SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Blaðsíða 43

SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Blaðsíða 43
25.október 2009 43 Cafe den Blå Hund Godthåbsvej 28 Vinsælt kaffihús sem býður upp á góðan „brunch“ um helgar. Café Lindevang Sløjfen 6 Ekta danskur matur og sérlega gott smurbrauð frá kl. 11:30-15:30. Lucky Sushi Dirch Passers Allé 17 (rétt hjá Flintholm-metróstöð- inni) Ekki í alfaraleið en frábært sushi. Einnig boðið upp á heimsendingu. Frederiksberg Centret Falkoner Allé 21 Hæfilega stór/lítil verslunarmiðstöð með helstu búðunum, m.a. hinni sívinsælu H&M. Í metró er farið út á Frederiksberg-stöðinni. Georg Jensen Factory Store Søndre Fasanvej 7 Jólaóróar, jólaskraut, matarstell, glös og allt mögu- legt frá Georg Jensen og Royal Copenhagen á betra verði. Sigríður Inga mælir með Aðventan er tími ljóss og friðar. Ilmurinn af jólaglöggi og brenndum möndlum liggur í loftinu. Í þessari jólaferð höldum við til Wiesbaden sem stendur á bökkum Rínar, rétt vestur af Frankfurt, þar sem við gistum í 3 nætur á hóteli við göngugötuna. Í Wiesbaden er aðventustemning og í miðbænum er fallegur jólamarkaður þar sem upplýstir englar svífa yfir litríku jólahúsunum. Boðið verður upp á bæjarrölt með fararstjóra, en eins gefst tækifæri til að kanna bæinn á eigin vegum, versla dálítið eða fylgjast með mannlífinu frá einu af fjölmörgum kaffi- og veitingahúsum sem miðbærinn hefur upp á að bjóða. Við förum einnig í dagsferð til Rüdesheim, sem er vinsæll ferðamannabær við ánna Rín. Í hjarta bæjarins er hinn skemmtilegi „Jólamarkaður þjóðanna”, þar sem hægt er að kaupa fallegar gjafavörur og fylgjast með hvernig handverk frá hinum ýmsu þjóðum er unnið. Þá er upplagt að ylja sér við jóladrykkinn „Glühwein” á meðan gengið er á milli jólabásanna. Allur miðbærinn er skreyttur jólaljósum og gaman að rölta um og njóta jólastemningarinnar til fulls. Fararstjóri: Marianne Eiríksson Verð: 79.800 kr. á mann í tvíbýli Innifalið: Flug, skattar, hótelgisting í 3 nætur með morgunverði, ferðir til og frá flugvelli í Frankfurt, skoðunarferð til Rüdesheim og íslensk fararstjórn. 3. - 6. desember Sp ör eh f. s: 570 2790www.baendaferdir.is A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R Allarskoðunarferðirinnifaldar! Jólaferð til Wiesbaden Frískandi og góður! EI N N ,T V EI R O G Þ R ÍR 29 8. 04 6                 !       "# Lífrænn Lífrænar mjólkurvörur Ljósmynd/Hedi Kairouannais Einu sinni var ég einn á Horn- ströndum. Fyrsta daginn var sól og blíða en næsta dag lenti ég í dimmri þoku, sá varla nokkurn skapaðan hlut og var smeykur um að villast. En ég var með gps- tæki og það bjargaði málunum. Einu sinni var ég á Kaldadal um mitt sumar, vaknaði einn morg- uninn og þá var fimm sentimetra þykkur snjór yfir öllu! En þegar þung ský hvíla yfir landinu og veðrið er að breytast og sums staðar glittir í sól eru góð skilyrði til að taka afbragðs myndir. Það er mikil dramatík í þessu, sterkar andstæður og ekki auðvelt að mynda það. En yf- irleitt er ég að leita að þannig að- stæðum. Snjókoma um fimmleytið að morgni á Kaldadal eftir ferðalag umhverfis Þórisjökul - myndin var tekin í júlí! Þetta er ferðabíllinn trausti, heimili mitt og skjól á flestum ferðum mínum á Íslandi. Þ egar ég flutti til