Organistablaðið - 01.12.1987, Blaðsíða 10

Organistablaðið - 01.12.1987, Blaðsíða 10
annaðist Áskell, en eftirminnilegast kann að vera, er Áskell stjórnaöi Kan- tötukór Akureyrar í söngför til Stokkhólms 1951. Þar hlaut kórinn 2. verðlaun í keppni norrænna kóra. Áskell kvæntist úrvalskonu frá Djúpavogi, Sigurbjörgu Hlöðversdóttur og eru börn þeirra7: Jón Hlöðverskólastjóri Tónlistarskóla Akureyrar, Freyr raf- virki á Akureyri, Rósa meinatæknir í Osló, Aðalbjörg stundar fóstrustörf á Akureyri, Hörður organisti við Hallgrímskirkju og stjórnandi Mótettukórsins, Lúðvík blikksmiður í Osló og Gunnhildurfóstra í Osló. Jakob Tryggvason hefur verið organisti við Akureyrarkirkju frá 1941 til haustsins 1986 þegar hann nær áttræður lét þar af störfum. Jakob er fæddur að Ytra-Hvarfi í Svarfaðardal 31. jan. 1907, sonur hjón- anna Tryggva Jóhannssonar og Guðrúnar Soffíu Stefánsdóttur, er bjuggu þar á Ytra-Hvarfi. Um fermingaraldur hóf hann nám í orgelleik hjáTryggva Kristinssyni, sem þá var organisti í Svarfaðardal og síðar á Siglufirði. Jakob stundaði síðar nám í Samvinnuskólanum og var jafnframt í orgelnámi hjá Páli ísólfssyni. Til Akureyrar flutti hann 1941 og gerðist þar organisti við Akureyrarkirkju og það varð hansaðalstarftil 1986 aðundanteknumþremurárumerhannfór til framhaldsnáms við Royal Academy of Music í London 1945-48. Hann þótti einstakur starfsmaður og afar vandvirkur. Á hann hlóðust marg- vísleg störf, skólastjórn Tónlistarskólans, hann stjórnaði Gígjunum, kvenna- kór á Akureyri, æfði og lék undir hjá Smárakvartett og Geysiskvartett og var stjórnandi Lúðrasveitar Akureyrar um tuttugu ára skeið. „Hann stjórnaði, leiðbeindi og kenndi nýliðum, sparaði aldrei vinnu og spurði aldrei um laun. Stundum voru meðlimir lúðrasveitarinnar 20-25 en kannske skömmu síðar 12-15. Má því nærri geta um hvernig starfsaðstaða stjórnandans hefur verið við slíkar kringumstæður. En hann gafst ekki upp heldur leiddi sveitina yfir erfiðasta hjallann í sögu hennar,“ segja lúðrasveitarmenn í afmæliskveðju til Jakobs. Jakob hefur unnið mikið starf við útsetningu fyrir kóra og lúðrasveitir. 10 ORG ANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.