Organistablaðið - 01.11.1969, Blaðsíða 10
50 ára.
Steingrímur Sigfússon er fæddur að
Stóru-Hvalsá í Hrútafirði þann 12.
júní 1919. Hann hefur víða látið að
sér kveða sem organisti og söngstjóri.
Einnig er hann kunnur af tónsmíðum
sínum, sérstaklega kirkjulegum, fyrir
kóra og orgel.
Organistafélagið flytur honum heilla-
óskir á fimmtugsafmælinu. P.K.P.
sem gerðist kringum hann. Þannig
lifði hann fram til 14. ágúst, er hann
fékk hægt andlát við tóna Mattheus-
arpassíunnar.
Með David Áhlén er fyrirmyndar-
maður genginn. — Við félagar hans
á Islandi þökkum honum störfin og
kynnin og sendum ættingjum hans og
vinum samúðarkvcðjur.
P.K.P.
75 ára.
Erllng Kjclscn fyrrum organisti við
Sagene kirkju í Osló varð 75 ára 9.
ágúst. I fjölda mörg ár hefur hann
verið með þeim fremstu f flokki i
félagsmálum stéttarbræða okkar í
Noregi, og er enn — still going strong.
Með þátttöku sinni i samstarfi nor-
rænna kirkjutónlistarmanna, m. a. með
með starfi sínu i sambandi við nor-
r.-nu k'rkjutónlistarmótin o. fl. — og
með sinu glaða viðmóti — hefur hann
cignazt fjölmarga vini og kunningja
um öll Norðurlönd, einnig hér á Is-
landi, en hingað kom hann 1952 á 5.
mót norrænna kirkjutónlistarmanna
og hélt hér fyrirlestur. 1 heimalandi
sínu hefur hann hlotið mikla viður-
kenningu fyrir störf sin i þágu organ-
Jeikarastéttarinnar. F.Í.O. sendir hon-
um heillaóskir.
10 ORGANISTABLAÐIÐ