Organistablaðið - 01.12.1987, Blaðsíða 9
3 organistar við Byjafjörð láta af störíum
Áskell Jónsson er þekktur sem söngstjóri Karlakórs Akureyrar og organ-
isti viö Lögmannshlíðarkirkju. Hann er sömuleiðis hress og kátur Norðlend-
ingur, fullur af lífsfögnuði og innri orku.
Áskell fæddist á Mýri í Bárðardal þann 5. apríl árið 1911. Foreldrar hans
voru hjónin Jón Karlsson og Aðalbjörg Jónsdóttir á Mýri. Fau Mýrarsystkin
voru 9 talsins, öll söngvin eins og foreldrarnir, enda var söngur mikið iðkaður
þar á heimilinu. Faðir Áskels var lengi organisti við Lundarbrekkukirkju og fór
snemma að kenna syni sínum á orgelið. Áskell starfaði annars að fjárhirð-
ingu og öðrum bústörfum.
Þegar Áskell var á 17. ári var hann mánaðartíma við orgelnám hjá Sigur-
geiri Jónssyni á Akureyri, en tægum þremur árum síðar fór hann til náms í
Alþýðuskólann á Laugum og var þar tvo vetur. Þar kom óvænt í hans hlut að
sjá um söngþjálfun skólasystkina sinna og tókst svo vel til að skólastjórnin sá
ástæðu til að launa honum að vori. Tveimur árum síðar réðst Áskell að
Reykjaskóla í Hrútafirði sem söngkennari og ráðsmaðurog starfaði þarfimm
vetur en sjötta veturinn á Laugum. Næstu tvö ár dvaldi Áskell í Reykjavík,
vann hálfan daginn en notaði hálfan til tónfræðináms hjá dr. Victor Urbancic
við Tónlistarskólann.
Áskell Jónsson flutti til Akureyrar árið 1943, var þá ráðinn söngkennari við
Gagnfræðaskólann og söngstjóri Karlakórs Akureyrar. Karlakórnum stjórn-
aði svo Áskell til 1966, en kennari við Gagnfræðaskólann var hann til 1974.
Organisti við Lögmannshlíðarkirkju varð Áskell 1945 og lék við sína síðustu
messu sem organisti kirkjunnar 4. okt. 1987, en þá var flutt í nýju Glerár-
kirkjuna.
Söngstjórn og undirleik hjá fleiri kórum, kvartettum eða einsöngvurum
ORGANISTABLAÐIÐ 9