Organistablaðið - 01.10.1968, Blaðsíða 21

Organistablaðið - 01.10.1968, Blaðsíða 21
Haukur Guðluugsson heldur orgeltónleika í Lubeck OrganistablaðiS hefur heðið mig að segja frá tvennum tónleikum, er ég hélt í Þýzkalandi í júní síðastliðnum. Fyrri tónleikarnir voru í Dómkirkj- unni í Schleswig, en þur er hið fræga Murcussen orgel. Orgelið hefur þrjú spilaborð og pedal, og 51 hljómandi rödd. Kirkjan, sem er geysistór, gefur hljómi orgelsins mikla fyllingu og eykur mjög ú fegurð þess, likt og Skálholtskirkja gerir við sitt orgel. Á efnisskránni voru verk eftir Buxtehude, Kraft, Bach, César Franck og Pál ísólfsson. Tónleikarnir þóttu vel sóttir. Seinni tónleikarnir voru tveim dög- um síðar í Maríukirkjunni í Luheck. Orgelið, sem ég lék á þur, var hið svo- nefnda Totentanzorgel, 42 ruddir. Frumgerð þess hafði staðið ullt frá árinu 1477 til 1942, en var j>á gjör- eyðilagt í loftárás og einnig annað orgel kirkjunnar, Buxtehudeorgelið, sein svo var kallað. Núverandi orgel er nákvæiu eftir- líking gamla hljóðfœrisins, l>ar eð til voru teikningar og mál af hverjum einstökum hluta þess. Má því segja, að verðmæti þess hafi ekki algjörlega farið forgörðum. Möguleikar hafa verið á, að hera saman liljóm þessara hljóðfæra með hjálp eldri hljóm- platna, og sagði mér herra Schoinann, orgelsmiður hjá orgelverksmiðju Kempers, að hljómurinn sé hinn sami. Mikil er fegurð raddanua, sérstaklega eru Principal-raddirnar mjúkar og Mixtururnar eru hjartar og hvorki grófar né háværar, og blandast vel öðrum röddurn hljóðfærisins. Aðal- Mixturan er allt að tíföld. I góðu andrúmslofti Maríukirkj- unnar er gott að undirbúa tónleika, raða saman röddum og litum, þar til hvert verk hefur þann hlæ, sem manni finnst eiga þar heima, en oft verður að' leita lengi, jivi að livert nýtt orgei hýr yfir mörgum leyndum möguleik- um. Fyrir löngu siðan var Buxtehude organisti í Maríukirkjunni. Þar liafa verk hans hljómað á sinn töfrandi liátt, og vissulega varð mér oft hugs- að til Buxtehudes, er ég heýrði tónlist lians endurhljóma i mikilli hvelfingu kirkjunnar. Þessi merka kirkja geymir einnig s[)or Bachs, sem á unga aldri heim- sótti Buxtehude og lék fyrir liann og nam hjá honum. Prelúdian og fúgan í fis-moll eftir Buxtehude var á efnisskránni, og er hún einmitt sögð hafa verið sérstakt eftirlæti J. S. Bachs. Einnig var d- moll Toccatan og fúgan eftir Bach ORGANISTABLAÐIÐ 21

x

Organistablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.