Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

SunnudagsMogginn

og  
S M Þ M F F L
. . . . 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |

Ašalrit:

Morgunblašiš


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



SunnudagsMogginn

						25.október 2009 41

E

kki er það sérlega kynferðislega

örvandi að horfa og hlusta dag

eftir dag á vansvefta og geð-

vonda ráðamenn þessarar þjóðar

æla yfir okkur pöpulinn eilífum leiðindum

um Icesave og önnur skyld mál. Þegar

koddahjalið í rúminu heima snýst svo líka

nær einvörðungu um peningaáhyggjur og

allsherjar yfirvofandi harðindi, þá er ekki

að undra þótt fólk nái honum ekki upp.

Þetta steindrepur alla rómantík. En þó svo

að við komumst með engu móti undan

kreppunni er engin ástæða til að láta

þennan skratta kæfa allan neista í sál og

líkama. Sláum heldur í klárinn og leggjum

okkur fram um að fullnægja andlegum og

líkamlegum þörfum okkar sem aldrei fyrr. 

Merkilegt nokk, kreppan býður upp á

ýmis tækifæri í þeim efnum. Yfirvinnu-

bann, færri vinnutengdar utanlandsferðir

og minnkandi starfshlutfall; allt færir

þetta okkur aukinn tíma til samveru. Nú

er lag að nýta hann til unaðsstunda. Um

að gera að fá útrás fyrir eyðslusemi á þeim

vettvangi, fyrst það er ekki lengur hægt á

öðrum. Ekki spara kossa, knús og kelerí.

Það slær klárlega enginn hendinni á móti

kossaríkidæmi. Þörf fyrir líkamlega nánd

eykst verulega í kreppu og því er full

ástæða til að nota hvert tækifæri til að

spreða snertingu. Það er bæði hollt og gott

fyrir þann sem gefur og þann sem þiggur. 

Fyrir þau pör sem hafa verið saman í

áraraðir er tilvalið að rifja upp tilhugalífs-

taktana, þegar þau áttu ekkert nema hvort

annað. Hvernig væri að skella sér á ein-

breiðan bedda eða geraða standandi upp

við vegg? Gefa skít í allan hallærislegan

lúxus og hætta að tengja sæluna við

kampavín, jarðarber eða silki. Ofvaxið

freyðibað er ekki forsenda þess að njóta,

það er miklu skemmtilegra að troða sér

saman í lítinn sturtuklefa. Fyrir einhleypa

er full ástæða til að njóta þeirrar stað-

reyndar að á krepputímum líður fólki ekki

ósvipað og á stríðstímum: Allt verður

frekar öfgakennt af því að allt er meira og

minna á heljarþröm. Þá á fólk það til að

verða brjálæðislega ástfangið. Allar til-

finningar verða ýktar, líka ástin. Þegar í

rúmið er komið hamast fólk eins og eng-

inn sé morgundagurinn. Þess vegna er um

að gera fyrir hinn einhleypa í kreppunni

að nýta sér þetta almenna hungur, þeysa

þrútinn af kynorku út á galeiðuna og taka

fagnandi því sem á vegi verður. Vissulega

losar lostinn okkur ekki við kreppuna en

hann dregur úr leiðindum. Og gleymum

ekki að efnið sem kynferðisleg fullnæging

framkallar í heilanum er gleðiefni. Hver

þarf ekki á því að halda á þessum síðustu

og verstu? Nú ríður á að safna gleðistund-

um. Hættum að hemja okkur og látum

tepruskap lönd og leið. Það er svo miklu

skemmtilegra. Leyfum greddunni að taka

af okkur völd. Tökum jafnvel sveltandi

skáld fyrri tíma til fyrirmyndar og ger-

umða undir leiði, það skapar netta auka-

spennu að komast að því hvort frygð-

arhljóð dugi til að vekja upp drauga. Þeir

munu allavega skemmta sér þokkalega

trúi ég, þótt þeir nái kannski ekki upprisu.

Stigið í 

vænginn

Kristín Heiða 

Kristinsdóttir

khk@mbl.is

Leikkonan Pálína Jónsdóttir slær

á skynjarana og stjórnar hljóð-

myndinni og vídeói. Svo eru einnig

strengir undir höndum og niður í

mitti og einnig eftir hryggsúlunni. 

