna.

Ekki þarf annað en að rifja upp efni úr síðasta sunnudagsblaði til að rök-

styðja það: 

?6. október 2008 var örlagaríkur dagur í lífi hjónanna Auðar Elfu Kjartansdóttur

og Páls Guðmundssonar, ekki síður en íslensku þjóðarinnar. Þann dag fór fæðing

sonar þeirra óvænt af stað í 28. viku meðgöngu og á sama tíma og Geir Haarde bað

Guð að blessa íslenska þjóð voru læknar að uppgötva að fóstrið var með lífshættu-

legan ofvöxt í öðru lunganu. Tilviljanir stjórnuðu því að Auður og Páll voru stödd á

einu fremsta sjúkrahúsi í heimi í fyrirburalækningum sem að öllum líkindum bjarg-

aði lífi litla drengsins.?

Þannig hófst viðamikil umfjöllun Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur, sem vakti

sterk viðbrögð. ?Nú er ég glöð,? skrifaði Ásdís Sigurðardóttir á blogginu eftir að hafa

horft á myndskeiðið sem fylgdi fréttinni. ?Ég held ég velji þetta ?bestu? jákvæðu

frétt vikunnar hjá mér í jákvæðum fréttum.? 

Hún var svo ?uppveðruð og kát? að hún ætlaði að framlengja jákvæðnisbloggið

sitt til mánaðamóta og skrifa aðeins jákvætt þann tíma. Út af fyrir sig vekur orðið já-

kvæðni nostalgísk hughrif, eins og umræðan hefur þróast í samfélaginu. En það

virðist enginn hörgull á jákvæðum Íslendingum. Að minnsta kosti vakti það foreldr-

unum óvænta ánægju, þegar þeim barst bréf í pósti frá ókunnugum manni, ?sem var

með frumsömdu ljóði og blessaði okkur öll ?? 

Fjölbreyttari Sunnudagsmoggi

Sunnudagsmogginn kemur nú út fyrr á laugardögum og gefst með því svigrúm til

meiri fjölbreytni, þó að áfram verði mikið lagt upp úr fréttaskýringum og viðtölum. 

Fjallað verður með reglubundnum hætti um efnisþætti, sem Íslendingum eru

hugleiknir, svo sem ferðalög, bækur, kvikmyndir, hönnun, matargerð, heilsu,

íþróttir og margt fleira. Vonandi finna sem flestir efni við sitt hæfi í blaðinu. 

Forsíðuviðtalið tekur Árni Matthíasson við Emilíönu Torrini, sem lauk í vikunni

tónleikaferð um Evrópu, en hún sló rækilega í gegn í sumar með lagið Jungle Drum

og trónaði lengi efst á vinsældalistum í Þýskalandi. Einnig er tekið hús á Flosa Ólafs-

syni á tímamótum í hans lífi og Kolbrún Bergþórsdóttir verður með helgarviðtalið á

sínum stað. Ótal margt fleira mætti telja til. 

Agnes Bragadóttir verður á sínum stað með skarpa greiningu á þjóðmálum. En í

hóp pistlahöfunda bætist Styrmir Gunnarsson, sem skrifar pistla undir yfirskriftinni

Af innlendum vettvangi, en það gerði hann áður í Morgunblaðinu fyrir tæpum fjór-

um áratugum. Þá verður Kristín Heiða Kristinsdóttir með krassandi pistla undir yf-

irskriftinni Stigið í vænginn og Helgi Ólafsson stórmeistari skrifar um skákheiminn.

Fleiri pistlahöfundar reka inn nefið, þó að þeir staldri mislengi við. 

Lesbók hefur jafnan átt sinn dygga lesendahóp og verður nú hluti af Sunnudags-

mogganum. Bergþóra Jónsdóttir tekur aðalviðtalið við Margréti Örnólfsdóttur, fyrr-

verandi Sykurmola, handritshöfund, tónlistarkonu, útvarpskonu og nú bókarhöf-

und. Margrét var að gefa út sína fyrstu bók, Aþenu, fyrir börn á aldrinum 9-15 ára. Á

meðal annars efnis er viðtal við Hildi Bjarnadóttur veflistakonu, en einnig verður

þar bókaburður, Lesarinn, fjölmiðlapistill og dómar af ýmsu tagi. 

Góða skemmtun! 

Jákvæðni í fjölmiðlum

?Þetta kom svo á óvart 

þegar ég sá þetta.?

Hermann Valsson, leiðsögumaður og starfs-

maður Vikingtravel, rak augun í að Goðafoss í

Skjálfandafljóti kemur ítrekað fyrir á myndum í

kynningu Microsoft á nýja Windows 7-

stýrikerfinu.

?Ef að líkum lætur er

þessu ekki lokið.?

Haraldur Briem smitsjúkdóma-

læknir, aðspurður hvort A1H1-

flensan geti valdið fleiri dauðs-

föllum.

?Þessi viðurkenning er

heiður fyrir mig og hefur

sömuleiðis þýðingu fyrir

framgang þeirra verk-

efna sem ég vinn að.?

Áslaug Haraldsdóttir, verkfræð-

ingur hjá Boeing, fékk viðurkenn-

ingu frá samtökum kvenverkfræð-

inga í Bandaríkjunum.

?Það hefur orðið algjör stökk-

breyting í þessum rekstri.?

Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar

lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, um kanna-

bisræktun á Íslandi.

?Það var auðvitað sárt að missa

gamla herbergið en við

stefnum að svo góðum sigri

í næstu kosningum að við

endurheimtum það.?

Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Fram-

sóknarflokksins, en framsóknarmenn

þurftu að eftirláta Vinstri grænum

gamla herbergið sitt í Alþingishúsinu.

?Við getum ekki brugðist

við þessu, því við eigum

ekkert pláss, við getum

ekki meir.?

Páll Winkel fangelsismálastjóri

spurður hvernig hægt sé að bregðast

við því að öll fangelsi landsins eru yf-

irfull.

Ummæli vikunnar

Óskar Magnússon

Stofnað 1913

Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.

Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen

Útgefandi:

Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60