Organistablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 7

Organistablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 7
óhætt má segja, að hann hafi verið aðaldriffjöðrin í söngmálum Hnífs- dælinga um áratuga skeið. Þegar ég tók við ísafjarðarprestakalli á haustdögum 1942 voru margar ágætar söngraddir í Hnífsdal. Eru mér m. a. í minni þeir Páll Pálsson, útvegsbóndi og Magnús Guðmundsson, vélstjóri. Voru þeir báðir bassamenn miklir og hefðu raddir þeirra sómt sér vel í hvaða kór sem var í veröldinni. Árið 1946 var stofnaður formlega blandaður kór í Hnífsdal, Sam- kór Hnífsdælinga. Við stjórn hans tók Kristján. Hefur hann verið við lýði allt til þessa dags. Og hvarvetna þar sem tekið var lagið við ýms tækifæri í Hnífsdal var Kristján stjórnandi og undirleik- ari og örfaði til söngs. Víða við Djúp, sem mjög er áberandi í dreifbýlinu, var mikill skortur á organleikurum við guðsþjónustuhald og aðrar kirkjulegar athafnir svo sem jarðarfarir. Var þá oft leitað til Kristjáns að hlaupa þar undir bagga, og ávalt var hann reiðubúinn að gegna þar kalli, enda maðurinn hið mesta lipurmenni, sem vill hvers manns vanda leysa. Pví á ég líka ljúfar minningar um samstarfið við hann, sem einnig átti sér stað utan heimabyggðar. Þótt hér hafi verið í fáum dráttum dregin upp svipmynd af Kristjáni sem organleikara, þá vil ég þess geta að á hann hlóðust ýmis félagsstörf. Hann var tvívegis hreppsstjóri byggðarlags síns, hreppsnefndarmaður, safnaðarfulltrúi, í stjórn Sambands vestf. kirkju- kóra. Og ekki skal því gleymt, að hann tók þátt í leikstarfsemi byggðarlags síns og átti þar góð tilþrif á sviði. Hann var því ekki við eina fjöl felldur í þjónustu sinni við samfélag sitt. Kristján er tvíkvæntur. Fyrri kona hans, Sigríður Kjartansdóttir, var samkennari hans lengst af sambúð þeirra, en hún lézt fyrir aldur fram. Þau hjón eignuðust fimm mannvænleg börn. Síðari kona hans er Helga Jónsdóttir, austfirzk að ætt. En hér með vil ég nú nota tækifærið og senda hinum aldna samstarfsmanni mínum um áratuga skeið kveðju mína og konu hans og þakka fyrir góð og gömul kynni. Vil ég þakka samstarf í heimi tóna og tilbeiðslu og þann einlæga vilja, sem kom fram í organleikarastarfi Kristjáns, þar sem ekki var horft til launa, en undirródn að þjóna hinni göfugu gyðju, sönglist- inni og samborgurum sínum um leið, en slíkir menn eru ómissandi í hverju byggðarlagi. Sig. Kristjánsson. ORGANISTABLAÐIÐ 7

x

Organistablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.