Organistablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 4

Organistablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 4
BJORN JAKOBSSON Minningarorð. Björn Jakobsson var fæddur á Varmalæk í Borgarfirði 5. júní 1894. Hann var yngstur fimm barna hjónanna Jakobs Jónsson- ar og Herdísar Sigurðardóttur, sem þar bjuggu. Hann ólst upp hjá foreldrum sínum á Varmalæk, var vetrar- tíma við nám í Reykjavík og í eldri deild Hvítárbakkaskóla vet- urinn 1911—’12. Var heima til vorsins 1920 er hann réðst að Hvítárbakkaskóla sem ráðsmaður við bú skólans og jafnframt kennari í eitt ár. Lét þá af ráðs- mennskunni, en var áfram kenn- ari til vorsins 1926. Ári síðar kvæntist hann Guðnýju Kristleifs- dóttur frá Stóra-Kroppi. Flutti hann þangað og átti þar heima til ársins 1952, er hann flytur aítur heim að Varmalæk. Konu sína missti Björn árið 1932. Hann gerist kennari við Reykholtsskóla og gegnir því starfi til sjötugsaldurs. Vann þá oftast við búskap á sumrin. Flutti í Borgarnes árið 1964 og tók þá að sér útgáfu á riti f. h. Kaupfélags Borgfirðinga, „Kaupfélagsritinu”, og gegndi því starfi til æviloka. Síðustu ár sín var Björn á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi. Hann andaðist 17. ágúst 1977. Björn var fremur lágur vexti, grannur og léttur í hrevfingum. Hann var bráðgreindur og hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum. Hann var góðum hæfileikum búinn, hafði ríka tónlistar- gáfu, prýðisvel ritfær, bráðhagur í höndum og kappið og ákafinn við þau verk sem hann vann var einstakt. Skólaganga Björns varð ekki löng miðað við hvað nú tíðkast. Skóli hans var fyrst og fremst uppeldi í hópi systkina hjá foreldrum sín- um, sem bæði voru af hinum merkustu ættum úr sveitum Borgar- 4 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.