Organistablaðið - 01.11.1981, Blaðsíða 19
frá Reykjum á Skeiðum. Þessir frændur sungu svo vel, að orð var á gert. Af
Borgfirðingum má nefna Svein Oddsson frá Innra-Hólmi, síðar barnakennara á
Akranesi, Stefán Guðmundsson frá Fitjum, Þorstein Pétursson frá Grund og
Björn Jóhannesson frá Hóli. Allir þessir menn áttu skemmtilegar minningar frá
messum á Kálfatjörn og söngæfingum ÍLandakoti. Landlegudagar voru notaðir
til slíkra æfinga, en það var einsdæmi þar um slóðir á þeim árum.
Kristleifur Þorsteinsson
Úr byggðum Borgarfjarðar II Rvk. 1948
7. Úr endurminningum
Kristins Kristinssonar
Nú fór ýmislegt að drífa á daga mína eins og gengur um börn, sem kynnast
nýjum leiksystkinum. Af leikbræðrum minnist ég einkum með hlýjum huga
Kidda amtmanns (Kristjáns Kristjánssonar), en hann var fóstursonur
Kristjánsens amtmanns. Var hans hús næst fyrir vestan Benediktsbæinn fremst í
Búðargilinu. Kiddi amtmanns var ári yngri en ég, en miklu stærri og þroskaðri.
Eitt er það enn, sem gerir mér þessa brekku kæra, en þaðer minningin um þær
unaðsríku stundir, sem við nutum þar á fögrum og blíðum vetrarkvöldum, þegar
Magnús Einarsson söngkennari kom með söngflokk sinn vel æfðan og söng fyrir
bæjarbúa nýjustu lögin, sem þá voru. Þetta voru mér ógleymanlegar ánægju-
stundir, því að ég var strax á barnsaldri mjög gefinn fyrir söng. Það var yndi mitt
að hlusta á söng og mig langaði að læra að syngja, þó að um það færi sem fleira
að fátæktin tæki í taumana.
Bernskuminningar úr Eyjafirði
Frá Eyfirðingum - Menn og minjar Viii. Rvk. 1956
8. Fyndni og flónska
„Enginn veit hvað átt hefir fyr en misst hefir."
,,Enginn veit hvað átt hefir fyr en misst hefir"
Prófastur nokkur spurði Geir biskup Vídalín, hvað þeir hefðu gjört með það að
taka 'a^a ( djtfulinn þurt úr Messusöngsbókinni og setja hann síðan inn í hana
aptui, i nýrri útgáfu. „Það skal ég segja þér, barnið mitt'' segir biskup; „enginn
veit hvað átt hefir fyr en misst hefir"
Eftir hdr. Benidikts prests Þórðarsonar.
ORGANISTABLAÐIÐ 19