Fre- deriksberg fyrir um ári, með mann og þrjú börn, reiknaði ég með að vera með annan fótinn á Strikinu og hinn á Nýhöfn. Raunin er hins vegar sú að Fre- deriksberg hefur upp á svo margt að bjóða að ég fer sjaldan út fyrir bæjarmörkin. Bærinn er sérlega fjölskylduvænn. Þar eru fallegir garðar og leikvellir, góð veit- ingahús, skemmti- legar versl- unargötur, að ógleymd- um dýra- garðinum sem allir verða að heimsækja. Freder- iksberg, eða Friðriksberg, er bær inni í miðri Kaupmanna- höfn með eigið ráðhús og borg- arstjórn. Við hliðina á ráðhúsinu er fjölbreyttur flóamarkaður sem er opinn á laugardögum frá apríl og fram í október. Þar er alltaf líf og fjör og hægt að kaupa flest á milli himins og jarðar á góðu verði. Danir hafa minna geymslupláss en við Íslendingar eigum að venjast, og því eru þeir fljótir að losa sig við dót sem þeir hafa ekki þörf á. Ég mæli hiklaust með því að prútta við sölufólkið. Ef þorstinn sverfur að þá er Svejk á næsta götuhorni, krá sem heitir eftir góða dátanum, en þar er tékkneskur bjór í fyrirrúmi. Skammt frá er verksmiðjusala með gæðavarning frá Royal Co- penhagen og Georg Jensen, í múrsteinsklæddu húsi þar sem áður var postulínsverksmiðja. Hluti af Copenhagen Business School er við sömu götu en við þann skóla hafa margir Íslend- ingar stundað nám. Í næsta nágrenni er Frederiks- berg Have, stór og einstaklega fallegur lystigarður sem fyrr á öldum var í einkaeigu konungs- ins. Garðurinn er í miklu uppá- haldi hjá fjölskyldunni og þangað förum við oft, að sjálfsögðu með nesti eins og sannir Danir. Fyrir börnin er sérstakt leiksvæði, í garðinum eru ótal skemmtilegar gönguleiðir, þar hittist fólk og heldur veislur, jafnvel brúð- kaupsveislur, og frá Frederiks- berg Have sést yfir til fílanna í dýragarðinum. Á veturna er hægt að renna sér á skautum á svelli við aðalinnganginn sem snýr út að Frederiksberg Rund- del. Hægt er að leigja sér skauta og kaupa sér kaffi eða rjúkandi heitt kakó. Á þessum slóðum eru mörg veitingahús. Sum þeirra bjóða upp á ekta danskan mat og er þá ekki úr vegi að fá sér flæskesteg með öllu tilheyrandi. Þegar líða tekur að jólum bjóða flest veitingahús upp á eplaskífur með flórsykri og sultu en það er órjúfanlegur hluti af jólastemn- ingunni, svo ekki sé minnst á jólaglöggið. Gammel Kongevej er aðal- verslunargatan, sérlega sjarm- erandi með verslunum af öllu tagi. Þar eru t.d. margar barna- fatabúðir sem leggja áherslu á danska hönnun, kven- og herra- fataverslanir, skóbúðir, smur- brauðsstofur, bókaverslanir og veitingahús. Mörg atriði úr grín- þáttunum Klovn eru tekin upp í þessu nágrenni, svo það er aldrei að vita nema maður rekist á að- alleikarana. Dýragarðinn verða allir að heimsækja en hann var opnaður fyrir 150 árum. Þar ætti fólk á öllum aldri að skemmta sér vel. Við förum reglulega í dýragarð- inn, enda er þar alltaf eitthvað nýtt að sjá. Hluti hans er hann- aður með þarfir barna í huga og þar má t.d. sjá íslenska hestinn. Dýragarðurinn er skreyttur fyrir jólin og þar myndast skemmtileg jólastemning sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Það er því alltaf nóg um að vera og margt að skoða á Frederiksberg, hvort sem er að vetri eða sumri til. Sigríður Inga Sigurðardóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.