Organistablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 29

Organistablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 29
Brot af laginu ,,America“ kemur í kanon milli vinstri og hægri handar, en hljómfræðilega séð virðist pedalröddin hvergi eiga heima, þó að hún sé í sömu tóntegund og vinstri handar raddir. Annars er millispilið eitt af þeim köflum sem faðir Ives fyrirbauð honum að leika á tónleikum í New York, því að það væri ekki hæft til flutn- ings í kirkju: drengir mundu hlæja að því og vera með hávaða! I 3. tilbrigði fer Ives fyrst reglulega að skemmta sér, þá kemur hann með laglínuna í, eins og einn gagnrýnandi sagði einu sinni „en höstgilde hop-sa-sa!“ (eins og í réttunum? þýð.). 4. nótnadæmi. Lag- Var. III Allegro ifr&H í ^ nj m V. * * t ii>h —tí-J—!—1 ——1—& 4. dæmi. línan kemur tvisvar í 3. tilb., í 2. sinn eru sextándupartahlaup í undir- spilinu. En það er nú ekki allt gamanið búið með því! Fjórða til- brigði, sem Ives kallar polanaise líkist meira spænskum dansi, það vantar bara kastaníetturnar! Hér kemur lagið í heild og síðan seinni hlutinn endurtekinn (IV2), og þá með fuglskvaki. 5 nótnadæmi. 'VW fe/J ilj ].■■ ■ h- iÉ. . J '(-■ - ■■ — MM 1 K -1 WtffffT Hlll Í l S 5. dæmi Aftur millileikur í tveim tóntegundum samtímis, þar er notaður efniviður úr seinni hlutanum af „Ameríka“ og leitt út í 5. og síð- asta tilbrigði. Fimmta tilbrigði gerir mestar kröfur til pedaltækni organleikarans ORGANISTABLAÐIÖ 29

x

Organistablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.