Í leikhúsi er valinn maður í hverju rúmi og auk leikara og leikstjóra

eru sérhæfðir tæknimenn sem stýra hljóði og vídeói, sé hið síð-

arnefnda til staðar. Það verður hins vegar brugðið út af vananum í

leikritinu Völva, eftir Pálínu Jónsdóttur og Walid Breidi, sem sýnt er

í Kassanum í Þjóðleikhúsinu. Í þessum einleik Pálínu klæðist hún

hljóðkjól og stjórnar þar með sjálf hljóði og vídeói. 

Fatahönnuðirnir Filippía I. Elísdóttir og Guðrún Ragna Sigurjóns-

dóttir hönnuðu kjólinn en Walid Breidi, sem sérhæfir sig í gagn-

virkum innsetningum, hannaði rafmiðilinn sem liggur utan á kjóln-

um og er jafnframt hluti af honum. ?Í kjólnum eru skynjarar sem

virka eins og tölvuhljóðfæri,? segir Filippía. ?Pálína slær á skynj-

arana og stjórnar hljóðmyndinni og vídeói. Svo eru einnig strengir

undir höndum og niður í mitti og einnig eftir hryggsúlunni. Vírarnir

leggjast eins og kónguló yfir bakið á henni.?

Filippía segir að við hönnun kjólsins hafi þær Guðrún báðar notast

við aðferðir sem þær þekki vel. ?Guðrún beitir afskaplega fallegri

aðferð við að hekla sem er algert iðnaðarleyndarmál. Svo kem ég

með kindagarnir sem ég hef notað áður. Kjóllinn er því blanda af

náttúrulegum efnum og gerviefnum,? segir hún og bætir við að

kjóllinn hafi verið hugsaður sem sjálfstæður sýningargripur á safni.

Hann krefst hins vegar töluverðs viðhalds. ?Það þarf að vökva kjól-

inn, því hann skorpnar saman ef garnirnar þorna. Þegar það er raki í

kjólnum vegur hann fimm kíló. Það er gaman að nota þunga bún-

inga, þeir eru góð mótstaða fyrir leikarana að vinna með,? segir Fil-

ippía og bætir við að hún hneigist til að setja Pálínu í þunga búninga.

Kjóllinn hefur vakið athygli forstöðumanns gervigreindarseturs

Háskólans í Reykjavík, Kristins R. Þórissonar, og eftir sýninguna 30.

október verða haldnar umræður um hann. Í umræðunum, sem

ganga undir heitinu Nýjustu listir og vísindi, mun Kristinn ræða um

tæknina sem notuð er í kjólnum og hvernig hún er í samanburði við

annað sem hann hefur fengist við í háskólasamfélaginu. ylfa@mbl.is

Hljóðkjóll sem þarf að vökva

Morgunblaðið/Ómar

Lostafulla

kreppan

Vafalaust dettur engum í hug,

sem sér heklaðar hálsfestar Elvu

Daggar Árnadóttur, að það er

minna en ár síðan hún lærði að

hekla. Nú heklar hún af miklum

krafti og selur festarnar undir

nafninu Elva design. Elva er ekki

lærður hönnuður en segist aftur á

móti hafa hannað eins lengi og

hún man eftir sér. ?Ég lærði að

hekla um áramótin síðustu þegar

ég fékk smákennslu hjá mömmu.

Svo lærði ég meira á netinu og fór að fikra mig áfram

með þetta,? segir Elva. ?Ég hef alltaf verið hrifin af

því að vera með annað um hálsinn en venjuleg háls-

men.?

Elva bjó í Madríd síðasta vor og segist hafa fengið

innblástur úr blómlegu görðunum þar. ?Þegar byrjaði

að vora komu svo falleg blóm í fallegum litum að ég

fékk þessa hugmynd að hekla blómamunstur,? segir

hún. ?Eins og gengur verður niðurstaðan oft öðruvísi

en maður lagði upp með. Hálsmenin áttu t.d. að vera

öðruvísi en svo prufaði maður sig áfram með efnið

og sá hvað virkaði og við það urðu til þessi blóm

sem ég nota núna í hálsmenin. Það er það skemmti-

lega við hönnun, maður byrjar með eina hugmynd og

svo þróast hún í gegnum ferlið.?

Hálsmenin eru öll handgerð af henni sjálfri og eru

þau seld í Epal. ylfa@mbl.is Módel: Svala Lind. Hár og förðun: Anna Soffía.

Ljósmynd/Egill Ibsen

Elva Dögg 

Árnadóttir

Blómlegir garðar í 

Madríd innblástur

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60