Organistablaðið - 01.11.1982, Blaðsíða 10
Bjami Bjamason
organisti
Bjarni Bjarnason, Brekkubæ andaðist 12. mars s.l. tæplega hálfníræður. Hann
var fæddur 19. maí 1897.
Bjarni var mikill ræktunarmaður. Hann var búhöldur góður. Hann átti mörg áhuga-
mál. Félagsmálamaður var hann mikill. Hann átti stórt og gott bókasafn. Hann
grúskaði í ættfræði, stúderaði kenningar dr. Helga Péturss.fókkst við tónsmíðar. Rit-
fær var hann svo sem best mátti verða, samdi m.a. sögu Nesja í A-Skaft. Hann var
heiðursborgari Nesjahrepps. Þekktastur varð hann fyrir tónlistarstörf sín. Tónlistar-
kennarar hans voru fyrst Magnús Einarsson, organisti á Akureyri og síðar um skeið,
dr. Páll ísólfsson og Sigurður Birkis.
Vorið 1916 byrjaði Bjarni að spila í Bjarnaneskirkju og var síðan organisti við þá
kirkju í 62 ár. Karlakór Hornafjarðar starfaði um áratugaskeið undir stjórn hans og á
áttræðisafmæli hans átti kórinn hlut að því að gefin voru út 14 sönglög eftir hann.
Konu sína, Ragnheiði Sigjónsdóttur missti Bjarni 22. des. 1979. — Þeim varð
þriggja barna auðið.
í tilefni af áttræðisafmæli Bjarna skrifaði Jón ísleifsson organleikari grein um hann
í þetta blað (X.2) og vísast nú til þeirrar ritgerðar.
10 ORGANISTABLAÐIÐ