Gatan mín 40 25. október 2009 K ristín Jóhannesdóttir leikstjóri og Sigurður Pálsson skáld hafa búið í Mávahlíð undanfarin 22 ár. Þau segja ýmislegt hafa breyst síðan þau fluttu fyrst í götuna, t.d. séu Hlíðarnar orðnar meira miðsvæðis en þær voru áður. ?Þá var miðborgin meiri miðborg,? segir Sigurður og tekur sem dæmi að Leikfélag Reykjavíkur hafi verið í Iðnó, Morgunblaðið í Aðalstrætinu og Ríkisútvarpið við Skúlagötuna. Skömmu síðar breyttist það og Hlíðarnar þóttu meira miðsvæðis þegar Kringlan og Borgarleikhúsið voru opnuð, Morg- unblaðið flutti í Kringluna og RÚV í Efstaleitið. Aðspurð segja þau gróðurinn vera einn helsta kost göt- unnar, en hann vakti áhuga þeirra á hverfinu í upphafi, og að þar skuli vera kaupmaður á horninu, í Sunnubúðinni. ?Svo það að göturnar skuli vera einstefnugötur hefur í för með sér að hverfið verður miklu rólegra,? segir Kristín. ?Maður hefur á tilfinningunni að maður sé í smábæ frekar en í stórborg og að maður sé óhultari. Svo er þetta líka mjög kosmópólít gata, Mávahlíðin, maður gengur stundum hér út og hittir Milan Kundera sem býður góðan daginn upp á frönsku.? Sigurður útskýrir að Friðrik Rafnsson, sem þýðir verk Milans Kundera, búi í Mávahlíðinni og séu þeir miklir vinir. Kundera komi reglulega að heimsækja Friðrik og ræða þýðingarnar. ?Þetta er mjög óvenjulegt því Milan Kundera er nú ekki á ferli hvar sem er,? segir Krist- ín. ?Sama hvar hann er í heiminum fer hann huldu höfði en hér gengur hann frjáls og það er enginn að áreita hann.? ylfa@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Líkt og í litlum bæ CID66CID112CID101CID101CID107CID108 CID11CID132CID105 CID99CID125CID101 CID102CID94 CID88CID3CID105CID88 CID11CID97CID141CID101CID108CID106CID107CID108 CID223CID89CID146CID3CID88CID99CID125CID101CID88CID106CID97CID141CID3CID106 CID57CID102CID105CID94CID88CID105CID107CID146CID101CID96 CID41CID40 CID115 CID40CID39CID44 CID73CID92CID112CID98CID97CID88CID109CID136CID98 CID115 CID74CID136CID100CID96 CID49 CID44CID45CID48 CID45CID48CID39CID39CID35 CID47CID39CID39 CID45CID48CID45CID48 CID110CID110CID110CID37CID96CID99CID106CID37CID96CID106 Lán til íbúðakaupa Lán til endurbóta og viðbygginga Aukalán vegna sérþarfa (skert starfsorka) Úrræði í greiðsluvanda